Skipulags- og umhverfisráð - 38. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Eydís Inga Valsdóttir - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - formaður
- Andri Steinn Hilmarsson - varaformaður
- Árnína Steinunn Kristjánsdóttir - aðalfulltrúi
- Guðmundur Jóhann Jónsson - aðalfulltrúi
- Kristinn Dagur Gissurarson - aðalfulltrúi
- Beitir Ólafsson - áheyrnarfulltrúi
- Pétur Björgvin Sveinsson - áheyrnarfulltrúi
- Hákon Gunnarsson - aðalfulltrúi
Starfsmenn
- Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
- Ásthildur Helgadóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Andrea Kristinsdóttir - verkefnastjóri
- Harri Ormarsson - lögfræðingur
Ritari
- Andrea Kristinsdóttir
Dagskrá fundar
Skipulags- og umhverfisráð - 37. fundur frá 19.10.2026.
Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
Lögð fram að nýju umsókn M3 studio arkitekta dags. 10. júní 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 25 við Hafnarbraut um breytingu á deiliskipulagi Kársneshafnar. Í breytingunni felst að byggð verði fjögurra hæða fjölnota bygging með 50 íbúðum, verslunar- og þjónusturými á jarðhæð, bílageymslum í kjallara og á 1. hæð auk sameiginlegs garðrýmis ofan á 1. hæð. Breytingartillögunni fylgir skýringahefti dags. 18. maí 2026 og dagsbirtugreiningar ódags. Byggingarmagn eykst úr 1.038 m² í 10.575 m², nýtingarhlutfall ofanjarðar verður 2,28 og heildarfjöldi bílastæða verður 177.
Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 17. ágúst 2026 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2026 ásamt uppfærðri tillögu dags. 29. október 2026.
Samþykkt að framlögð umsókn um breytingu á deiliskipulagi dags. 10. júní 2026 með breytingum dags. 29. október 2026 verði unnin áfram í samræmi við ábendingar í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2026.
Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 27 við Hafnarbraut dags. 11. febrúar 2026 um að fallið verði frá kröfu rammahluta aðalskipulags um að lóðir nr. 25 og 27 við Hafnarbraut verði deiliskipulagðar sem ein heild og að lóðarhafa verði veitt heimild til að hefja vinnu við deiliskipulag lóðarinnar. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 7. september 2026 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2026 samþykkt.
Lögð fram að nýju fyrirspurn Félagsstofnunar stúdenta dags. 1. júlí 2026 um uppbyggingu á stúdentagörðum á reit 4 á vesturhluta Kársness. Fyrirspurninni fylgja skissur unnar af Andrúm arkitektum dags. í júlí 2026 að mögulegri uppbyggingu fjögurra, fjögurra hæða húsa með um 144 einstaklingsíbúðum, samtals 7.350 m² að flatarmáli. Ekki er gert ráð fyrir bílastæðum á lóðinni. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 17. ágúst 2026 var fyrirspurninni vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2026 samþykkt.
Lögð fram að nýju fyrirspurn Hjalta Brynjarssonar arkitekts dags. 1. október 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 10-32 við Roðahvarf um fjölgun íbúða úr 73 í 97 á lóðunum tveimur. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 19. október 2026 var fyrirspurnin lögð fram ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2026, afgreiðslu var frestað.
Fundarhlé hófst kl. 15:55, fundi fram haldið kl. 16:07.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2026.
Lögð fram að nýju fyrirspurn Hjalta Brynjarssonar arkitekts dags. 7. október 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 25-33 við Hallahvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst fjölgun íbúða um þrjár, úr 33 í 36. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 19. október 2026 var fyrirspurnin lögð fram ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2026, afgreiðslu var frestað.
Jákvætt að framlögð fyrirspurn verði unnin áfram.
Lögð fram umsókn Kristrúnar Lárusdóttur Hunter arkitekts dags. 21. ágúst 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 5 við Brekkuhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að lóðinni verði skipt upp í sex lóðir fyrir þrjú parhús á tveimur hæðum í stað einbýlishúss. Nýtingarhlutfall lóða verður frá 0.2 til 0,33. Tvö bílastæði verða á hverri lóð. Uppbyggingu á lóð verður áfangaskipt, núverandi hús mun víkja við uppbyggingu seinni áfanga. Uppdrættir dags. 28. október 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 27. október 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. október 2026.
