Forvarnarsjóður Kópavogs
Málsnúmer: 2212624
Ferill máls
01
Menntaráð - 162. fundur
Kynning styrkþega á verkefnum sem fengu styrk úr forvarnasjóði Kópavogs 2025.
Kynningar lagðar fram.
Menntaráð þakkar Aroni Brink, ráðgjafa ungmenna í Molanum, Hafdísi Helgadóttur, rithöfundi, Hrönn Valgeirsdóttur, leikskólakennara og Victori Berg Guðmundssyni, deildarstjóra frístundadeildar, fyrir hönd Nikulás Árna Þorkelssonar, forstöðumanns félagsmiðstöðvarinnar Pegasus, fyrir góðar kynningar á þeim verkefnum sem fengu úthlutað styrk úr Forvarnarsjóði Kópavogs 2025.
Umræður.
Victor Berg Guðmundsson, deildarstjóri fristundadeildar, Aron Brink, ráðgjafi ungmenna í Molanum, Hafdís Helgadóttir, rithöfundur og Hrönn Valgeirsdóttir, leikskólakennari, víkja af fundi kl. 18:15
02
Menntaráð - 154. fundur
Lagt fram á fundi menntaráðs 2. desember 2025 og ákvörðun frestað og vísað til næsta fundar 6. janúar 2026.
Tillögur um úthlutun úr sjóðnum nú lagðar fram til samþykktar.
Victori Berg Guðmundssyni er þökkuð góð kynning.
Tillögur um úthlutun úr sjóðnum nú samþykktar.
VBG víkur af fundi kl. 18:30.
03
Menntaráð - 153. fundur
Kynning á niðurstöðum valnefndar vegna styrkumsókna sem hljóta styrk úr Forvarnarsjóði Kópavogs 2025.
Karen Rúnarsdóttir víkur af fundi vegna vanhæfis kl. 17:10.
Victori Berg Guðmundssyni er þökkuð góð kynning.
Ákvörðun frestað og umræðu vísað til næsta fundar, 6. janúar 2026.
04
Menntaráð - 147. fundur
Lögð fram tillaga um áherslur forvarnasjóðs og ferli úthlutunar fyrir 2025, kosning valnefndar fer jafnframt fram.
Ferli úthlutunar úr forvarnasjóði kynnt af Victori Berg Guðmundssyni.
Valnefnd kosin.
Í valnefnd sitja:
Karen Rúnarsdóttir fulltrúi foreldra,
Haukur Thors Einarsson fyrir hönd meirihluta,
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir fyrir hönd minnihluta.
Victor Berg vék af fundi kl. 18:20.
05
Menntaráð - 144. fundur
Tillaga um breytingu á tímasetningu á framkvæmd umsókna og úthlutunar úr sjóðnum. Menntaráð samþykkir breytinguna samhljóða.
Gestir fundarins Victor Berg Guðmundsson og Amanda K. Ólafsdóttir véku af fundi kl. 18:19
06
Menntaráð - 142. fundur
Endurskoðun á úthlutunarreglum lagðar fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
07
Menntaráð - 129. fundur
Tillögur valnefndar menntaráðs um úthlutun úr forvarnarsjóði fyrir árið 2024 lagðar fram. Máli frestað frá síðasta fundi ráðsins.
Menntaráð samþykkir tillögur valnefndar með öllum greiddum atkvæðum.
08
Menntaráð - 128. fundur
Tillögur valnefndar menntaráðs um úthlutun úr forvarnarsjóði 2024 lagðar fram.
Afgreiðslu á tillögum valnefndar frestað.
09
Menntaráð - 126. fundur
Reglur um Fovarnarsjóð Kópavogs lagðar fram til rýni ásamt tillögu að áherslum sjóðsins og skipulagi árið 2024.
Menntaráð gerir ekki athugasemdir við reglur Forvarnarsjóð Kópavogs, tillögu um áherslur sjóðsins í ár samþykktar með öllum greiddum atkvæðum.
Valnefnd forvarnarsjóðs, skipuð af Jónasi Hauk Einarssyn, Donata H Bukowska og Karen Rúnarsdóttur. Til vara Sigrún Hulda Jónsdóttir, Þorvar Hafsteinsson og Gunnhildur Sveinsdóttir
10
Menntaráð - 120. fundur
Lokagreinargerðir vegna stykja úr forvarnarsjóði lagðar fram.
Lagt fram.
11
Menntaráð - 113. fundur
Tillögur valnefndar menntráðs um verkefni sem hljóti styrk úr forvarnarsjóði 2023 lagðar fram.
Menntaráð samþykkir tillögu valnefndar með öllum greiddum atkvæðum.
12
Menntaráð - 109. fundur
Reglur um Fovarnarsjóð Kópvogs lagðar fram til rýni ásamt tillögu að áherslum sjóðsins og skipulagi árið 2023.
Reglur um Forvarnarsjóð Kópavogs, samþykktar einróma með
áorðnum breytingum.
Valnefnd forvarnarsjóðs, skipuð af Jónasi Hauk Einarssyni, Jóhannesi Birgi Jensyni og Donata H.Bukowska. Til vara Hanna Carla Jóhannsdóttir, Sigurbjörg Erla Egilsdóttir og Karen Rúnarsdóttir.