Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1345. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalfulltrúi
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - forseti
  • Guðmundur Jóhann Jónsson - aðalfulltrúi
  • Hildur Einarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Orri Vignir Hlöðversson - 2. varaforseti
  • Einar Jóhannes Guðnason - 1. varaforseti
  • Jónas Már Torfason - aðalfulltrúi
  • Eydís Inga Valsdóttir - aðalfulltrúi
  • María Ellen Steingrímsdóttir - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Önnur mál fundargerðir

01

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 452. fundur frá 11.09.2026

Fundargerð í 12 liðum.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.

Önnur mál fundargerðir

02

Bæjarráð - 3264. fundur frá 10.09.2026

Fundargerð í níu liðum.

Lagt fram.

Fundarhlé hófst kl. 17:58, fundi fram haldið kl. 18:20.

Önnur mál fundargerðir

03

Bæjarráð - 3265. fundur frá 17.09.2026

Fundargerð í 22 liðum.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

04

Forsætisnefnd - 259. fundur frá 17.09.2026

Fundargerð í þremur liðum.

Lagt fram.


4.2 - 2609816 - Boð til Bæjarstjórnar Kópavogs og fundatími bæjarstjórnarfundar 10. nóvember 2026

Frá Menntaskólanum í Kópavogi, lagt fram erindi þar sen bæjarstjórn er boðið í hádegisverð og kennslustund í skólanum þann 10. nóvember 2026.

Forsætisnefnd leggur til við bæjarstjórn að þiggja boð Menntaskólans í Kópavogi og að fundur bæjarstjórnar hefjist kl. 15:00 þann 10. nóvember n.k.

Bæjarstjórn samþykkir að fundur bæjarstjórnar þann 10. nóvember hefjist kl. 15:00.


Önnur mál fundargerðir

05

Skipulags- og umhverfisráð - 34. fundur frá 07.09.2026

Fundargerð í 12 liðum.

Lagt fram.


5.10 - 26051989 - Sunnubraut 29. Byggingarleyfisumsókn.

Lögð fram byggingarleyfisumsókn Helgu Guðrúnar Vilmundardóttur arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 29 við Sunnubraut. Sótt er um að 29,9 m² ósamþykkt bátaskýli verði breytt í íbúðarrými sem hluti af núverandi húsnæði. Ytra byrði hússins breytist, gluggum fjölgar, núverandi gluggar stækka og hurðum bætt við. Hæð hússins og lóðarmörk haldast óbreytt. Byggingarmagn eykst úr 356,2 m² í 386,1 m². Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,62 í 0,67. Uppdrættir dags. 5. febrúar 2026, uppfærðir 26. maí 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 16. júní til 17. júlí 2026, athugasemd barst. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. ágúst 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. ágúst 2026.

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 26. ágúst 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.



5.8 - 26061073 - Dimmuhvarf 9. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 9. júní 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9 við Dimmuhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að lóðinni er skipt í tvær lóðir fyrir parhús í stað einbýlishúss, tilfærsla á byggingarreit og verður nýtingarhlutfallið 0,55. Þrjú bílastæði verða á hvorri lóð. Uppdrættir dags. 9. júní 2026, uppfærðir 7. júlí 2026 og 1. september 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10. ágúst 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. september 2026.
Ester Anna Ármannsdóttir verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið.

Samþykkt að framlögð umsókn um breytingu á deiliskipulagi verði auglýst með vísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.



5.9 - 26011426 - Vatnsendablettur 1B. Breyting á aðal- og deiliskipulagi.

Lögð fram að nýju umsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 16. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 1B og 510 við Vatnsendablett og landeiganda um breytingu á aðal- og deiliskipulagi. Í breytingunni felst breytt landnotkun á opnu svæði skv. aðalskipulagi sem afmarkast af Elliðavatni til norðurs, lóðinni Kríunes til austurs, lóðunum við Vatnsendablett 1A og 716 til 718 til suðurs og lóðunum við Vatnsendablett 710 til 712 til vesturs í íbúðabyggð. Gert er ráð fyrir 18 nýjum einbýlishúsalóðum á svæðinu. Umsókninni fylgir greinargerð dags. 30. desember 2025, uppdráttur og skýringarmyndir dags. 11. desember 2024, hönnunaráætlun ódags. og framkvæmdaáætlun ódags. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 17. ágúst 2026 var afgreiðslu málsins frestað. Einnig er kögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2026 og erindi lóðarhafa dags. 24. ágúst 2026.

