Varðandi vegglistaverkið Sólarslóð-Sun Drive eftir Theresu Himmer
Málsnúmer: 2608128
Ferill máls
01
Menningar- og mannlífsnefnd - 16. fundur
Margrét Tryggvadóttir óskar eftir endurupptöku á fyrirspurn frá síðasta fundi varðandi vegglistaverkið Sólarslóð: "Ég óska eftir því að fyrirspurnin sé aftur tekin fyrir, hver nákvæmlega átti frumkvæði og hver veitti leyfi. Eins óska ég eftir afriti af tölvupóstum til listamannsins og samskiptum við Gerðarsafn og samninginn um verkið."
Lagt fram.
Bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar og Viðreisnar fordæma þá skipan bæjarstjóra að láta mála yfir verkið Sólarslóð eftir Theresu Himmer með kosningaáróðri.
Rangt er að verkið Sólarslóð hafi verið tímabundið listaverk til allt að þriggja ára. Samkvæmt samningi var Kópavogsbæ heimilt að fjarlægja verkið eftir þrjú ár ef bærinn treysti sér ekki til að viðhalda því. Verkið var alls ekki illa farið. Þá var verkið skráð í safneign Gerðarsafns eins og sjá má á vefsafni Landsbókasafns: https://vefsafn.is/is/20260302153045/https://gerdarsafn.kopavogur.is/safneign/
Margrét Tryggvadóttir
Ásgeir Þór Jónsson
Bókun:
Við undirrituð teljum framkomin gögn staðfesta að ákvörðun um breytta nýtingu veggjarins á Hálsatorgi hafi verið tekin á málefnalegum og réttum forsendum. Sólarslóð var tímabundið verk samkvæmt samningi frá 2019 og Kópavogsbæ var heimilt að fjarlægja það að þremur árum liðnum. Verkið var ekki hluti af listaverkaeign bæjarins og laut því ekki varðveisluskyldu Gerðarsafns. Áður en ákvörðun var framkvæmd var jafnframt kannað að engar samningsbundnar eða lagalegar hindranir væru fyrir hendi og listamaðurinn upplýstur um fyrirhugaða breytingu. Veggurinn er hluti af mannvirki á ábyrgð bæjarins og ákvörðun um nýtingu hans var tekin í tengslum við framkvæmdir og uppbyggingu á svæðinu.
Með vísan til framangreinds teljum við undirrituð að málið hafi verið upplýst með fullnægjandi hætti, því sé lokið og það þarfnist ekki frekari umræðu.
Guðný Svandís Guðjónsdóttir
Helga Guðrún Jónasdóttir
Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir
02
Menningar- og mannlífsnefnd - 15. fundur
Fyrirspurn frá Margréti Tryggvadóttur vegna vegglistaverksins Sólarslóð.
Lagt fram.
Bókun frá Margréti Tryggvadóttur fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúi Samfylkingarinnar fordæmir þann verknað bæjaryfirvalda að láta rómað útilistaverk víkja fyrir kosningaauglýsingu. Svarið vekur fleiri spurningar og óskar fulltrúinn eftir því að málið verði á dagskrá næsta fundar.
Ég óska eftir því að fyrirspurnin sé aftur tekin fyrir, hver nákvæmlega átti frumkvæði og hver veitti leyfi. Eins óska ég eftir afriti af tölvupóstum til listamannsins og samskiptum við Gerðarsafn og samninginn um verkið.