Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Menntaráð - 133. fundur

í Álfhólsskóla

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Hanna Carla Jóhannsdóttir - formaður
  • Jónas Haukur Thors Einarsson - aðalmaður
  • Árnína Steinunn Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Hjördís Einarsdóttir - aðalmaður
  • Donata Honkowicz Bukowska - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Tryggvi Felixson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Tryggvi Felixson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi
  • Karen Rúnarsdóttir - foreldrafulltrúi

Starfsmenn

  • Ragnheiður Hermannsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs

Ritari

  • Ragnheiður Hermannsdóttir

Menntaráð þakkar skólastjórnendum Álfhólsskóla, Sigrúnu Bjarnadóttur, skólastjóra og Sigrúnu Erlu Ólafsdóttur, aðstoðarskólastjóra áhugaverða kynningu á skólastarfinu og góðar veitingar.

Dagskrá fundar

01

Málstefna Kópavogsbæjar

Málstefna lögð fram til kynningar og umsagnar.

Auður Finnbogadóttir, stefnustjóri, kynnti drög að málstefnu Kópavogsbæjar.

Menntaráð fagnar gerð málstefnu fyrir Kópavogsbæ og mun senda inn athugasemdir við drög að málstefnu í kjölfar fundar.

02

Menntasvið-Ársskýrsla skólaþjonustu

Ársskýrsla skólaþjónustu grunnskóla lögð fram ásamt skýrslu um stuðning við nemendur með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.

Árskýrsla skólaþjónustu og skýrsla um stuðning við nemendur með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn lagðar fram.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir vék af fundi kl. 19:03.

03

Mat og eftirlit sveitastjórna með skólastarfi

Lykiltölur í skóla- og frístundastarfi lagðar fram.

Lykiltölur lagðar fram.

04

Barna- og ungmennaþing 2024

Tillögur barna- og ungmennaþings 2024 lagðar fram ásamt svörum.

Tillögur barna- og ungmennaþings lagðar fram til kynningar.

05

Menntasvið-Fundargerðir leikskólanefndar 2022-2024

Fundargerð 165. fundar leikskólanefndar lögð fram til kynningar.

Lagt fram.