Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Stúdentagarðar á reit 4. Fyrirspurn.

Málsnúmer: 2607072

Ferill máls

01

Skipulags- og umhverfisráð - 32. fundur

Lögð fram fyrirspurn Félagsstofnunar stúdenta dags. 1. júlí 2026 um uppbyggingu á stúdentagörðum á reit 4 á vesturhluta Kársness. Fyrirspurninni fylgja skissur unnar af Andrúm arkitektum dags. í júlí 2026 að mögulegri uppbyggingu fjögurra, fjögurra hæða húsa með um 144 einstaklingsíbúðum, samtals 7.350 m² að flatarmáli. Ekki er gert ráð fyrir bílastæðum á lóðinni.

Heiður Anna Helgadóttir og Magnús Orri Einarsson frá Félagsstofnun stúdenta og Kristján Garðarsson arkitekt frá Andrúm arkitektum gerðu grein fyrir erindinu.

Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Bókun:

„Viðreisn fagnar þessari fyrirspurn og frumdrögum frá Félagsstofnun stúdenta og telur þetta samræmast skiplagi svæðisins, nálægð við háskólasvæðið og fyrirhugaða borgarlínu yfir Fossvogsbrú. Það yrði lyftistöng fyrir námsmenn að fá stúdentagarða reista á þessum stað á Kársnesi og skemmtileg viðbót fyrir svæðið.“

Hrannar Ásgrímsson

Bókun:

"Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna erindi Félagsstofnunar stúdenta. Lengi hefur verið kallað eftir uppbyggingu stúdentaíbúða í Kópavogi og aðilar sem byggja námsmannaíbúðir hafa ítrekað óskað eftir lóðum án árangurs. Nú liggur fyrir þessi tillaga frá Félagsstofnun Stúdenta um uppbyggingu á Kársnesi, við Öldu yfir Fossvog og í nálægð við háskólasvæðið. Við teljum mikilvægt að grípa þetta tækifæri og skapa svigrúm fyrir stúdentaíbúðir, jafnvel þó það kalli á endurskoðun annarra uppbyggingaráforma á svæðinu.“

Eydís Inga Valsdóttir og Orri Thor Eggertsson

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 50. fundur

Lögð fram fyrirspurn Félagsstofnunar stúdenta dags. 1. júlí 2026 um fjögur fjögurra hæða hús með um 144 einstaklingsíbúðum fyrir stúdenta á reit 4 á Vesturhluta Kársness. Gert er ráð fyrir að íbúðir verði 29 m² auk sameiginlegra rýma, samtals 7.350 m². Fyrirspurninni fylgja skissur frá Andrúm arkitektum dags. í júlí 2026

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.