Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer: 26041577

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3260. fundur

Frá áhættu- og fjárstýringu, lagður fram viðauki nr. 3 við fjárhagsáætlun til samþykktar bæjarráðs.

Gestur vék af fundi kl. 8:35

Umræður

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan viðauka við fjárhagsáætlun.

02

Bæjarráð - 3260. fundur

Frá áhættu- og fjárstýringu, lagður fram viðauki nr. 2 við fjárhagsáætlun til samþykktar bæjarráðs.

Gestir viku af fundi kl. 8:25

Umræður

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan viðauka við fjárhagsáætlun.


Bókun:

"Undirrituð gerir ekki athugasemdir við þær tilfærslur sem lagðar eru til í viðaukanum enda er um að ræða verkefni sem mikilvægt er að ráðast í. Þó er ástæða til að vekja athygli á því að fjármögnunin kemur frá verkefnum sem gert var ráð fyrir að yrðu unnin á árinu en hafa tafist. Um er að ræða byggingu nýs leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi, undirbúningur fyrir framkvæmdir við leikskóla í Naustavör og uppbyggingu stúku við Kórinn. Undirrituð leggur áherslu á mikilvægi þess að framgangur þessa verkefna verði tryggður enda eru þau öll mikilvæg fyrir þjónustu við íbúa og áframhaldandi uppbyggingu Kópavogs."

Eydís Inga Valsdóttir


Bókun:

"Fulltrúi Viðreisnar telur eðlilegt að fjárheimildir sem sannanlega verða ekki nýttar á yfirstandandi ári séu færðar tímabundið til verkefna sem eru tilbúin til framkvæmda, enda sé með því stuðlað að ábyrgri og skilvirkri nýtingu fjármuna.

Nauðsynlegt er þó að bæjarráð fái skýra yfirsýn yfir stöðu þeirra verkefna sem fjárheimildir eru færðar frá. Þá verði skýrt hvernig tryggt verði að fjárheimildir sem nú eru færðar frá verkefnunum komi aftur inn í fjárfestingaáætlun þegar framkvæmdir geta hafist."

Pétur Björgvin Sveinsson

03

Bæjarstjórn - 1338. fundur

Lagður fram viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2026. Viðaukinn er vegna endurnýjunar tennisvalla við Tennishöllina.

04

Bæjarstjórn - 1338. fundur

Lagður fram viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2026. Viðaukinn er vegna endurnýjunar tennisvalla við Tennishöllina.

05

Bæjarstjórn - 1338. fundur

Lagður fram viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2026. Viðaukinn er vegna endurnýjunar tennisvalla við Tennishöllina.

Bæjarstjórn samþykkir framlagðan viðauka með níu atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar og Helgu Jónsdóttur.

06

Bæjarráð - 3253. fundur

Lagður fram viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2026. Viðaukinn er vegna endurnýjunar tennisvalla við Tennishöllina.

Umræður.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur framlagaðn viðauka nr. 1.

Fundarhlé hófst kl. 11:52, fundi fram haldið kl. 12:16

Bókun:

"Útgjöld að fjárhæð 48 milljónir króna sem lögð eru til í viðaukanum til endurgerðar tennisvalla hefðu átt að vera ljós við fjárhagsáætlunargerð og vera hluti af bindandi fjárhagsáætlun 2026. Hér er lagt til að fjármagna það með því að fresta útgjöldum vegna skóla í Vatnsendahvarfi. Væntanlega þarf að gera ráð fyrir þeim útgjöldum í fjárhagsáætlun 2027. Ekki er í þessum viðauka fullnægt skilyrðum um tilfærslu milli verkefna í fjárfestingaráætlun heldur er um hreina viðbót að ræða. Minnt er á að með tillögu um viðauka skal fylgja minnisblað um tillöguna og hvaða áhrif hún hefur á samþykkta fjárhagsáætlun. Slíkar skýringar fylgja ekki. Ennfremur er minnt á að samkvæmt reglugerð á sveitarstjórn á að setja sérstakar reglur um heimildir vegna tilfærslu á milli launakostnaðar og annars rekstrarkostnaðar og millifærslu milli deilda. Þetta á jafnframt við um fjárfestingu og tilfærslu milli verkefna. Þrátt fyrir umræður um nauðsyn þessa í bæjarráði hafa engar tillögur um slíkar reglur verið lagðar fyrir af hálfu bæjarstjóra og stjórnsýslunnar."

Helga Jónsdóttir


Bókun:

"Það er ekki verið að fresta útgjöldum vegna skólans sem er í undirbúningi. Forhönnun og samráðsferli er í fullum gangi en ljóst að ekki næst að fjárfesta fyrir alla fjárhæðina í fjárhagsáætlun á þessu ári."

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson

Björg Baldursdóttir


Bókun:

"Bókun meirihlutans staðfestir að útgjöldum vegna skólans í Vatnsendahvarfi er frestað til fjárhagsáætlunar næsta ár."

Helga Jónsdóttir