Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa í skipulags- og umhverfisráði Beitis Ólafssonar um lóðir í Vatnsendahvarfi.
Málsnúmer: 2610075
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 36. fundur
Lögð fram fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Beitis Ólafssonar dags. 1. október 2026 um lóðir í Vatnsendahvarfi.
Vísað til umsagnar umhverfissviðs.
Bókun:
„Ástæða beiðni undirritaðs er einungis vegna þess að mikið hefur borið á því að lóðarhafar skili þegar fjármögnuðum lóðum við Vatnsendahvarf til baka. Það er einkun vegna rangra upplýsinga, skorts á upplýsingum og seinagangs við afhendingu lóða. Einnig gætir tafa á afgreiðslu mála hjá skipulagssviði sem þola enga bið. Þá hafa misvísandi skilaboð frá embættismönnum um byggingarheimildir á lóðunum valdið óvissu. Hvort forgangsröðunin innan stjórnsýslunar sé rétt þegar kemur að hvaða svið og stöðugildi þurfi raunverulega að manna hverju sinni, og hvaða stöðugildi á móti megi missa sín. Sömuleiðis þurfi að skoða hvort heimila eigi aukinn mannafla við stærri verkefni þar sem miklir fjárhagsmunir eru í húfi, svo að þjónusta við bæjarbúa og uppbyggingaraðila skerðist ekki, sérstaklega þegar sveitarfélagið stendur í þeim mikla uppbyggingarfasa sem raun ber vitni. Miðflokkurinn hefur nú þegar lagt fram beiðni um stjórnsýsluúttekt, en sú beiðni býður en afgreiðslu.“
Beitir Ólafsson
Bókun:
„Meirihlutinn gerir athugasemdir við þau vinnubrögð að leggja fram fyrirspurn og svara henni, með stílfæringum og fullyrðingum um niðurstöður, í bókun við framlagningu fyrirspurnarinnar.“
Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Kristinn Jakobsson og Kristinn Dagur Gissurarson.
Fundarhlé hófst kl. 18:04, fundi fram haldið kl. 18:30.