Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 11. fundur

í Fannborg 6, fundarherbergi 1. hæð, Völlur

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Björg Baldursdóttir - formaður
  • Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
  • Magnús Þorsteinsson - aðalmaður
  • Ingveldur Jónsdóttir
  • Axel Þór Eysteinsson
  • Salóme Mist Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Hekla Björk Hólmarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Guðlaug Ósk Gísladóttir - Deildarstjóri þjónustudeild fatlaðra
  • Sigrún Þórarinsdóttir - Sviðsstjóri velferðarsviðs

Ritari

  • Guðlaug Ósk Gísladóttir

Formaður fór yfir erindisbréf notendaráðs.
Ingveldur Jónsdóttir var kosin varaformaður ráðsins.

Dagskrá fundar

01

Stefnumótun - nefndir ráð

Kynning á heildarstefnu Kópavogs og innleiðingu hennar.

Kynning á drögum að loftlagsstefnu Kópavogs. Óskað er eftir umsögn notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks

Auður Finnbogadóttir, stefnustjóri kynnti vinnu við innleiðingu mótunar heildarstefnu Kópavogsbæjar. Notendaráð þakkar góða kynningu.

Encho P. Stoyanov verkefnastjóri kynnti drög að loftlagsstefnu Kópavogs. Notendaráð fatlaðs fólks þakkar Encho fyrir góða kynningu og gerir engar athugasemdir við drögin.

Notendaráð leggur áherslu á að hugað verði að aðgengismálum fatlaðs fólks samhliða innleiðingu á vistvænum ferðamáta. Huga þarf að snjómokstri og öðrum hindrum á gönguleiðum t.d. kyrrstæðum hlaupahjólum og reiðhjólum. Notendaráð kallar eftir að leyfisskyldir aðilar með vistvæn farartæki s.s. hlaupahjól og rafmagnshjól setji reglur um frágang þeirra þannig að aðgengi fatlaðs fólks sé tryggt. Einnig kallar notendaráð eftir vistvænum ferðamáta fyrir fatlað fólk.

02

Hamraborg - aðgengi fyrir hreyfihamlaða í tengslum við framkvæmdir

Fyrirspurn frá nefndarmanni um aðgengismál á framkvæmdartíma.

Hvenær má vænta þess að framkvæmdaraðili skili af sér löglegri tillögu til bæjarstjórnar sem hægt er að taka afstöðu til? Notendaráð leggur áherslu á mikilvægi þess að óvissu íbúa sé eytt.

Notendaráð vísar málinu til sviðsstjóra umhverfissviðs.

03

Fannborg 2. Fyrirspurn frá fulltrúa í Notendaráði

Fyrirspurn frá nefndarmanni um stöðu Fannborgar 2, húsnæðis sem nýtt er undir starfsemi eftirskólaúrræðis fyrir fatlaða menntaskólanema

Notendaráð leggur áherslu á að fundið verði hentugt framtíðarhúsnæði fyrir eftirskólaúrræði fatlaðra framhaldsskólanemenda hið fyrsta.

Notendaráð óskar eftir kynningu frá menntasviði um starfsemi Hrafnsins.

04

Hjalti Steinþórsson lögmaður - erindi til notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks

Fyrirspurn frá nefndarmanni um stöðu mála vegna mögulegra uppkaupa á íbúðum í Fannborg. Notendaráð vísaði erindinu til umsagnar bæjarritara á fundi þann 11.4.2022

Á fundi notendaráðs var lagt fram svarbréf bæjarritara dags. 19.9.2022.