Fundarhlé hófst kl. 17:19 , fundi fram haldið kl. 17:58.

Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2026 með þremur atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur og Guðmundar Jóhanns Jónssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Andri Steinn Hilmarsson, Kristinn Dagur Gissurarson, Orri Thor Eggertsson og Eydís Inga Valsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Bókun:
„Framlögð tillaga er umtalsverð þétting á svæði sem er skilgreint í aðalskipulagi sem opið svæði og kallar því á heildarskoðun á svæðinu. Þó er nauðsynlegt koma gatnagerð og tengdum innviðum í betra horf á svæðinu. Undirrituð leggja áherslu á mikilvægi þess að Kópavogsbær haldi áfram samtali við landeigenda hvað varðar gatnagerð og nauðsynlegu viðhaldi á tengdum innviðum. Telja undirrituð einnig ástæðu til að skoða möguleikann á að hraða aðgerðum fyrir veturinn sem tryggja umferðaröryggi á svæðinu, s.s. götulýsingu“
Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Hjördís Ýr Johnson.

Bókun:
„Miðflokkurinn harmar að umsókn landeiganda og lóðarhafa á Vatnsendabletti sé hafnað. Sú niðurstaða skýtur skökku við stefnu Sjálfstæðisflokksins, sem skilgreinir eignarrétt sem grundvallarmannréttindi sem beri að styrkja og vernda. Miðflokkurinn telur að eðlilegra hefði verið að leyfa málinu að fara áfram í skipulagsferli, auglýsa tillöguna, kalla eftir umsögnum og meta umhverfisáhrif hennar eftir því sem við á. Sérstaklega er óviðunandi að höfnuninni fylgi hvorki tillaga um næstu skref né tímasett áætlun um þá heildstæðu stefnumótun sem vísað er til. Málið hverfur ekki við höfnun og sú staða sem íbúar búa við hverfur ekki heldur.
Fyrir liggur að gatnagerð, viðhaldi gatna og umferðaröryggi á svæðinu er ábótavant og að unnið hefur verið að lausnum í samráði við Kópavogsbæ. Þá hefur þegar farið fram umfangsmikil vinna við hönnun gatna, fráveitu og annarra innviða, auk þess hafa svo gott sem allir íbúar á svæðinu lýst stuðningi við fyrirhugaðar framkvæmdir. Miðflokkurinn telur því að bæjaryfirvöld verði nú að leggja fram raunhæf næstu skref og tímasetta leið til lausnar. Það er ekki boðlegt að hafna fyrirliggjandi leið án þess að geta jafnframt sagt íbúum hvaða leið eigi þá að fara og hvenær raunhæf lausn muni liggja fyrir.“
Einar Jóhannes Guðnason

Bókun:
„Fulltrúar Samfylkingarinnar og Viðreisnar gera fyrirvara við ákvörðun meirihlutans um að hafna umsókn um breytingu á aðal- og deiliskipulagi á Vatnsendabletti 1B.
Málið hefur verið lengi til meðferðar og mikil vinna verið lögð í undirbúning þess, bæði af hálfu umsækjenda og Kópavogsbæjar. Ljóst er að umtalsverðum tíma og fjármunum hefur verið varið í vinnslu málsins áður en komist var að þeirri niðurstöðu að hafna umsókninni.
Þörf er á úrbótum á svæðinu, meðal annars hvað varðar gatnagerð, lýsingu, fráveitu og umferðaröryggi. Við gagnrýnum að málið hafi fengið að vera svo lengi í vinnslu án þess að skýr niðurstaða liggi fyrir eða fullreynt sé hvort unnt væri að ná ásættanlegri niðurstöðu í samtali við umsækjendur og íbúa svæðisins.
Vandaðri og markvissari málsmeðferð hefði getað komið í veg fyrir að svo miklum tíma og fjármunum yrði varið án niðurstöðu. Það er sérstaklega ámælisvert í ljósi þess að brýn úrlausnarefni á svæðinu, þar á meðal varðandi umferðaröryggi barna og uppbyggingu innviða, eru enn óleyst og ekki liggur fyrir hvenær ráðist verður í nauðsynlegar úrbætur.
Eydís Inga Valsdóttir, Orri Thor Eggertsson og Pétur Björgvin Sveinsson.

