Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar um endurskoðun samgöngusáttmálans

Málsnúmer: 26093326

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3266. fundur

Frá bæjarfulltrúa Miðflokks, dags. 28.09.2026, lögð fram tillaga um endurskoðun Samgöngusáttmálans.

Bæjarráð hafnar tillögunni með fjórum atkvæðum gegn atkvæði Einars Jóhannesar Guðnasonar.

Bókun:

"Mikilvægt er að halda áfram nauðsynlegri uppbyggingu samgangna, þ.m.t. Borgarlínu, á höfuðborgarsvæðinu. Sú leið sem hér er lögð til hefur óhjákvæmilega í för með sér óvissu, tefur framkvæmdir og setur uppbyggingu á mikilvægum samgönguinnviðum í uppnám.

Samgöngusáttmálinn var uppfærður/endurskoðaður árið 2023-2024 og sífelld endurskoðun á samkomulaginu vinnur gegn þeirri festu sem er nauðsynleg til að tryggja framgang þessa samgönguinnviða verkefnis.

Varðandi fjármögnunina má benda á að ríkið getur fjármagnað sinn hluta með öðrum leiðum en flýti- og umferðargjöldum, s.s. með sölu ríkiseigna. Slíkar leiðir rúmast innan þeirra fjármögnunarmöguleika sem standa ríkinu til boða til að fjármagna hlut ríkisins í verkefninu."

Andri Steinn Hilmarsson

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri Vignir Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

María Ellen Steingrímsdóttir

Fundarhlé hófst kl. 11:27, fundi fram haldið kl. 12:14


Bókun:

"Það ætti engan að furða að meirihlutinn hafi engan áhuga á því að bæta umferðarflæði í Kópavogi og grípi í sömu frasa og fyrir kosningar. Aðgerðir í verki segja þó mun meira en orð á blaði.

Bæjarbúar bíða enn eftir aðgerðum bæjarstjóra við Arnarnesveg. Bæjarstjóri fullyrti við Morgunblaðið þann 18. júlí 2026 að óásættanlegt sé að íbúar höfuðborgarsvæðisins séu látnir sitja fastir í umferð vegna óþarfa umferðarljósa og að Kópavogur myndi beita sér fyrir því að úrbætur væru gerðar. Enn er þó beðið umsagnar bæjarstjóra við tillögu Miðflokksins um að bærinn beiti sér í málinu, tillaga sem er dagsett 18. júlí, og virðist ekkert eiga að gera.

Kópavogsbúar heyrðu ítrekað fyrir kosningar að meirihlutinn myndi aldrei þrengja að fjölskyldubílnum en öll uppbyggingaráform í bænum gera nákvæmlega það og er algjörlega fráleitt að leggja til að selja Landsbankann til þess að borga fyrir Borgarlínuna. Meirihlutinn skrifaði undir flýti- og umferðargjöld og verður máttlaus í baráttu sinni gegn aðgerðum ríkisins sem hann hefur þegar samþykkt."

Einar Jóhannes Guðnason


Bókun:

"Miðflokkurinn hefur ekki lagt fram raunhæfar lausnir til að bæta umferðarflæði. Tillaga flokksins felur þess í stað í sér að hægja á framkvæmdum og uppbyggingu nauðsynlegra samgönguinnviða.

Arnarnesvegurinn er mikilvæg samgöngubót fyrir efri byggðir Kópavogs og hluti af Samgöngusáttmálanum. Bæjarstjóri hefur verið skýr í fjölmiðlum um að ef reynslan sýnir að umferðarteppa myndist við gatnamótin muni Kópavogsbær beita sér fyrir því að þau verði gerð mislæg. Gatnamótin eru hins vegar enn ekki komin í fulla virkni og því mikilvægt að meta áhrif þeirra þegar þau hafa tekið til starfa að fullu.

Meirihluti Kópavogsbæjar skrifaði aldrei undir að ríkið myndi fjármagna sinn hluta Samgöngusáttmálans með flýti- og umferðargjöldum. Við endurskoðun sáttmálans kom skýrt fram að bein framlög ríkisins gætu verið hluti af annarri fjármögnun en flýti- og umferðargjöldum.

Stefna meirihlutans er skýr og óbreytt: Við viljum stuðla að skilvirkum og góðum samgöngum fyrir Kópavogsbúa. Til þess þarf að nýta ólíka valkosti og tryggja að einn samgöngumáti eða einn valkostur þrengi ekki að öðrum.

Við eigum að halda áfram að byggja upp nauðsynlega samgönguinnviði, fylgjast með þróun umferðar og bregðast við ef reynslan sýnir að þörf sé á breytingum."

