Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Skólagerði 8, Kársnesskóli, húsnæðismál.

Málsnúmer: 1702352

Ferill máls

01

Menntaráð - 17. fundur

Kynning á stöðu húsnæðismála Kársnesskóla.

Gerð var grein fyrir stöðu húsnæðismála skólans bæði hvað varðar undirbúning að nýrri byggingu við Skólagerði og fyrirkomulagi skólastarfs í vetur.

02

Menntaráð - 12. fundur

Skipulag skólastarfs í Kársnesskóla við byrjun skólaárs kynnt og gengið um húsnæði skólans í Fannborg 2.

Björg Baldursdóttir, skólastjóri kynnti fyrir menntaráði upphaf skólastarfs í Kársnesskóla. Gengið var um ný innréttað húsnæði skólans á 2. hæð í Fannborg 2.

03

Bæjarstjórn - 1160. fundur

Frá starfshópi um húsnæðismál Kársnesskóla, dags. 29. maí, lögð fram tillaga ásamt greinargerð um húsnæðismál Kársnesskóla þar sem lagt er til að bygging Kársnesskóla við Skólagerði verði rifin, starfsemi skólans verði í Vallargerði á meðan byggingarframkvæmdir standa yfir og að nýr starfshópur verði skipaður til að vinna að hönnun nýrrar byggingar skólans. Bæjarráð frestaði afgreiðslu tillögunnar á fundi þann 1. júní sl. Einnig lögð fram bókun af fundi menntaráðs frá 9. júní sl. vegna málsins þar sem mælt er með við bæjarstjórn að samþykkja ofangreinda tillögu starfshópsins. Bæjarstjórn samþykkti á fundi þann 13. júní síðastliðinn að fresta ákvörðun um niðurrif Kársnesskóla fram á næsta bæjarstjórnarfund þann 27. júní. Tíminn skyldi nýttur til þess að halda íbúa- og samráðsfund þar sem staða núverandi húsnæðis væri kynnt ásamt þeim valkostum sem eru í stöðunni.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu með 11 atkvæðum.

04

Bæjarstjórn - 1159. fundur

Frá starfshópi um húsnæðismál Kársnesskóla, dags. 29. maí, lögð fram tillaga ásamt greinargerð um húsnæðismál Kársnesskóla þar sem lagt er til að bygging Kársnesskóla við Skólagerði verði rifin, starfsemi skólans verði í Vallargerði á meðan byggingarframkvæmdir standa yfir og að nýr starfshópur verði skipaður til að vinna að hönnun nýrrar byggingar skólans. Bæjarráð frestaði afgreiðslu tillögunnar á fundi þann 1. júní sl. Einnig lögð fram bókun af fundi menntaráðs frá 9. júní sl. vegna málsins þar sem mælt er með við bæjarstjórn að samþykkja ofangreinda tillögu starfshópsins.

Tillaga Ármanns Kr. Ólafssonar:

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að fresta ákvörðun um niðurrif Kársnesskóla fram á næsta bæjarstjórnarfund sem er þann 27. júní. Tíminn verði nýttur til þess að halda íbúa- og samráðsfund þar sem staða núverandi húsnæðis er kynnt ásamt þeim valkostum sem eru í stöðunni.

05

Menntaráð - 11. fundur

Menntaráð mælir með að bæjarstjórn samþykki eftirfarandi tillögu starfshóps um húsnæðismál Kársnesskóla, sbr. greinargerð sem lögð var fyrir bæjarráð dags. 1. júní 2017 og vísað þaðan til bæjarstjórnar á fundi bæjarráðs dags. 8. júní 2017:

"Í ljósi athugana sem gerðar hafa verið leggur starfshópurinn til, að vel athuguðu máli, að bygging Kársnesskóla við Skólagerði verði rifin.

Lagt er til að starfsemi skólans verði í Vallargerði á meðan byggingarframkvæmdir standa yfir, í húsnæði skólans þar og lausum kennslustofum.

Starfshópurinn leggur til að nýr starfshópur verði skipaður til að vinna forsögn að hönnun nýrrar byggingar skólans."

06

Bæjarráð - 2873. fundur

Frá starfshópi um húsnæðismál Kársnesskóla, dags. 29. maí, lögð fram tillaga ásamt greinargerð um húsnæðismál Kársnesskóla þar sem lagt er til að bygging Kársnesskóla við Skólagerði verði rifin, starfsemi skólans verði í Vallargerði á meðan byggingarframkvæmdir standa yfir og að nýr starfshópur verði skipaður til að vinna að hönnun nýrrar byggingar skólans. Bæjarráð frestaði afgreiðslu tillögunnar á fundi þann 1. júní sl.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

07

Bæjarráð - 2872. fundur

Frá starfshópi um húsnæðismál Kársnesskóla, dags. 29. maí, lögð fram tillaga ásamt greinargerð um húsnæðismál Kársnesskóla þar sem lagt er til að bygging Kársnesskóla við Skólagerði verði rifin, starfssemi skólans verði í Vallargerði á meðan byggingarframkvæmdir standa yfir og að nýr starfshópur verði skipaður til að vinna að hönnun nýrrar byggingar skólans.

