Velferðar- og mannréttindaráð - 20. fundur frá 14.09.2026
Málsnúmer: 2609008F
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1345. fundur
Fundargerð í ellefu liðum.
Lagt fram.
02
Bæjarráð - 3265. fundur
Fundargerð í ellefu liðum.
Lagt fram.
Bókun undir lið nr. 8.
"Fulltrúi Viðreisnar telur að þær upplýsingar sem fram koma í úrskurði Úrskurðarnefndar velferðarmála séu alvarlegar og kalli á pólitíska ábyrgð. Í úrskurðinum er rakið í sjónarmiðum kæranda að í svari lögmanns á skrifstofu bæjarritara hafi komið fram að málaflokkur fatlaðra barna væri ekki í forgangi hjá sveitarfélaginu og að bið eftir þjónustu stafaði af þeirri forgangsröðun. Slík forgangsröðun er að mati undirritaðrar óásættanleg.
Í þessu máli hafði þörf barnsins verið metin og þjónusta samþykkt, en tæpir átta mánuðir liðu þar til hún hófst. Á meðan versnaði staða barnsins svo að það var fært í hærri forgangsflokk. Þegar barn hefur verið metið í þörf fyrir þjónustu á það ekki að þurfa að bíða mánuðum saman eftir stuðningi. Fyrir barn eru átta mánuðir stór hluti af lífi þess og stuðningur á þeim tíma getur skipt verulegu máli."
María Ellen Steingrímsdóttir
Fundarhlé hófst kl. 11:30, fundi fram haldið kl. 12:14
Bókun:
"Það á við engin rök að styðjast að málaflokkur fatlaðra barna og einstalkinga sé ekki í forgangi hjá Kópavogsbæ. Ein vísbending þess efnis er að framlög til velferðarmála jukust um 36% á síðasta kjörtímabili, umtalsvert meira en til nokkurs annars málaflokks.
Bókun bæjarfulltrúa Viðreisnar dregur fram sjónarmið kæranda í því máli sem þar var til umfjöllunar. Rétt er að halda því til haga að niðurstaða Úrskurðarnefndar velferðarmála í þessu máli var Kópavogsbæ í vil."
Andri Steinn Hilmarsson
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Vignir Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Ásdís Kristjánsdóttir vék af fundi kl. 11:51.
Bókun:
"Það að niðurstaða úrskurðarnefndar hafi verið Kópavogsbæ í vil breytir ekki þeirri staðreynd að börn í Kópavogi bíða eftir þjónustu sem sveitarfélagið hefur þegar metið að þau þurfi og samþykkt að veita þeim og er þetta mál ekki einsdæmi. Aukning framlaga til málaflokksins segir heldur ekki ein og sér til um hvort fjármunir séu nægir eða þjónustan fullnægjandi. Raunverulegur mælikvarði hlýtur að vera hvort börn fái þá þjónustu sem þau þurfa þegar þau þurfa á henni að halda.
Það er verulegt áhyggjuefni að börn geti beðið mánuðum saman eftir samþykktri þjónustu. Í því máli sem undirrituð er að draga hér fram versnaði staða barnsins á biðtímanum svo að það færðist í hærri forgangsflokk. Það undirstrikar hversu miklu máli tíminn skiptir þegar börn eiga í hlut. Fulltrúi Viðreisnar telur því ekki nægjanlegt að vísa til aukinna heildarframlaga til málaflokksins. Ef börn sem hafa verið metin í þörf fyrir þjónustu og fengið hana samþykkta bíða mánuðum saman eftir að hún hefjist, þarf að bregðast við þeirri stöðu og tryggja að fjárveitingar og þjónustugeta sveitarfélagsins mæti raunverulegri þörf."
María Ellen Steingrímsdóttir
Bókun:
"Meirihlutinn tekur undir að mikilvægt sé að börn fái viðeigandi þjónustu eins fljótt og kostur er eftir að þörf hefur verið metin. Markvisst hefur verið unnið að styttingu biðlista og aukinni þjónustugetu í málaflokknum."
Andri Steinn Hilmarsson
Orri Vignir Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson