Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarhátíð Kópavogs 2027

Málsnúmer: 26092035

Ferill máls

01

Menningar- og mannlífsnefnd - 17. fundur

Tillaga meirihlutans um að veita styrk til bæjarhátíðar í Kópavogi sumarið 2027.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir með fjórum atkvæðum gegn atkvæði Margrétar Tryggvadóttur að ráðstafa 7.000.000 kr. úr sjóði nefndarinnar til bæjarhátíðar í Kópavogi árið 2027. Styrkveitingin er með fyrirvara um samþykki fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar fyrir árið 2027.


Bókun:

Tillaga Kópavogsbæjar um bæjarhátíð er óljós og án fjárhagsáætlunar og fellur því ekki að reglum sjóðsins. Engin skýr dagskrá fylgir tillögunni og engin fjárhagsáætlun eins og kveðið er á um í reglum sjóðsins og því telur fulltrúi Samfylkingarinnar að hún sé ótæk til afgreiðslu.

Þá er þetta gríðarleg blóðtaka af takmörkuðum fjármunum menningarsjóðsins og lítið eftir fyrir almenna umsækjendur. Samkvæmt reglum menningarsjóðsins eru tekjur hans 0,5% af 6,7% útsvarsstofni nema annað sé ákveðið við gerð fjárhagsáætlunar. Sjóðurinn var skorinn niður eftir hrun og hefur ekki náð þessu marki síðan. Löngu tímabært er að sjóðurinn sé leiðréttur.

Margrét Tryggvadóttir

02

Menningar- og mannlífsnefnd - 16. fundur

Bæjarhátíð Kópavogs 2027.

Meirihluti menningar- og mannlífsnefndar samþykkir að efnt verði til nýrrar bæjarhátíðar í Kópavogi á næsta ári.

Nefndin óskar eftir heimild skrifstofu áhættu- og fjárstýringar til að ónýttar fjárheimildir í sjóði nefndarinnar við lok árs 2026 verði færðar milli ára og nýttar til undirbúnings og framkvæmdar hátíðarinnar árið 2027.