Menntaráð - 147. fundur
í Lindaskóla
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Hanna Carla Jóhannsdóttir - formaður
- Hildur Karen Sveinbjarnardóttir - aðalmaður
- Jónas Haukur Thors Einarsson - aðalmaður
- Hjördís Einarsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
- Donata Honkowicz Bukowska - aðalmaðurBoðaði forföllBjörn Þór Rögnvaldsson - varaformaðurSat fundinn í staðinn
- Tryggvi Felixson - aðalmaður
- María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristgerður Garðarsdóttir - aðalmaður
- Karen Rúnarsdóttir - aðalmaður
- Sigrún Bjarnadóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Bergþóra Þórhallsdóttir
- Ingibjörg Ýr Pálmadóttir - starfsmaður menntasviðs
Ritari
- Ingibjörg Ýr Pálmadóttir
Margrét Ármann, skólastjóri Lindaskóla, bauð fundarmenn velkomna og kynnti innleiðingar- og þróunarverkefni sem eru í gangi í skólanum.
Margrét Ásgeirsdóttir og Sigrún Dóra Jónsdóttir kynntu starfið í kringum Barnasáttmálann.
Dagskrá fundar
Ársskýrsla skólaþjónustu grunnskóla lögð fram. Hún sýnir mynd af þeirri þjónustu sem grunnskóladeild veitir út í grunnskólana.
Ársskýrsla skólaþjónustu grunnskólanna lögð fram til kynningar.
Lögð fram tillaga um áherslur forvarnasjóðs og ferli úthlutunar fyrir 2025, kosning valnefndar fer jafnframt fram.
Ferli úthlutunar úr forvarnasjóði kynnt af Victori Berg Guðmundssyni.
Valnefnd kosin.
Í valnefnd sitja:
Karen Rúnarsdóttir fulltrúi foreldra,
Haukur Thors Einarsson fyrir hönd meirihluta,
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir fyrir hönd minnihluta.
Victor Berg vék af fundi kl. 18:20.
Tillaga að breytingum á reglum um akstursþjónustu fatlaðra barna að 16 ára aldri lögð fram.
Reglur um akstursþjónustu fatlaðra barna við leik- og grunnskóla. Menntaráð vísar reglum til umsagnar í Notendaráði í málefnum fatlaðs fólks.
04
Fyrirspurn frá áheyrnarfulltrúa í menntaráði Maríu Ellen Steingrímsdóttur, Viðreisn um stöðu Barnaskóla Kársness
Svar við fyrirspurn lagt fram.
Lagt fram.
Menntaráð fagnar því að nýr Barnaskóli Kársness sé tekinn til starfa.