Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3253. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Orri Vignir Hlöðversson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Hjördís Ýr Johnson stýrir fundi í fjarveru formanns.

Dagskrá fundar

01

Kársnesskóli

Mál sett á dagskrá að beiðni bæjarfulltrúa Viðreisnar.

Kynning og umræður.

Gestir viku af fundi kl. 8:35

02

Ársreikningur Kópavogsbæjar 2025

Lagður fram fullgerður ársreikningur Kópavogsbæjar, stofnana og fyrirtækja bæjarins fyrir árið 2025 og tilbúnn til endurskoðunar. Bæjarráð frestaði málinu á fundi sínum 14.04.2026.

Kynning og umræður.

Gestir viku af fundi kl. 9:36.

Fundarhlé hófst kl. 9:37, fundi fram haldið kl. 10:59

Bæjarráð samþykkir ársreikning Kópavogsbæjar, stofnana og fyrirtækja bæjarins fyrir árið 2025 með fjórum atkvæðum og vísar honum til endurskoðunar og afgreiðslu bæjarstjórnar.


Bókun:

"Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær án lóðasölu. Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Kópavogs vekja athygli á að hefðbundinn rekstur bæjarins stendur ekki undir sér. Samkvæmt ársreikningi virðist reksturinn skila afgangi upp á 4,2 milljarða króna. Raunin er hins vegar sú að reksturinn 2025 skilar 406 milljóna króna halla. Jákvæð niðurstaða byggist ekki á sjálfbærum rekstri heldur á 4,6 milljarða króna tekjum af sölu byggingarréttar. Samtals er halli af rekstri bæjarins á þessu kjörtímabili um 3 milljarðar króna, ef lóðatekjur eru frátaldar.

Sala lóðarréttindanna í Vatnsendahvarfi verður ekki endurtekin. Tekjur af lóðasölu eru ófyrirsjáanlegar og geta aldrei tryggt traustan daglegan rekstur sveitarfélagsins. Til þess þarf að gæta ábyrgðar; rekstrartekjur og fyrirséðar tekjur eiga að standa undir rekstrarútgjöldum. Það hefur ekki verið raunin hjá Kópavogsbæ. Ekki er gert ráð fyrir tekjum af lóðasölu í fjárhagsáætlun. Þess í stað er látið í veðri vaka að hagkvæmni í rekstri skili þeim afgangi sem innan hvers árs verður til vegna lóðasölu.

Fjárfestingarstig bæjarins hefur frá 2024 hækkað um 2.3 milljarða króna og ekki fást upplýsingar um framgang og framúrkeyrslu einstakra verkefna þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir. Veltufé frá rekstri er 8% lægra en áætlun gerði ráð fyrir. Öfugþróun þessa kjörtímabils, veikur undirliggjandi rekstur samhliða miklum fjárfestingum, kallar á skýra stefnu og ábyrgari fjármálastjórn.

Fulltrúar minnihlutans telja mikilvægt að:

- jafnvægi náist í rekstri án þess að treysta verði á tekjur af lóðasölu

- endurmeta forgangsröðun fjárfestinga og gera fjárfestingaráætlun

- tryggja að framkvæmd verkefna sé innan áætlana

Það er ekki sjálfbært að treysta á sölu eigna til að gefa mynd jákvæðrar niðurstöðu í rekstri. Það er engum til gagns að draga upp ófullkomna og fegraða mynd til að leyna stöðu sem er grafalvarleg. Kópavogsbúar eiga betra skilið."

Helga Jónsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir


Bókun:

"Árin 2024 og 2025 eru tvö bestu rekstrarár Kópavogs í 18 ár. Sterk staða bæjarins birtist skýrt í ársreikningi síðasta árs og er afrakstur markvissrar forgangsröðunar og ábyrgra ákvarðana í rekstri. Rekstrarniðurstaðan er jákvæð um 4,6 milljarða króna og þegar búið er að leiðrétta fyrir sölu lóðaréttinda er rekstur samstæðunnar að skila 4,8 milljörðum króna. Það er því einfaldlega rangt að halda því fram að daglegur rekstur sé ekki sjálfbær.