Bæjarráð frestar afgreiðslu tillögunnar.

08

Bæjarráð - 2871. fundur

Frá sviðsstjórum menntasviðs og umhverfissviðs, dags. 16. maí, lagt fram erindi um kaup á lausum kennslustofum við Kársnesskóla þar sem lagt er til að a.m.k. tvær stofur verði keyptar strax til viðbótar við þær 10 sem þegar hafa verið samþykktar í bæjarráði. Þá er lagt til að farið verði í útboð á fleiri lausum kennslustofum og breytta staðsetningu núverandi kennslustofa í samræmi við fyrirliggjandi erindi.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að keyptar verðir tvær lausar kennslustofur til viðbótar af Eðalbyggingum ehf. Þá er samþykkt með fjórum atkvæðum að farið verði í útboð á allt að 8 kennslustofum og að tvær stofur sem nú eru í Skólagerði verði fluttar annars vegar á Vallagerðisvöll og hins vegar að Hörðuvallaskóla.

09

Bæjarráð - 2870. fundur

Frá sviðsstjórum umhverfissviðs og menntasviðs, dags. 9. maí, lagt fram erindi vinnuhóps um húsnæðismál Kársnesskóla vegna kennslu haustið 2017. Lagt er til að húsnæði Fannborg 2 verði nýtt til kennslu unglingastigs fram að næstu áramótum.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að húsnæði Fannborg 2 verði nýtt til kennslu unglingastigs fram að næstu áramótum.

10

Menntaráð - 8. fundur

Kynning á stöðu húsnæðismála.

Margrét Friðriksdóttir, formaður menntaráðs sagði frá stöðu mála varðandi húsnæðismál skólans.

11

Menntaráð - 6. fundur

Upplýst verður um stöðu í húsnæðismálum skólans og húsnæði skólans í Fannborg 2 skoðað.

Staða mála kynnt og gengið um skólahúsnæðið á 1. hæð Fannborgar 2.

12

Bæjarstjórn - 1153. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 7. mars, lagt fram erindi vinnuhóps um framtíðarskipulag og þróun húsnæðismála Kársnesskóla þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til þess að fram fari verðkönnun á bráðabirgðahúsnæði á skólalóðinni.

13

Bæjarráð - 2861. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 7. mars, lagt fram erindi vinnuhóps um framtíðarskipulag og þróun húsnæðismála Kársnesskóla þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til þess að fram fari verðkönnun á bráðabirgðahúsnæði á skólalóðinni.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum heimild til þess að fram fari verðkönnun í samræmi við erindi bréfritara.

14

Menntaráð - 5. fundur

Kynning á stöðu húsnæðismála í Kársnesskóla.

Margrét Friðriksdóttir formaður menntaráðs greindi frá stöðu húsnæðismála Kársnesskóla.

15

Bæjarstjórn - 1152. fundur

Frá sviðsstjórum menntasviðs og umhverfissviðs, dags. 14. maí, lagt fram erindi um húsnæðismál Kársnesskóla við Skólagerði þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til að finna hentugt húsnæði undir kennslu á meðan farið er í úrbætur á húsnæðinu ásamt því að stofnaður verði vinnuhópur um húsnæðismál Kársnesskóla sem skili niðurstöðum í júní 2017.

16

Menntaráð - 4. fundur

Kynning á stöðu húsnæðismála í Kársnesskóla og erindi frá sviðsstjórum menntasviðs og umhverfissviðs sem lagt var fyrir bæjarráð 16.2.

Málið kynnt og umræður sköpuðust.

17

Bæjarráð - 2858. fundur

Frá sviðsstjórum menntasviðs og umhverfissviðs, dags. 14. maí, lagt fram erindi um húsnæðismál Kársnesskóla við Skólagerði þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til að finna hentugt húsnæði undir kennslu á meðan farið er í úrbætur á húsnæðinu ásamt því að stofnaður verði vinnuhópur um húsnæðismál Kársnesskóla sem skili niðurstöðum í júní 2017.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum heimild til þess að finna hentugt húsnæði undir kennslu á meðan farið verði í úrbætur á skólahúsnæðinu.

Jafnframt samþykkir bæjarráð með fimm atkvæðum tillögu um að stofnaður verði vinnuhópur um framtíðarskipulag og þróun húsnæðiskosts Kársnesskóla sem verði að auki skipaður tveimur bæjarfulltrúum.