Samþykkt með vísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð umsókn um breytingu á deiliskipulagi verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
08
Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa í skipulags- og umhverfisráði Beitis Ólafssonar um lóðir í Vatnsendahvarfi.
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Beitis Ólafssonar dags. 1. október 2026 um lóðir í Vatnsendahvarfi. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 5. október 2026 var fyrirspurninni vísað til umsagnar umhverfissviðs. Einnig er lögð fram umsögn umhverfissviðs dags. 29. október 2026.
Lagt fram.
Bókun:
"Miðflokkurinn þakkar fyrir upplýsingar en telur að draga megi dóm af nýafstöðnu úthlutunarferli og telur mikilvægt að dreginn verði lærdómur af þeim álitamálum sem upp komu, með það að markmiði að bæta ferla og tryggja skilvirkni í framtíðinni.
Vanda þarf til verka þegar kemur að upplýsingagjöf til umsækjanda um lóðir. Ef vafi leikur á túlkun deiliskipulags á auglýsingatíma verður skipulagssvið að taka málið til formlegrar afgreiðslu áður en svarað er, en ekki eftir að úthlutun hefur farið fram. Einnig þarf að tryggja fyrirsjáanleika og gera áhættumat vegna tafa samstarfsaðila, t.d. Veitna.
Bærinn þarf að tryggja betri samhæfingu og eftir atvikum bindandi samkomulög við samstarfsaðila á fyrri stigum úthlutunar til að tryggja framgang innviðauppbyggingar. Þá ætti bærinn að gæta hófsemi í því að innheimta fullt byggingarréttargjald löngu áður en lóðir eru raunverulega tilbúnar, eða bjóða upp á sveigjanleika í greiðslum ef tafir verða á vegum bæjarins eða samstarfsaðilum hans.
Einnig þarf málsmeðferðartími leyfa að vera styttri, gagnsærri og skilvirkri, en það er lykilatriði til að koma í veg fyrir tafir á verkefnum og lágmarka hættu á að lóðum sé skilað. Setja þarf þetta ferli í nánari rýni og athuga hvort bæta þurfi við mannaforða og afgreiðslufundum, sérstaklega þegar bærinn er í jafn stórum uppbyggingarfasa og raun ber vitni."
Beitir Ólafsson
Bókun:
"Við teljum mikilvægt að lóðaúthlutanir byggist á skýrum skilmálum, vandaðri upplýsingagjöf og fyrirsjáanlegum ferlum. Eðlilegt er að reynslan af úthlutunarferlum sé nýtt til stöðugra umbóta í stjórnsýslu bæjarins.
Um leið er mikilvægt að greina á milli þeirra þátta sem eru á forræði bæjarins og þeirra sem heyra undir aðra aðila. Uppbygging nýrra hverfa er umfangsmikið samstarfsverkefni þar sem samhæfing skipulags, framkvæmda og innviðauppbyggingar skiptir miklu máli.
Ábendingar um afgreiðslutíma og verklag ber að skoða á grundvelli staðreynda og fyrirliggjandi upplýsinga, þannig að hægt sé að beina úrbótum þangað sem þeirra er raunverulega þörf.
Í því samhengi má benda á að af 146 úthlutuðum lóðum í Vatnsendahvarfi hefur tveimur verið skilað, í báðum tilvikum áður en sótt var um byggingarleyfi."
Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson, Kristinn Dagur Gissurarson.
Lagt fram yfirlit yfir fullnaðarafgreiðslur skipulagsfulltrúa Kópavogs. Fundir nr. 44 til 56 á tímabilinu 24. apríl 2026 til 27. október 2026.
Lagt fram.
Lögð fram áætlun um fundi skipulags- og umhverfisráðs árið 2027.
Samþykkt.
Fundarhlé hófst kl. 17:22, fundi fram haldið kl. 17:30.