Fjárhagsleg staða bæjarins heldur áfram að styrkjast. Heildarskuldir og skuldbindingar lækka að raunvirði og skuldahlutfall fer lækkandi þrátt fyrir miklar og nauðsynlegar fjárfestingar í leik- og grunnskólum og öðrum innviðum. Það er lykilatriði í huga meirihlutaflokkanna að uppbygging samfélagsins fari fram án þess að vegið sé að sjálfbærni sveitarfélagsins.

Ávinningi af góðum rekstri hefur verið skilað í formi lægri skatta en fasteignagjöld hafa lækkað að raunvirði á kjörtímabilinu og eru þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu. Þetta stuðlar að stöðugleika í rekstri og skilar raunverulegum ábata til íbúanna."

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Björg Baldursdóttir

Andri S. Hilmarsson


Bókun:

"Það er auðvelt að berja sér á brjóst þegar 4,6 milljarðar króna vegna eignasölu í formi byggingarréttar eru kynntir sem hagkvæmni í rekstri. Ekki liggur fyrir í fjárhagsáætlunum Kópavogsbæjar til hvaða viðfangsefna ráðstafa á ávinningi af sölu byggingarréttar.  Ekki er heldur hægt að rekja það gegnum ársreikninginn. Ítrekaðar fyrirspurnir hafa ekki skilað svörum. Þetta á ekki bara við árið 2025 heldur allt kjörtímabilið. Veltufé frá rekstri Kópavogsbæjar dugar varla fyrir helmingi fjárfestinga og þá er ótaldar afborganir lána sem kalla á lántöku til framtíðar. Því er reksturinn ósjálfbær með öllu."

Helga Jónsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir


Bókun:

"Árangurinn af góðum rekstri er augljós og birtingarmyndirnar eru margar. Afkoman er jákvæð og heildarskuldir halda áfram að lækka."

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Björg Baldursdóttir

Andri S. Hilmarsson


Bókun:

"Á fundi bæjarráðs 12. mars 2026 lögðu undirritaðar fram fyrirspurn um innstreymi í bæjarsjóð Kópavogs vegna byggingarréttargjalda og annarra lóðagjalda frá upphafi kjörtímabils. Enn hefur ekkert svar verið lagt fyrir bæjarráð þrátt fyrir ítrekaða eftirgrennslan og áminningar. Því er beint til bæjarstjóra að svar verði látið í té án frekari dráttar enda er um að ræða lögmæta, málefnalega og mikilvæga fyrirspurn, sem hefur grundvallarþýðingu í umfjöllun og umræðu um ársreikning og í samanburði á fjárhagsáætlunum og ársreikningum. Ekki er við það unandi að svar sem einfalt ætti að vera að keyra út úr bókhaldi bæjarins sé ekki veitt."

Helga Jónsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir


Bókun:

"Þetta má lesa úr ársreikningi. Meirihlutinn telur ekkert því til fyrirstöðu að umbeðnar upplýsingar verði teknar saman og lagðar fram núna þegar ársreikningur liggur fyrir."

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Björg Baldursdóttir

Andri S. Hilmarsson


Theódóra S. Þorsteinsdóttir vék af fundi kl. 10:53.

03

Sólarhvarf 5. Afturköllun lóðar

Frá umhverfissviði, dags. 13.04.2026, lagt fram erindi til bæjarráðs varðandi afturköllun lóðarinnar Sólarhvarf 5.

Umræður.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að heimila að afturkalla lóðarúthlutun fyrir einbýlishúsalóðinni að Sólarhvarfi 5 og að lóðin verði auglýst aftur til úthlutunar.

04

Vogatunga 27A. Beiðni um undanþágu frá kvöð vegna sölu á fasteign.

Frá umhverfissviði lögð fram umsögn um beiðni um undanþágu frá kvöð vegna sölu á fasteign að Vogatungu 27a.

Umræður.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að hafna beiðni um undanþágu frá kvöð vegna sölu á fasteigninni Vogatungu 27a.

05

Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026

Lagður fram viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2026. Viðaukinn er vegna endurnýjunar tennisvalla við Tennishöllina.

