Hafnarbraut 25. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 26061578
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 32. fundur
Lögð fram umsókn M3 studio arkitekta dags. 10. júní 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 25 við Hafnarbraut um breytingu á deiliskipulagi Kársneshafnar. Í breytingunni felst að byggð verði fjögurra hæða fjölnota bygging með 54 íbúðum, verslunar- og þjónusturými á jarðhæð, bílageymslum í kjallara og á 1. hæð auk sameiginlegs garðrýmis ofan á 1. hæð. Breytingartillögunni fylgir skýringahefti dags. 18. maí 2026 og dagsbirtugreiningar ódags. Byggingarmagn hækkar úr 1,038 m² í 10,575 m², nýtingarhlutfall ofanjarðar verður 2,28 og heildarfjöldi bílastæða verður 177.
Helgi Már Hallgrímsson arkitekt og Gísli Bjarnhéðinsson, fulltrúi lóðarhafa, gerðu grein fyrir erindinu.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Bókun:
„Miðflokkurinn harmar þá ,,Reykjavíkurvæðingu" sem nú á sér stað í Kópavogi með gjaldtöku á bílastæðum í bílakjöllurum við íbúðarhús, auk þess sem framboðið á bílastæðum við íbúðabyggð er verulega ábótavant. Það er miður að nú skuli vera að raungerast það sem Miðflokkurinn varaði ítrekað við í kosningabaráttunni.
Með tilkomu gjaldskyldu í íbúðar- og verslunar byggingum mun ökutækjum í auknum mæli verða lagt í nærliggjandi götum þar sem engin gjaldskylda er. Þessi þróun er varhugaverð og ljóst er að gjaldskylda mun leiða til þess að ásókn í stæði innan íbúðargatna eykst jafnt á Kársnesinu, sem í og við Hamraborg og Smáralind.“
Beitir Ólafsson.
Bókun:
„Fulltrúar Samfylkingar samþykkja að vísa erindinu til umsagnar skipulagsfulltrúa. Nú þegar er gert ráð fyrir miklu byggingarmagni á vestanverðu Kársnesi og við Kársneshöfn. Við teljum mikilvægt að gæta hófs í frekari þéttingu byggðar á svæðinu þannig að hún komi ekki niður á lífsgæðum íbúa hverfisins. Huga þarf sérstaklega að umferðarflæði og aðkomu að hverfinu, sem og uppbyggingu innviða.“
Eydís Inga Valsdóttir og Orri Thor Eggertsson.
Fundarhlé kl. 16:20, fundi fram haldið kl. 16:35.
Bókun:
„Gagnrýni fulltrúa Miðflokksins stingur í stúf í ljósi þess að þarna er um að ræða reit sem var sérstaklega eyrnamerktur bílastæðahúsi til þess að fjölga bílastæðum á Kársnesi, í samræmi við ákall íbúa á svæðinu. Þess utan er bókunin með öllu ótímabær enda málið eingöngu til kynningar í dag og málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa, en af bókuninni mætti ætla að afgreiðsla lægi fyrir.“
Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Kristinn Dagur Gissurarson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir og Guðmundur Jóhann Jónsson.