Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Dalvegur 1. Breytt aðalskipulag. Skipulags- og matslýsing.

Málsnúmer: 26111504

Ferill máls

01

Skipulags- og umhverfisráð - 39. fundur

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu sameiginleg skipulags- og matslýsing unnin af Kópavogsbæ dags. 17. september 2026 fyrir breytingu á aðalskipulagi og breytingu á deiliskipulagi fyrir Dalveg 1. Fyrirhugað er að byggja upp verslunar- og þjónustuhúsnæði í góðum tengslum við Kópavogsdal í samræmi við tillögur Klasa þróunarfélags og Tendra arkitekta. Tillagan var auglýst frá 22. október til 10. nóvember 2026. Einnig eru lagðar fram athugasemdir og ábendingar sem bárust á kynningartíma ásamt samantekt umsagna, dags. 13. nóvember 2026.

Skipulagsfulltrúa er falið að hefja vinnu við gerð tillögu að breyttu aðal- og deiliskipulagi fyrir Dalveg 1 á grundvelli framlagðrar skipulags- og matslýsingar dags. 17. september 2026 og með hliðsjón af framkomnum athugasemdum og ábendingum á kynningartíma.

Bókun:

„Miðflokkurinn leggur áherslu á að í skipulagsferli vegna Dalvega 1. verði tryggt að bílastæðafjöldi á reitnum taki mið af þeirra starfsemi sem þar er fyrirhuguð og þörfum Kópavogsdals. Kópavogsdalur er vinsælt svæði til afþreyingar og lýðheilsu sem laðar að gesti úr öðrum hverfum, en margir þeirra þurfa að reiða sig á einkabíl. Til þess að lágmarka álag og koma í veg fyrir að ökutækjum sé lagt í íbúðargötur norðan dalsins eða á bílastæði hagsmunaaðila í nágrenninu, er mikilvægt að gert sé ráð fyrir fullnægjandi bílastæðafjölda við uppbygginguna."

Beitir Ólafsson

Bókun:

„Meirihlutinn tekur undir að mikilvægt sé að bílastæða- og aðkomumál séu með þeim hætti að þau anni umferð húsanna eins vel og hægt er.“

Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Kristinn Dagur Gissurarson.