Umræður.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur framlagaðn viðauka nr. 1.

Fundarhlé hófst kl. 11:52, fundi fram haldið kl. 12:16

Bókun:

"Útgjöld að fjárhæð 48 milljónir króna sem lögð eru til í viðaukanum til endurgerðar tennisvalla hefðu átt að vera ljós við fjárhagsáætlunargerð og vera hluti af bindandi fjárhagsáætlun 2026. Hér er lagt til að fjármagna það með því að fresta útgjöldum vegna skóla í Vatnsendahvarfi. Væntanlega þarf að gera ráð fyrir þeim útgjöldum í fjárhagsáætlun 2027. Ekki er í þessum viðauka fullnægt skilyrðum um tilfærslu milli verkefna í fjárfestingaráætlun heldur er um hreina viðbót að ræða. Minnt er á að með tillögu um viðauka skal fylgja minnisblað um tillöguna og hvaða áhrif hún hefur á samþykkta fjárhagsáætlun. Slíkar skýringar fylgja ekki. Ennfremur er minnt á að samkvæmt reglugerð á sveitarstjórn á að setja sérstakar reglur um heimildir vegna tilfærslu á milli launakostnaðar og annars rekstrarkostnaðar og millifærslu milli deilda. Þetta á jafnframt við um fjárfestingu og tilfærslu milli verkefna. Þrátt fyrir umræður um nauðsyn þessa í bæjarráði hafa engar tillögur um slíkar reglur verið lagðar fyrir af hálfu bæjarstjóra og stjórnsýslunnar."

Helga Jónsdóttir


Bókun:

"Það er ekki verið að fresta útgjöldum vegna skólans sem er í undirbúningi. Forhönnun og samráðsferli er í fullum gangi en ljóst að ekki næst að fjárfesta fyrir alla fjárhæðina í fjárhagsáætlun á þessu ári."

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson

Björg Baldursdóttir


Bókun:

"Bókun meirihlutans staðfestir að útgjöldum vegna skólans í Vatnsendahvarfi er frestað til fjárhagsáætlunar næsta ár."

Helga Jónsdóttir

06

Aðalfundur betri samgangna ohf 2026

Frá Betri samgögnum ohf. lagt fram fundarboð vegna aðaðfundar sem haldinn verður 29. apríl kl.15:00.

Lagt fram.

07

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 440. fundur frá 27.03.2026

Fundargerð í 12 liðum.

Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

08

Innkaupanefnd - 16. fundur frá 13.04.2026

Lagt fram.

Gestur vék af fundi kl. 11:41


8.1 - 2402380 - Stúka HK Kórinn

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar dags. 10.4.2026 lögð fram beiðni um heimild til samninga vegna samkeppnisviðræðna um byggingu á nýrri stúku við Kórinn. Lagt fram til ákvörðunar.

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 10.4.2026 er lögð fram til ákvörðunar beiðni um heimild til samninga vegna samkeppnisviðræðna um byggingu á nýrri stúku við Kórinn.

Umræður og skýringar.

Samþykkt er með fjórum atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur.

Gestur víkur af fundi kl. 15:45.

Umræður.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum umbeðna heimild til samninga og vísar málinu til staðfestingar bæjarstjórnar.


09

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 23. fundur frá 16.03.2026

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.

Ásdís Kristjánsdóttir vék af fundi kl. 11:47.

10

Öldungaráð - 30. fundur frá 18.03.2026

Fundargerð í fimm liðum.

Lagt fram.

11

Velferðar- og mannréttindaráð - 16. fundur frá 13.04.2026

Fundargerð í sautján liðum.

Lagt fram.


11.10 - 26011311 - Breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð

Breytingar á reglum lagðar fram til afgreiðslu.

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum framlagðar breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.



11.11 - 26011302 - Breytingar á reglum um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa

Breytingar á reglum lagðar fram til afgreiðslu.

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á reglum um styrki til náms, verkæra- og tækjakaupa og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum framlagðar breytingar á reglum um styrki til náms, verkæra- og tækjakaupa og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.