Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 19. fundur
í Vallakór 4
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Björg Baldursdóttir - formaður
- Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
- Signý Sigurrós Skúladóttir - aðalmaður
- Ingveldur Jónsdóttir - varaformaður
- Salóme Mist Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hekla Björk Hólmarsdóttir - aðalmaður
- Axel Þór Eysteinsson - varamaður
Starfsmenn
- Jón Kristján Rögnvaldsson - starfsmaður velferðarsviðs
Ritari
- Jón Kristján Rögnvaldsson
Dagskrá fundar
01
Tillögur um breytingar á reglum um útleigu félagslegra leiguíbúða og breytingar á stigakerfi
Kynntar breytingar á reglum um útleigu félagslegra leiguíbúða, sem samþykktar voru á fundi bæjarstjórnar, 14. janúar 2025.
Lagðar fram til kynningar breytingar á reglum um útleigu félagslegra leiguíbúða og stigakerfi sem samþykktar voru í bæjarstjórn 14. janúar s.l.
Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks þakkar fyrir kynninguna.
Verkefnastjóri velferðarsviðs kynnir framgang aðgerða í aðgerðaáætlun velferðarsviðs vegna ársins 2024.
Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks þakkar fyrir kynninguna.
Verkefnastjóri velferðarsviðs kynnir aðgerðaáætlun velferðarsviðs vegna ársins 2025.
Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks þakkar fyrir kynninguna.
Lögð fram þjónustukönnun sveitarfélaga fyrir árið 2024 sem unnin var af Gallup.
Á fundi bæjarráðs dags. 6.2.2025 var bókað að bæjarráð feli velferðar- og mannréttindaráði að taka til skoðunar niðurstöður sveitarfélagakönnunar Gallup 2024 hvað varðar það sem snýr að þjónustu við fatlað fólk.
Á fundi Velferðar- og mannréttindaráðs dags. 10.3.2025 var bókað að ráðið feli sviðsstjóra velferðarsviðs að greina niðurstöður sveitarfélagakönnunar Gallup 2024 hvað varðar þjónustu við fatlað fólk og mögulegar skýringar og koma með tillögur að viðbrögðum.
Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks þakkar fyrir kynninguna.
Kópavogsbær fagnar 70 ára afmæli 11. maí næstkomandi og af því tilefni hefur tekið til starfa afmælisnefnd sem óskar eftir að nefndir og ráð taki málið upp og komi tillögum áfram til afmælisnefndar. Lagt fram minnisblað verkefnastjóra á skrifstofu stjórnsýslusviðs dags. 18.2.25.
Lagt fram til kynningar.
Lagðar fram til kynningar tölulegar upplýsingar um starfsemi velferðarsviðs frá september til desember 2024.
Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks þakkar fyrir kynninguna.
Á fundi sínum þann 10. febrúar sl. undir liðnum Tölulegar upplýsingar velferðarsviðs, lagði velferðar- og mannréttindaráð Kópavogsbæjar fram eftirfarandi bókun:
Velferðar- og mannréttindaráð óskar eftir að fá yfirlit yfir lengd biðtíma eftir félagslegri þjónustu: Hversu lengi hafa þeir beðið sem hafa verið lengst á biðlista eftir þjónustu velferðarsviðs?
Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs Kópavogsbæjar þann 10. mars undir liðnum, 25021243-Velferðar- og mannréttindaráð óskar eftir upplýsingum um biðlista, var lagt fram minnisblað velferðarsviðs, dags. 3. mars.
Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks lýsir yfir áhyggjum af löngum biðlistum eftir þjónustu við fatlað fólk og hvetur bæjaryfirvöld til þess að veita nauðsynlegu fjármagn í málaflokkinn.