Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga bæjarstjóra - aðgerðir til að draga úr veikindafjarvistum

Málsnúmer: 2611363

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3270. fundur

Frá bæjarstjóra, dags. 03.11.2026, lagðar fram til umræðu í bæjarráði, viðbótartillögur fyrir aðgerðir til að draga úr veikindafjarvistum. Samhliða lagt fram minnisblað frá mannauðsstjóra, dags. 03.11.2026.

Lagt fram og kynnt.

Gestur vék af fundi kl. 9:31

Umræður.


Bókun:

"Eftir tveggja ára átak gegn veikindafjarvistum er heildarveikindahlutfall starfsfólks hærra en þegar það hófst. Í grunnskólum hafa skammtímaveikindi jafnframt aukist á hverju ári. Engin töluleg markmið koma fram í gögnunum og ekki er gerð grein fyrir kostnaði við átakið sjálft. Samt er lagt til að halda áfram með sömu aðgerðir og bæta auk þess við aðgerðum sem snúa einkum að auknu eftirliti með veiku starfsfólki.

Undirrituð óskar eftir að áður en unnið verður eftir fyrirlögðum tillögum um aðgerðir ársins 2027 verði lagt fram mat á árangri og kostnaði átaksins og sett fram skýr töluleg markmið. Jafnframt kallar undirrituð eftir skýru kostnaðarmati á því aukna eftirliti sem lagt er til að ráðist verði í. Þegar árangurinn er hingað til takmarkaður geldur Samfylkingin varhug við að gengið sé enn harðar fram gagnvart veiku starfsfólki bæjarins. Frekar ætti að leita annarra lausna í samráði við starfsfólk og stjórnendur til að bregðast við veikindum starfsmanna, sem sannarlega er tilefni til að bregðast við."

Eydís Inga Valsdóttir


Bókun:

"Átak Kópavogsbæjar til að draga úr veikindafjarvistum hefur fyrst og fremst beinst að því að fækka skammtímaveikindum og hafa aðgerðirnar þegar skilað mælanlegum árangri. Meirihlutinn telur mikilvægt að halda þeim árangri til haga og byggja áfram á þeirri markvissu vinnu sem þegar hefur verið ráðist í. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafa Bradford-stig lækkað um 17%, veikindadögum vegna skammtímaveikinda fækkað um 8,6% og veikindalotum um 2,5% á fyrstu átta mánuðum ársins 2026, miðað við sama tímabil árið áður.

Mikilvægt er að greina á milli heildarveikinda og skammtímaveikinda, enda hefur sérstök áhersla í aðgerðum bæjarins verið lögð á að draga úr þeim síðarnefndu. Viðbótaraðgerðir fyrir árið 2027 snúast ekki eingöngu um áframhaldandi eftirfylgni, heldur einnig um aukinn stuðning við starfsfólk, snemmtæka íhlutun, öflugri forvarnir og markvissa heilsueflingu.

Meirihlutinn tekur undir mikilvægi þess að árangur og kostnaður aðgerðanna verði áfram metinn með reglubundnum hætti og að sett verði skýr og mælanleg markmið. Sá árangur sem þegar hefur náðst sýnir að markvissar aðgerðir geta skilað árangri og gefur fullt tilefni til að halda áfram á sömu braut, þróa úrræðin áfram og efla þá vinnu sem þegar er hafin.

Tillaga bæjarstjóra er jafnframt skynsamlegt næsta skref í þessari vinnu. Með henni er brugðist markvissar við endurteknum skammtímafjarvistum og lögð áhersla á skýrari viðmið og reglur um eftirfylgni þegar slíkar fjarvistir verða tíðar. Þannig má styrkja enn frekar þann árangur sem náðst hefur, um leið og stuðningur við starfsfólk og forvarnir eru áfram í forgrunni."

Andri Steinn Hilmarsson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Orri Vignir Hlöðversson