Bókun:
„Við ítrekum fyrri bókun að ráðist verði í aðgerðir til að tryggja umferðaröryggi fyrir íbúa á svæðinu og að farið verði í heildarendurskoðun á því.“
Árnína Steinunn Kristjánsdóttir , Guðmundur Jóhann Jónsson og Hjördís Ýr Johnson.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 6 atkvæðum, gegn atkvæði Einars Jóhannesar Guðnasonar, Jónasar Más Torfasonar, Eydísar Ingu Valsdóttur og Maríu Ellenar Steingrímsdóttur og hjásetu Andra Steins Hilmarssonar.


Önnur mál fundargerðir

06

Velferðar- og mannréttindaráð - 20. fundur frá 14.09.2026

Fundargerð í ellefu liðum.

Lagt fram.


6.2 - 26081401 - Reglur um húsnæði fyrir fatlað fólk

Nýjar reglur um húsnæði fyrir fatlað fólk lagt fram til afgreiðslu

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti drög að nýjum reglum um húsnæði fyrir fatlað fólk og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlögð drög að nýjum reglum um húsnæði fyrir fatlað fólk.



6.3 - 26081403 - Breytingar á reglum um akstursþjónustu fatlaðs fólks

Drög að breytingum á reglum um akstursþjónustu fatlaðs fólks lagt fram til afgreiðslu

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti drög að breytingum á reglum um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlögð drög að breytingum á reglum um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk.


Önnur mál fundargerðir

07

Menntaráð - 165. fundur frá 15.09.2026

Fundargerð í sex liðum.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

08

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 24. fundur frá 09.09.2026

Fundargerð í þremur liðum.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

09

Innkaupanefnd - 19. fundur frá 07.09.2026

Fundargerð í þremur liðum.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

10

Fundargerð 1001. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28.08.2026

Fundargerð 1001. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28.08.2026.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

11

Fundargerð 632. fundar stjórnar SSH frá 07.09.2026

Fundargerð 632. fundar stjórnar SSH frá 07.09.2026.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

12

Fundargerð 56. eigendafundar stjórnar Strætó frá 07.09.2025

Fundargerð 56. eigendafundar stjórnar Strætó frá 07.09.2025.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

13

Fundargerð 426. fundar stjórnar Strætó frá 28.08.2026

Fundargerð 426. fundar stjórnar Strætó frá 28.08.2026.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

14

Fundargerð 56. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 07.09.2026

Fundargerð 56. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 07.09.2026.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

15

Fundargerð 531. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 24.08.2026

Fundargerð 531. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 24.08.2026.

Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

16

Fundargerð 532. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 11.09.2026

Fundargerð 532. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 11.09.2026.

Lagt fram.

Kosningar

17

Kosningar í lýðheilsu - og íþróttanefnd 2026-2030

Kosning áheyrnarfulltrúa í lýðheilsu - og íþróttanefnd 2026-2030.

María Ellen Steingrímsdóttir er kjörin áheyrnarfulltrúi í lýðheilsu - og íþróttanefnd í stað Arnars Grétarssonar.

Kosningar

18

Kosningar í skipulags - og umhverfisráð 2026-2030

Kosning aðalfulltrúa og varafulltrúa í skipulags- og umhverfisráð.

Hákon Gunnarsson er kjörinn aðalfulltrúi í stað Orra Thors Eggertssonar.

Orri Thor Eggertsson er kjörinn varafulltrúi í stað Björns Þórs Rögnvaldssonar.

Kosningar

19

Kosningar í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins 2026-2030

Kosning varafulltrúa í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins 2026-2030.

Hákon Gunnarsson er kjörinn varafulltrúi í stað Jónasar Más Torfasonar.