Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Aðkeypt þjónusta

Málsnúmer: 2611434

Ferill máls

01

Velferðar- og mannréttindaráð - 23. fundur

Lögð fram til kynningar greinargerð dags. 30.10.2026 um aðkeypta þjónustu velferðarsviðs hjá einkareknum þjónustuaðilum, fyrirkomulag þjónustunnar, kostnað og eftirlit með henni.

Bókanir:

Fulltrúi Samfylkingar fagnar þeim úrbótatillögum sem lagðar eru fram í skýrslunni og telur jákvætt að stefnt sé að því að innleiða samræmt og kerfisbundið eftirlit með aðkeyptri þjónustu. Það er mikilvægt skref í rétta átt.

Hins vegar vekur það áhyggjur að núverandi eftirlit virðist byggjast á faglegri málastjórn einstakra mála í stað þess að vera sjálfstætt og kerfisbundið eftirlit með þjónustuaðilunum sjálfum.

Það verður að gera skýran greinarmun á því að fylgjast með stöðu og líðan einstaklings í þjónustu og því að hafa eftirlit með gæðum þjónustunnar, starfsháttum og ábyrgð þjónustuaðilans.

Við teljum sérstaklega mikilvægt að tryggja að hagræðingaraðgerðir og sparnaður í rekstri bitni ekki á eftirliti með þjónustu við viðkvæma einstaklinga. Eftirlit er ekki óþarfur kostnaður eða aukaatriði í þjónustunni heldur grundvallarþáttur í því að tryggja öryggi, réttindi og velferð þeirra sem þjónustuna nýta.

Það er jákvætt að nú sé stefnt að úrbótum, en jafnframt þarf að horfast í augu við að slíkt eftirlit hefði átt að vera til staðar.

Örn Arnarson, fulltrúi Samfylkingar

Í ljósi þess umfangsmikla fjármagns sem varið er til aðkeyptrar þjónustu er nauðsynlegt að tryggja gagnsæi, fagleg gæði og virkt eftirlit. Þótt ríkið beri ábyrgð á uppbyggingu sérhæfðra úrræða leysir það sveitarfélagið ekki undan eigin skyldum. Útvistun þjónustu felur ekki í sér útvistun ábyrgðar. Fulltrúi Viðreisnar telur mikilvægt að fram fari óháð úttekt á kostnaði, gæðum og árangri þjónustunnar. Velferð bæjarbúa og ábyrg meðferð almannafjár verða ávallt að vera í fyrirrúmi.

Bryndís Logadóttir, fulltrúi Viðreisnar

Meirihluti velferðar- og mannréttindaráðs þakkar fyrir greinargóða samantekt um aðkeypta þjónustu fyrir börn og fjölskyldur.

Við leggjum ríka áherslu á að öryggi, velferð og réttindi barna séu ávallt í fyrirrúmi og að eftirlit með aðkeyptri þjónustu sé markvisst og öflugt. Rétt er þó að halda því til haga að faglegt eftirlit og eftirfylgni með einstökum málum hefur verið til staðar nú sem endranær. Við fögnum tillögum um frekari samræmingu og eflingu kerfisbundins eftirlits og óskum eftir tímasettri áætlun um innleiðingu þeirra.

Jafnframt lýsir meirihluti ráðsins áhyggjum af langvarandi skorti á sérhæfðum meðferðarúrræðum fyrir börn og ungmenni sem hefur leitt til þess að sveitarfélög hafa þurft að leita kostnaðarsamra lausna hjá einkaaðilum.

Ábyrgð á velferð barna má ekki falla milli stjórnsýslustiga. Nauðsynlegt er að ríki og sveitarfélög vinni saman að því að tryggja börnum örugga og faglega þjónustu við hæfi.

Björg Baldursdóttir, formaður og fulltrúi Framsóknar

Elísabet Sveinsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks

Hannes Þ. Hafstein Þorvaldsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks

Kristinn Jakobsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks

Sigrún Bjarnadóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks