Þjónustukönnun sveitarfélaga 2024 - Gallup
Málsnúmer: 25011086
Ferill máls
01
Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 19. fundur
Lögð fram þjónustukönnun sveitarfélaga fyrir árið 2024 sem unnin var af Gallup.
Á fundi bæjarráðs dags. 6.2.2025 var bókað að bæjarráð feli velferðar- og mannréttindaráði að taka til skoðunar niðurstöður sveitarfélagakönnunar Gallup 2024 hvað varðar það sem snýr að þjónustu við fatlað fólk.
Á fundi Velferðar- og mannréttindaráðs dags. 10.3.2025 var bókað að ráðið feli sviðsstjóra velferðarsviðs að greina niðurstöður sveitarfélagakönnunar Gallup 2024 hvað varðar þjónustu við fatlað fólk og mögulegar skýringar og koma með tillögur að viðbrögðum.
Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks þakkar fyrir kynninguna.
02
Velferðar- og mannréttindaráð - 3. fundur
Lögð fram þjónustukönnun sveitarfélaga fyrir árið 2024 sem unnin var af Gallup.
Á fundi bæjarráðs dags. 6.2.2025 var bókað að bæjarráð feli velferðar- og mannréttindaráði að taka til skoðunar niðurstöður sveitarfélagakönnunar Gallup 2024 hvað varðar það sem snýr að þjónustu við fatlað fólk.
Velferðar- og mannréttindaráð felur sviðsstjóra velferðarsviðs að greina niðurstöður sveitarfélagakönnunar Gallup 2024 hvað varðar þjónustu við fatlað fólk og mögulegar skýringar og koma með tillögur að viðbrögðum.
03
Bæjarráð - 3203. fundur
Lögð fram þjónustukönnun sveitarfélaga fyrir árið 2024 sem unnin var af Gallup. Málinu var frestað 30. janúar sl.
Kynning og umræður.
Bæjarráð felur velferðarráði að taka til skoðunar niðurstöður sveitarfélagakönnunar Gallup 2024 hvað varðar það sem snýr að þjónustu við fatlað fólk.
04
Bæjarráð - 3202. fundur
Lögð fram þjónustukönnun sveitarfélaga fyrir árið 2024 sem unnin var af Gallup.
Frestað til næsta fundar.