Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Velferðar- og mannréttindaráð - 23. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Björg Baldursdóttir - formaður
  • Sigrún Bjarnadóttir - varaformaður
  • Kristinn Jakobsson - aðalfulltrúi
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hannes Þ. Hafstein Þorvaldsson - aðalfulltrúi
  • Örn Arnarson - aðalfulltrúi
  • Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Bryndís Rut Logadóttir - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Thelma Bergmann Árnadóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Sigrún Þórarinsdóttir - Sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir - starfsmaður velferðarsviðs

Ritari

  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir

Dagskrá fundar

Skrifstofa Félagslegs húsnæðis

01

Félagsleg leiguíbúð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 14.10.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.

Skrifstofa Barnaverndarþjónustu

02

Dómsmál

Dómur héraðsdóms Reykjaness dags. 28.10.2026 lagður fram til kynningar.

Lagt fram.

Skrifstofa Barnaverndarþjónustu

03

Aðkeypt þjónusta

Lögð fram til kynningar greinargerð dags. 30.10.2026 um aðkeypta þjónustu velferðarsviðs hjá einkareknum þjónustuaðilum, fyrirkomulag þjónustunnar, kostnað og eftirlit með henni.

Bókanir:

Fulltrúi Samfylkingar fagnar þeim úrbótatillögum sem lagðar eru fram í skýrslunni og telur jákvætt að stefnt sé að því að innleiða samræmt og kerfisbundið eftirlit með aðkeyptri þjónustu. Það er mikilvægt skref í rétta átt.

Hins vegar vekur það áhyggjur að núverandi eftirlit virðist byggjast á faglegri málastjórn einstakra mála í stað þess að vera sjálfstætt og kerfisbundið eftirlit með þjónustuaðilunum sjálfum.

Það verður að gera skýran greinarmun á því að fylgjast með stöðu og líðan einstaklings í þjónustu og því að hafa eftirlit með gæðum þjónustunnar, starfsháttum og ábyrgð þjónustuaðilans.

Við teljum sérstaklega mikilvægt að tryggja að hagræðingaraðgerðir og sparnaður í rekstri bitni ekki á eftirliti með þjónustu við viðkvæma einstaklinga. Eftirlit er ekki óþarfur kostnaður eða aukaatriði í þjónustunni heldur grundvallarþáttur í því að tryggja öryggi, réttindi og velferð þeirra sem þjónustuna nýta.

Það er jákvætt að nú sé stefnt að úrbótum, en jafnframt þarf að horfast í augu við að slíkt eftirlit hefði átt að vera til staðar.

Örn Arnarson, fulltrúi Samfylkingar

Í ljósi þess umfangsmikla fjármagns sem varið er til aðkeyptrar þjónustu er nauðsynlegt að tryggja gagnsæi, fagleg gæði og virkt eftirlit. Þótt ríkið beri ábyrgð á uppbyggingu sérhæfðra úrræða leysir það sveitarfélagið ekki undan eigin skyldum. Útvistun þjónustu felur ekki í sér útvistun ábyrgðar. Fulltrúi Viðreisnar telur mikilvægt að fram fari óháð úttekt á kostnaði, gæðum og árangri þjónustunnar. Velferð bæjarbúa og ábyrg meðferð almannafjár verða ávallt að vera í fyrirrúmi.

Bryndís Logadóttir, fulltrúi Viðreisnar

Meirihluti velferðar- og mannréttindaráðs þakkar fyrir greinargóða samantekt um aðkeypta þjónustu fyrir börn og fjölskyldur.

Við leggjum ríka áherslu á að öryggi, velferð og réttindi barna séu ávallt í fyrirrúmi og að eftirlit með aðkeyptri þjónustu sé markvisst og öflugt. Rétt er þó að halda því til haga að faglegt eftirlit og eftirfylgni með einstökum málum hefur verið til staðar nú sem endranær. Við fögnum tillögum um frekari samræmingu og eflingu kerfisbundins eftirlits og óskum eftir tímasettri áætlun um innleiðingu þeirra.

Jafnframt lýsir meirihluti ráðsins áhyggjum af langvarandi skorti á sérhæfðum meðferðarúrræðum fyrir börn og ungmenni sem hefur leitt til þess að sveitarfélög hafa þurft að leita kostnaðarsamra lausna hjá einkaaðilum.

