Fyrirspurn bæjarfulltrúa Jónasar Más Torfasonar og Eydísar Ingu Valsdóttur um Kópavogslæk
Málsnúmer: 26061712
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 32. fundur
Lögð fram fyrirspurn bæjarfulltrúa Jónasar Más Torfasonar og Eydísar Ingu Valsdóttur, dags. 10. júní 2026, um ástand og úrbætur Kópavogslækjar. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 15. júní 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra umhverfismála. Lagt fram að nýju ásamt umsögn verkefnastjóra umhverfismála dags. 13. ágúst 2026.
Karen Jónasdóttir verkefnastjóri umhverfismála gerði grein fyrir erindinu.
Lagt fram.
Bókun:
„Fulltrúar Samfylkingar þakka fyrir skýr og greinargóð svör við fyrirspurn okkar um ástand Kópavogslækjar. Á sama tíma er ljóst að mikið verk er fyrir hendi til að lækurinn og útivistarsvæðið í kring komist í ásættanlegt horf. Viðvera krabbameinsvaldandi og stökkbreytandi efna yfir viðmiðunarmörkum og hækkuð gildi saurgerla í læknum er með öllu óásættanleg og ljóst að taka þarf þessa áskorun töluvert fastari tökum.
Fulltrúar Samfylkingar munu leggja til á næsta fundi skipulags- og umhverfisráðs að markviss aðgerðaáætlun verði mótuð til betrunar á vatnsgæðum Kópavogslækjar og að vinna við deiliskipulag vegna settjarna verði sett í hæsta forgang.
Jafnframt er ljóst að við það verður ekki unað að börnum sé leyft að leika í Kópavogslæk í góðri trú forráðamanna. Því telja undirrituð að Kópavogsbæ sé ekki annað stætt en að setja upp merkingar meðfram Kópavogslæk sem vara við mengun hans þar til ráðist hafi verið í úrbætur og mælingar endurspegla ásættanleg mörk efna og gerla.“
Eydís Inga Valsdóttir og Orri Thor Eggertsson.
02
Skipulags- og umhverfisráð - 30. fundur
Lögð fram fyrirspurn bæjarfulltrúa Jónasar Más Torfasonar og Eydísar Ingu Valsdóttur, dags. 10. júní 2026, um ástand og úrbætur Kópavogslækjar.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra umhverfismála.