Málstefna Kópavogsbæjar
Málsnúmer: 24093318
Ferill máls
01
Velferðar- og mannréttindaráð - 3. fundur
Drög að málstefnu lögð fram umsagnar velferðar- og mannréttindaráðs.
Fulltrúar í velferðar- og mannréttindaráði komu fram með athugasemdir við drög að málstefnu. Það vantar að minnast á íslenskt táknmál, einnig var rætt um þær athugasemdir sem menntaráð gerði við málstefnuna s.s. varðandi orðanotkun hugtaksins inngilding o.fl.
02
Velferðar- og mannréttindaráð - 2. fundur
Málstefna lögð fram til kynningar og umsagnar.
Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir kynninguna. Umsögn ráðsins um málstefnu er freastað til næsta fundar.
03
Bæjarráð - 3201. fundur
Frá stefnustjóra. dags. 20. janúar 2025, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til að fara í mótun á fyrstu málstefnu bæjarins.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum heimild til mótunar málstefnu fyrir Kópavogsbæ.
04
Menntaráð - 133. fundur
Málstefna lögð fram til kynningar og umsagnar.
Auður Finnbogadóttir, stefnustjóri, kynnti drög að málstefnu Kópavogsbæjar.
Menntaráð fagnar gerð málstefnu fyrir Kópavogsbæ og mun senda inn athugasemdir við drög að málstefnu í kjölfar fundar.