Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Menntaráð - 73. fundur

Fjarfundur - Microsoft Teams

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Friðriksdóttir - formaður
  • Helgi Magnússon - aðalmaður
  • Ingibjörg Auður Guðmundsdóttir - aðalmaður
  • Ragnhildur Reynisdóttir - aðalmaður
  • Birkir Jón Jónsson - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi
  • Jóhannes Birgir Jensson - foreldrafulltrúi
  • Börkur Vígþórsson - fulltrúi skólastjóra
  • Erlendur H. Geirdal - aðalmaður
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalmaður

Starfsmenn

  • Ragnheiður Hermannsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs

Ritari

  • Ragnheiður Hermannsdóttir

Dagskrá fundar

01

Menntasvið-áhættumat á hugbúnaði

Kynnt samvinnuverkefni nokkurra sveitarfélaga um áhættumat á hugbúnaði sem notaður er í skólastarfi.

Bergþóra Þórhallsdóttir, verkefnastjóri í upplýsingatækni kynnti vinnu við áhættumat á hugbúnaði.

02

Menntasvið-matsrannsókn, spjaldtölvur

Lögð fram rannsóknaráætlun vegna mats á innleiðingu spjaldtölva í skólastarfi.

Menntaráð lýsir yfir ánægju sinni með áætlun um matsrannsókn á spjaldtölvuinnleiðingu.

03

Verklagsreglur um viðbrögð við ofbeldi

Lagðar fram endurskoðaðar verklagsreglur um viðbrögð við ofbeldi í stofnunum menntasviðs.

Lagt fram.

04

Akstursþjónustu fatlaðra fyrir börn að 16 ára aldri

Lögð fram tillaga um breytingu á vinnulagi vegna akstursþjónustu fatlaðra fyrir börn að 16 ára aldri ásamt nýjum reglum fyrir þjónustuna.

Menntaráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu um breytingar á vinnulagi varðandi umsóknir um akstursþjónustu fatlaðra barna með öllum greiddum atkvæðum. Jafnframt samþykkir menntaráð fyrir sitt leyti reglur um akstursþjónustu fatlaðra barna á leik- og grunnskólastigi með áorðnum breytingum með öllum greiddum atkvæðum.

Menntaráð vísar reglum um akstursþjónustu fatlaðra barna á leik- og grunnskólastigi til umsagnar notendaráðs fatlaðs fólks.

05

Grunnskóladeild-mat og eftirlit með sundakstri

Farið yfir skipulag á sundakstri fyrir grunnskólanemendur í Kópavogi vegna fyrirspurnar frá Ragnhildi Reynisdóttur, fulltrúa BF Viðreisnar.

Lagt fram.

06

Menntasvið-rekstur

Lögð fram eftirfarandi fyrirspurn frá Ragnhildi Reynisdóttur og Ingibjörgu Auði Guðmundsdóttur, fulltrúum BF Viðreisn:

"Óskum eftir upplýsingum um hvernig reiknað er út stöðugildi fyrir stuðningsfulltrúa í grunnskólum Kópavogsbæjar. Er reiknað pr. haus eða hefur áhrif td. hve langt er í íþróttahús, sundlaugar, osfrv. Eða hafa aðrir þættir áhrif á fjölda stöðugilda?"

Fyrirspurn vísað til menntasviðs.