Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Menntaráð - 57. fundur

í Salaskóla

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Friðriksdóttir - formaður
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalmaður
  • Helgi Magnússon - aðalmaður
  • Ingibjörg Auður Guðmundsdóttir - aðalmaður
  • Ragnhildur Reynisdóttir - aðalmaður
  • Elvar Páll Sigurðsson - aðalmaður
  • Birkir Jón Jónsson - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi
  • Jóhannes Birgir Jensson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Jóhannes Birgir Jensson - vara foreldrafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Magnea Einarsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Magnea Einarsdóttir - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn

Starfsmenn

  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Hekla Hannibalsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Hekla Hannibalsdóttir

Menntaráð þakkar Hafsteini Karlssyni, skólastjóra, fyrir góðar móttökur og veitingar og Auðbjörgu Sigurðardóttur fróðlega kynningu á starfi frístundar.

Dagskrá fundar

01

Skemmtilegri skólalóðir.

Tillaga að framkvæmdum á skólalóðum fyrir árið 2020 lögð fram.

Friðrik Baldursson, garðyrkjustjóri kynnti framkvæmdir síðustu 4 ára á skólalóðum og endurmat á þeim.

Menntaráð samþykkir fyrir sitt leyti, með öllum greiddum atkvæðum tillögu um ráðstöfun fjármagns til verkefnisins "Skemmtilegri skólalóðir" samkvæmt fram lögðu verkefni Önnu Birnu Snæbjörnsdóttur, sviðstjóra menntasviðs og Steingríms Haukssonar, sviðstjóra umhverfissviðs.

02

Stefnumótun - nefndir ráð

Niðurstöður af fundi nefnda og ráða þann 27. febrúar 2020 lagðar fram.

Almennar umræður um vinnuna framundan við stefnumörkun bæjarins. Frestað til næsta fundar.

03

Heilsuefling eldri borgara

Verkefni framundan varðandi heilsueflingu eldri borgara.

Anna Birna Snæbjörnsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs, kynnti stöðu verkefnis til heilsueflingar eldri borgara.