Menntaráð - 162. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Hanna Carla Jóhannsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllHanna Carla Jóhannsdóttir - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Hildur Karen Sveinbjarnardóttir - aðalmaður
- Jónas Haukur Thors Einarsson - aðalmaður
- Hjördís Einarsdóttir - aðalmaður
- Björn Þór Rögnvaldsson - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
- Tryggvi Felixson - aðalmaður
- María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristgerður Garðarsdóttir - aðalmaður
- Karen Rúnarsdóttir - aðalmaður
- Sigrún Bjarnadóttir - aðalmaðurBoðaði forföllSigrún Bjarnadóttir - vara áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
Starfsmenn
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Ingibjörg Ýr Pálmadóttir - starfsmaður menntasviðs
Ritari
- Ingibjörg Ýr Pálmadóttir
Dagskrá fundar
Minnisblað um viðhald húsnæðis Snælandsskóla lagt fram.
Tillaga að svari menntaráðs við erindi skólaráðs Snælandsskóla vegna viðhalds húsnæðis lögð fram til samþykktar.
Asthildur Helgadóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs, gerði grein fyrir viðhaldi á húsnæði Snælandsskóla. Ásthildi er þökkuð góð yfirferð yfir viðhaldsverkefni í skólanum.
Umræður.
Tillaga að svari menntaráðs við erindi skólaráðs Snælandsskóla er samþykkt með áorðnum breytingum.
Ásthildur Helgadóttir víkur af fundi kl. 17:05
Kynning á þróun innra mats í leikskólum Kópavogs.
Menntaráð þakkar Amöndu K. Ólafsdóttur, skrifstofustjóra á menntasviði og Ingunni Mjöll Birgisdóttur, verkefnastjóra á menntasviði fyrir góða kynningu á þróun stafræns innra mats í leikskólum Kópavogs.
Menntaráð fagnar þessum breytingum á vinnu við innra mat í stofnunum menntasviðs.
Umræður.
Amanda K. Ólafsdóttir og Ingunn Mjöll Birgisdóttir víkja af fundi kl. 17:32
Kynning styrkþega á verkefnum sem fengu styrk úr forvarnasjóði Kópavogs 2025.
Kynningar lagðar fram.
Menntaráð þakkar Aroni Brink, ráðgjafa ungmenna í Molanum, Hafdísi Helgadóttur, rithöfundi, Hrönn Valgeirsdóttur, leikskólakennara og Victori Berg Guðmundssyni, deildarstjóra frístundadeildar, fyrir hönd Nikulás Árna Þorkelssonar, forstöðumanns félagsmiðstöðvarinnar Pegasus, fyrir góðar kynningar á þeim verkefnum sem fengu úthlutað styrk úr Forvarnarsjóði Kópavogs 2025.
Umræður.
Victor Berg Guðmundsson, deildarstjóri fristundadeildar, Aron Brink, ráðgjafi ungmenna í Molanum, Hafdís Helgadóttir, rithöfundur og Hrönn Valgeirsdóttir, leikskólakennari, víkja af fundi kl. 18:15
Erindi tekið inn með afbrigðum og lagt fram til kynningar og umræðu.
Umræður.
Menntaráð hvetur menntasvið til að fara yfir viðurkenningar Kópsins 2026 og tilnefna til íslensku menntaverðlaunanna, eftir því sem við á.