Andri Steinn Hilmarsson

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri Vignir Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson


Bókun:

"Undirritaður vekur athygli á því að Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn, Viðreisn og Samfylkingin eru hér öll á sama máli varðandi Borgarlínuna, enda hefur Sjálfstæðisflokkurinn aldrei geta bent á hvar flokkunum greini á um verkefni Samfylkingarinnar í Reykjavík um bíllausan lífsstíl og Reykjavíkurvæðingu Kópavogs.

Lítur því út fyrir að Miðflokkurinn muni einn standa vörð um umferðarflæði í bænum og raunverulegt ferðafrelsi íbúa. Það tekst ekki með óhóflegri ofurþéttingu byggðar og þrengingu að umferð sem meirihlutinn stendur fyrir. Þegar hefur Miðflokknum tekist að standa gegn glórulausum aðgerðum á umferðamannvirkjum og er mikilvægt að kjósendur fari að minna sína fulltrúa á það til hvers þeir voru kosnir, enda ólíklegt að kjósendur Sjálfstæðisflokksins séu mjög spenntir fyrir því að umturna skipulagi Kópavogs fyrir Borgarlínuna.

Að bera fyrir sig að meirihlutinn sé tilneyddur til að samþykkja þrengingaráform Samfylkingarinnar í Reykjavík vegna þess að þeir séu ósammála tillögum Miðflokksins er hjákátleg afsökun.

Bæjarstjóri getur ekki breytt því núna hvað hann sagði við Morgunblaðið 18. júlí 2026 þar sem afstaðan var afdráttarlaus. Meirihlutinn getur ekki heldur breytt því sem hann undirritaði í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins 2024.

Einar Jóhannes Guðnason


Bókun:

"Sú mynd sem dregin er upp í bókun Miðflokksins af samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu er verulega einfölduð. Samgöngusáttmálinn er sameiginlegt verkefni ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og snýst ekki eingöngu um Borgarlínu, heldur einnig um uppbyggingu stofnvega, bætta umferðarstýringu, umferðaröryggi og fjölbreytta ferðamáta.

Við leggjum áherslu á að samgöngur í Kópavogi taki mið af þörfum Kópavogsbúa og að greiðar samgöngur og gott umferðarflæði verði áfram tryggð. Það útilokar ekki betri almenningssamgöngur eða fleiri samgöngukosti.

Við munum áfram leggja sjálfstætt mat á einstakar framkvæmdir út frá hagsmunum Kópavogsbúa. Það á meðal annars við um Arnarnesveg og gatnamót hans við Breiðholtsbraut. Bæjarstjóri hefur sagt að ef langar biðraðir og viðvarandi umferðartafir myndist komi til greina að gera gatnamótin að fullu mislæg, eins og upphaflega var gert ráð fyrir.

Markmiðið er einfalt: að byggja upp samgöngukerfi sem þjónar ólíkum ferðamátum og tryggir greiðar og skilvirkar samgöngur fyrir Kópavogsbúa.

Orðrétt er haft eftir bæjarstjóra í Morgunblaðinu 18 júlí sl.:

„Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs segir að til greina komi að gera ný gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar að fullu mislæg eins og upprunalega stóð til, ef langar biðraðir og umferðartafir verða þar viðvarandi vandamál.“

Andri Steinn Hilmarsson

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri Vignir Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Bókun:

"Tillaga Miðflokksins er að minnka umsvif Borgarlínu í sáttmálanum og því óþarfi að tíunda fyrir undirritaðan um hvað sáttmálinn snýst. Í fyrri bókun undirritaðs er einnig bein vísun í orð bæjarstjóra úr sama viðtali."

Einar Jóhann Guðnason


Bókun:

"Samfylking leggur áherslu á að Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins nái fram að ganga. Sáttmálinn felur í sér mikilvægar samgöngubætur hvað varðar uppbyggingu stofnvega, eflingu almenningssamgangna o.fl. Endurskoðun á sáttmálanum mun einungis hafa í för með sér tafir á nauðsynlegum framkvæmdum.

Borgarlínan er mikilvægur hluti þeirrar uppbyggingar. Höfuðborgarsvæðið fer stækkandi og samgöngukerfið þarf að þróast í takt við það. Lausnin felst ekki eingöngu í því að byggja fleiri vegi eða mislæg gatnamót (þótt það sé sannarlega stór hluti af Samgöngusáttmálanum og raunar stærri þáttur en uppbygging Borgarlínunnar), heldur einnig að fjölga raunhæfum valkostum í samgöngum. Öflugar almenningssamgöngur geta dregið úr álagi á gatnakerfið og bætt umferðarflæði fyrir alla, sérstaklega þá sem kjósa að nota einkabílinn."

Jónas Már Torfason

Jónas Már Torfason vék af fundi kl. 12:13

Ásdís Kristjánsdóttir vék af fundi kl. 12:13