Ábyrgð á velferð barna má ekki falla milli stjórnsýslustiga. Nauðsynlegt er að ríki og sveitarfélög vinni saman að því að tryggja börnum örugga og faglega þjónustu við hæfi.

Björg Baldursdóttir, formaður og fulltrúi Framsóknar

Elísabet Sveinsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks

Hannes Þ. Hafstein Þorvaldsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks

Kristinn Jakobsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks

Sigrún Bjarnadóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks


Gestir

  • Þóra Kemp, skrifstofustjóri - mæting: 16:28
Skrifstofa Ráðgjafar

04

Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 1.10.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.


Gestir

  • Þóra Kemp, skrifstofustjóri - mæting: 16:28
Skrifstofa Ráðgjafar

05

Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 26.10.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.


Gestir

  • Þóra Kemp, skrifstofustjóri - mæting: 16:28
Skrifstofa Ráðgjafar

06

Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Áfrýjun dags. 4.11.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.

Fært í trúnaðarbók.


Gestir

  • Þóra Kemp, skrifstofustjóri - mæting: 16:28
Skrifstofa Ráðgjafar

07

Úrskurður - Synjun á fjárhagsaðstoð

Úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála nr.583/2026 dags. 22.10.2026 lagður fram til kynningar.

Lagt fram.


Gestir

  • Þóra Kemp, skrifstofustjóri - mæting: 16:28
Skrifstofa Ráðgjafar

08

Úrskurður - stuðningur fyrir börn og fjölskyldur

Úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála nr.535/2026 dags. 22.10.2026 lagður fram til kynningar.

Lagt fram.


Gestir

  • Þóra Kemp, skrifstofustjóri - mæting: 16:28
Skrifstofa Ráðgjafar

09

Samræmd móttaka flóttafólks

Kynning á samningi um samræmda móttöku flóttafólks.

Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir kynninguna.

Bókun:

Í ljósi þeirrar kynningar sem hér hefur verið lögð fram um samræmda móttöku flóttafólks telur Miðflokkurinn að innviðir og þjónustukerfi sveitarfélagsins séu undir það miklu álagi að ekki sé forsvaranlegt að halda áfram á sömu braut. Mikilvægt er að tryggja að gæði grunnþjónustu, svo sem í skóla-, velferðar- og húsnæðismálum, skerðist ekki fyrir þá íbúa sem fyrir eru í sveitarfélaginu.

Með vísan til þess telur Miðflokkurinn að tímabært sé að endurskoða þátttöku sveitarfélagsins í verkefninu, og skorar á sveitarfélagið að framlengja ekki samningi við ríkið um samræmda móttöku flóttafólks.

Thelma Bergmann Árnadóttir, áheyrnarfulltrúi Miðflokks.


Gestir

  • Þóra Kemp, skrifstofu - mæting: 16:28
Önnur mál

10

Skýrsla um samspil og virkni velferðarþjónustu - gráu svæðin

Lögð fram til kynningar skýrsla um samspil og virkni velferðarþjónustu.

Velferðar- og mannréttindaráð óskar eftir kynningu á skýrslunni frá HLH ráðgjöf á nýju ári.

Önnur mál

11

Barnasáttmálinn 2025-2027

Kynning á verkefninu Barnvænt sveitarfélag.

Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir góða kynningu.

Önnur mál

12

Fundaröð velferðar- og mannréttindaráðs

Tillaga að fundaröð velferðar- og mannréttindaráðs vegna ársins 2027 lögð fram til afgreiðslu.

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir framlagða fundaröð fyrir árið 2027 og að fundir ráðsins hefjist kl. 15.30.

Bókun:

Fulltrúi Samfylkingar mótmælir því að byrja fundi fyrr á daginn. Starf bæjarfulltrúa og nefndarmanna er ekki fullt starf og felur það nauðsynlega í sér að fulltrúa séu í öðru starfi. Það er því eðlilegt að leitast við að láta fundinn hefjast sem næst klukkan fjögur á daginn, að hefðbundnum vinnutíma loknum. Einnig setjum við athugasemd við að fjöldi funda í Velferðar- og mannréttindaráði er mun færri en í öðrum lykilráðum bæjarins.

Örn Arnarson fulltrúi Samfylkingar.

Önnur mál

13

Kynning á starfsemi velferðarsviðs