Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Menntaráð - 159. fundur

í Barnaskóla Kársness

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Hanna Carla Jóhannsdóttir - formaður
  • Hildur Karen Sveinbjarnardóttir - aðalmaður
  • Jónas Haukur Thors Einarsson - aðalmaður
  • Hjördís Einarsdóttir - aðalmaður
  • Björn Þór Rögnvaldsson - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Tryggvi Felixson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Tryggvi Felixson - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Kristgerður Garðarsdóttir - aðalmaður
  • Karen Rúnarsdóttir - aðalmaður
  • Sigrún Bjarnadóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Ingibjörg Ýr Pálmadóttir - starfsmaður menntasviðs

Ritari

  • Ingibjörg Ýr Pálmadóttir

Dagskrá fundar

01

Heimsókn menntaráðs í grunnskóla Kópavogs

Heimsókn menntaráðs í grunnskóla Kópavogs - Barnaskóli Kársness.

Gerður Magnúsdóttir, skólastjóri Barnaskóla Kársness, fór með menntaráð um skólann og sagði frá byggingunni. Gerði er þökkuð góð kynning.

Umræður.

02

Framtíðin í fyrsta sæti - grunnskólatillögur

Viðbragðsáætlun vegna grunnskólatillögu nr. 15, Náms- og starfsumhverfi sem styður öryggi og vellíðan, lögð fram til samþykktar.

Silju Dís Guðjónsdóttur, Tryggva Guðjóni Ingasyni og Ingibjörgu Ýri Pálmadóttur er þökkuð góð kynning á viðbragðsáætlun í skóla- og frístundastarfi.

Menntaráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum viðbragðsáætlun í náms- og starfsumhverfi grunnskóla sem styður við öryggi og vellíðan.

Umræður.

Silja Dís og Tryggvi Guðjón viku af fundi kl. 17:45.

03

Undirbúningur reksturs leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi

Minnisblað varðandi undirbúning reksturs samrekins leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi lagt fram.

Viljayfirlýsing lögð fram til samþykktar.

Pálmi Þór Másson, Steinn Sigríðar Finnbogason og Sindri Sveinsson víkja af fundi kl. 18:45.

Umræður

Fundarhlé hófst kl. 18:45, fundi fram haldið kl. 19:10.

Dagskrártillaga:

“Lagt er til að málinu verði frestað til næsta fundar menntaráðs."

Björn Þór Rögnvaldsson

Hreiðar Oddsson

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir.

Dagskrártillögu um frestun hafnað með fjórum atkvæðum gegn atkvæðum Björns Þór Rögnvaldssonar, Hreiðars Oddssonar og Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur.

Bókun:

"Undirrituð telja ekki tímabært að undirrita viljayfirlýsingu um rekstur nýs skóla í Vatnsendahvarfi á þessu stigi máls. Ekki liggja fyrir nauðsynlegar valkostagreiningar og ekki hefur verið gerð fullnægjandi grein fyrir samningsmarkmiðum sveitarfélagsins. Því liggja ekki fyrir þær upplýsingar sem þarf til að meta hvort að það að fara í umræddar viðræður sé gert á málefnalegum og faglegu grunni.

Jafnframt er það verulegt áhyggjuefni að sveitarfélagið skuli ganga til viðræðna við einn tiltekinn aðila án þess að öðrum hafi verið gefinn kostur á að koma að borðinu. Með því er ekki aðeins komið í veg fyrir að hægt sé að bera saman ólíkar leiðir áður en afstaða er tekin, heldur vakna einnig spurningar um hvort jafnræðis sé gætt með fullnægjandi hætti við undirbúning málsins. Undirrituð telja því að áður en til undirritunar viljayfirlýsingar kemur þurfi að liggja fyrir opnari og vandaðri undirbúningur málsins.

Björn Þór Rögnvaldsson

Hreiðar Oddsson

María Ellen Steingrímsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir


Bókun:

“Meirihlutinn fagnar því að Kópavogsbær hyggst ganga til samninga við Skóla Ísaks Jónssonar um rekstur nýs samrekins leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi. Meirihlutinn telur að tilkoma Ísaksskóla samræmist vel menntastefnu Kópavogsbæjar og verði mikilvæg viðbót við það öfluga skólasamfélag sem þegar er til staðar í Kópavogi.

Skóli Ísaks Jónssonar býr yfir áratugalangri reynslu af menntun yngstu barna og hefur sinnt markvissri kennslu fimm ára barna og nemenda á yngsta stigi grunnskóla frá stofnun hans árið 1926. Meirihlutinn er stoltur af því að skóli með slíka reynslu og þekkingu hafi sýnt áhuga á að útvíkka starfsemi sína og taka þátt í uppbyggingu skólastarfs í Kópavogi.

Hanna Carla Jóhannsdóttir

Hildur Karen Sveinbjarnardóttir

Jónas H. T. Einarsson

Hjördís Einarsdóttir


Menntaráð samþykkir fyrir sitt leyti viljayfirlýsingu milli Kópavogsbæjar og Skóla Ísaks Jónssonar ses. með fjórum atkvæðum og hjásetu Björns Þórs Rögnvaldssonar, Hreiðars Oddssonar og Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur og vísar málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu.

04

Fyrirspurn frá Birni Þór Rögnvaldssyni, fulltrúa Samfylkingar í menntaráði, varðandi starfsemi félagsmiðstöðva

Svar við fyrirspurn lagt fram.

Menntaráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum að málinu sé frestað til næsta fundar.

05

Fyrirspurn frá Birni Þór Rögnvaldssyni, fulltrúa Samfylkingar í menntaráði, varðandi húsnæðismál skóla

Svar við fyrirspurn lagt fram.

Menntaráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum að málinu sé frestað til næsta fundar.

Fundi menntaráðs lauk kl. 19:40.