Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Stöðvarhvarf 10, Skýjahvarf 11-19. Beiðni um heimild til framsals

Málsnúmer: 2606594

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3257. fundur

Frá umhverfissviði, dags. 08.06.2026, lögð fram beiðni um heimild til framsals á lóðunum Stövarhvarf 10 og Skýjahvarf 11-19.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Einars Jóhannesar Guðnasonar að heimila framsal á lóðunum Stöðvarhvarfi 10 og Skýjahvarfi 11-19 til verkefnafélagsins, Skýjahvarfs ehf.

Bókun:

"Miðflokkurinn telur það varhugavert að bæjarráð heimili framsal byggingarréttar aðeins ári eftir útboð án þess að sérstakar aðstæður liggi fyrir.

Úthlutunarskilmálar Vatnsendahvarfs voru skýrir og strangir með það að markmiði að tryggja jafnræði og koma í veg fyrir tilfærslur af þessu tagi. Þar segir að byggingarrétti sé úthlutað á nafn umsækjanda og að framsal eða veðsetning sé óheimil fyrir byggingarstig B2 nema með samþykki bæjarráðs.

Við úthlutunina voru jafnframt gerðar ítarlegar fjárhagslegar kröfur. Lögaðilar þurftu meðal annars að leggja fram lánsloforð eða fyrirvaralausa yfirlýsingu fjármálafyrirtækis um fjármögnun, staðfestingu á skilum opinberra gjalda og lífeyrissjóðsgjalda, búsforræðisvottorð og ársreikning með jákvæðri eiginfjárstöðu, áritaðan af löggiltum endurskoðanda án fyrirvara. Ekki liggur fyrir hvort félag nýs lóðarhafa uppfylli þessi skilyrði né eru varnir þess efnis að félag nýs lóðarhafa verði selt nýjum eigendum sem ekki uppfylla skilyrðin.

Það eru ekki fullnægjanleg rök að svona hafi þetta alltaf verið og að fylgja þurfi vondu fordæmi að eigin sögn. Telji bæjarráð þetta nauðsynlegan möguleika þá þurfa úthlutunarreglur að gera ráð fyrir honum.

Á þeim forsendum getur Miðflokkurinn ekki samþykkt framsalið."

Einar Jóhannes Guðnason


Bókun:

"Í þessu tilviki er ekki um eiginlega tilfærslu byggingarréttar til þriðja aðila að ræða. Á fundi bæjarstjórnar 3. júlí 2025 var samþykkt að úthluta lóðunum Stöðvarhvarfi 10 og Skýjahvarfi 11-19 til Tildru byggingarfélags ehf. Óskað er eftir að færa lóðirnar í félagið Skýjahvarf ehf., kt. 420323-0690, sem er í 100% eigu núverandi lóðarhafa. Endanlegt eignarhald er því óbreytt og sá aðili sem stóðst fjárhagslegar kröfur úthlutunarinnar stendur áfram að baki verkefninu. Jafnræði umsækjenda er á engan hátt raskað, enda fær enginn nýr aðili byggingarrétt sem ekki tók þátt í úthlutunarferlinu.

Um leið er áréttað að ekki er vikið frá úthlutunarskilmálum Vatnsendahvarfs hérna. Þvert á móti er verið að beita þeim eins og þeir eru orðaðir. Í skilmálunum segir berum orðum að framsal sé óheimilt fyrir byggingarstig B2 nema með samþykki bæjarráðs. Skilmálarnir gera þannig sjálfir ráð fyrir þeim möguleika að bæjarráð heimili framsal að undangengnu mati á hverju tilviki fyrir sig.

Með hliðsjón af framangreindu felst meirihlutinn á að heimila framsalið og telur það samrýmast bæði orðalagi og markmiðum úthlutunarskilmála Vatnsendahvarfs."

Andri Steinn Hilmarsson

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Guðmundur Jóhann Jónsson


Bókun:

"Að heimila undanþágu með samþykki bæjarráðs er varnagli en hér er verið að framfylgja fordæmi sem virðist orðið að reglu fremur en undantekningu. Reglurnar koma ekki í veg fyrir að félagið sem tekur við lóðinni geti fengið nýja eigendur."

Einar Jóhannes Guðnason


Bókun:

"Það eru oft og tíðum eðlilegar ástæður fyrir því að lóðir séu færðar í sérstakt eignarhaldsfélag, til þess að skapa bókhaldslega aðgreiningu og takmarka áhættu þróunaraðila, og er það alvanalegt í byggingargeiranum. Líkt og undirritaður fór yfir í umræðum í bæjarráði er hins vegar nauðsynlegt að girða fyrir að komist sé hjá kvöðum um samþykki bæjarráðs fyrir framsali lóða. Sömu kvaðir og gilda um framsal lóðar munu ekki gilda um framsal hlutafjár þess eignarhaldsfélags sem fær lóðina framselda. Mikilvægt er að bærinn tryggi að slíkar kvaðir haldi gildi sínu þótt þær séu færðar í annað félag á rekstrarlegum forsendum, svo sem með því að tryggja að samþykki bæjarráðs sé einnig áskilið vegna eigendaskipta á því félagi sem tekur við lóð frá upphaflegum lóðarhafa.

Til að tryggja fyrirsjáanleika telur undirritaður best að slíkum vörnum sé komið á með almennum hætti og greiðir því atkvæði með heimild til framsals í þessu máli, líkt og hefur verið gert hingað til í tilviki sambærilegra beiðna. Undirritaður mun hins vegar leggja áherslu á að brugðist sé við framangreindri glufu með almennum hætti og að virkni framsalskvaða sé tryggð í framtíðarmálum. Undirritaður bindur vonir við stuðning annarra fulltrúa bæjarráðs í þeirri viðleitni."

Jónas Már Torfason


Bókun:

"Undirrituð tekur undir bókun fulltrúa Samfylkingarinnar."

María Ellen Steingrímsdóttir