Menntaráð - 17. fundur
í Kársnesskóla
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Margrét Friðriksdóttir - formaður
- Ólafur Örn Karlsson - aðalmaður
- Helgi Magnússon - aðalmaður
- Ragnhildur Reynisdóttir - aðalmaður
- Helga María Hallgrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gísli Baldvinsson - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalfulltrúi
- Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi
- Hreiðar Oddsson - aðalfulltrúi
- Ágúst Frímann Jakobsson - fulltrúi skólastjóra
- Þorvar Hafsteinsson - foreldrafulltrúi
Starfsmenn
- Ragnheiður Hermannsdóttir
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir
Ritari
- Ragnheiður Hermannsdóttir
Menntaráð þakkar Björg Baldursdóttur,skólastjóra Kársnesskóla fyrir góðar mótttökur og veitingar.
Dagskrá fundar
Verkefnið Markvissar forvarnir, sem styrkt var af forvarnarsjóði Kópavogsbæjar kynnt. Markmið verkefnisins er fyrst og fremst að nýta betur það fjármagn sem lagt er til forvarna í Kópavogi og efla þannig forvarnir.
Kynningu frestað.
Kynning á stöðu húsnæðismála Kársnesskóla.
Gerð var grein fyrir stöðu húsnæðismála skólans bæði hvað varðar undirbúning að nýrri byggingu við Skólagerði og fyrirkomulagi skólastarfs í vetur.
Lykiltölur í skólastarfi lagðar fram.
Lykiltölur lagðar fram.
Lokaskil Álfhólsskóla í kjölfar ytra mats lögð fram.
Menntaráð lýsir ánægju sinni yfir faglegum vinnubrögðum skólans við umbætur í kjölfar ytra mats.
Vináttuganga fer fram í öllum hverfum bæjarins 8. nóvember á degi gegn einelti. Skipulag göngu kynnt.
Dagskrá Vináttugöngu lögð fram.
Forvarnir og málefni unglinga í Kópavogi rædd.