Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 23. fundur
í Vallakór 4
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Björg Baldursdóttir - formaður
- Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
- Signý Sigurrós Skúladóttir - aðalmaðurBoðaði forföllSigný Sigurrós Skúladóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Ingveldur Jónsdóttir - varaformaður
- Salóme Mist Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hekla Björk Hólmarsdóttir - aðalmaður
- Axel Þór Eysteinsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Kristján Rögnvaldsson - starfsmaður velferðarsviðs
- Anna Guðrún Halldórsdóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Jón Kristján Rögnvaldssom
Dagskrá fundar
Að beiðni formanns notendaráðs um málefni fatlaðra kynnir verkefnastjóri íþróttadeildar menntasviðs Kópavogs verkefnið "Allir með" sem snýr að aukinni þátttöku barna með fötlun í íþróttastarfi.
Notendaráð um málefni fatlaðs fólks þakkar Önu Tepavcevic fyrir góða kynningu á verkefninu og fagnar frumkvæði bæjarins.
Nýr aðgengisfulltrúi Kópavogs er Dofri Þórðarson, deildarstjóri fasteigna á umhverfissviði Kópavogs.
Nýr aðgengisfulltrúi Kópavogs er Dofri Þórðarson, deildarstjóri fasteigna á umhverfissviði Kópavogs. Notendaráð um málefni fatlaðs fólks fagnar því að nýr aðgengisfulltrúi hafi verið skipaður.
Umræða um aðgengi og algilda hönnun á gönguleiðum og opnum svæðum í Kópavogi.
Notendaráð um málefni fatlaðs fólks vísar í fyrri bókun frá 11. nóvember 2024:
"Fulltrúar í notendaráði hvetja umhverfis- og skipulagssvið til þess að fjölga bekkjum við gönguleiðir bæjarins með algilda hönnun og aðgengi að leiðarljósi. Bent er á rit Vegagerðarinnar um algilda hönnun utandyra."
Notendaráð bendir á að bekkir eru mikilvægt lýðheilsumál vegna þess að þeir geta verið forsenda þess að stór hópur fólks treysti sér út að ganga og því er nauðsynlegt er fljölga bekkjum við gönguleiðir og stofnanir bæjarins.
Lagðar fram til kynningar tölulegar upplýsingar um starfsemi velferðarsviðs september til desember 2025.
Lagðar fram til kynningar tölulegar upplýsingar um starfsemi velferðarsviðs september til desember 2025.
Notendaráð um málefni fatlaðs fólks hefur miklar áhyggjur af langri bið eftir lögbundinni þjónustu og ítrekar að það er óásættanlegt að þessi staða sé uppi.
Máli vísað til umsagnar frá fundi velferðar- og mannréttindaráðs dags. 9.3.2026.
Lagðar fram til kynningar og umsagnar breytingar á reglum Kópavogsbæjar um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir.
Notendaráð um málefni fatlaðs fólks gerir ekki athugasemdir við drög að breytingum á reglum Kópavogsbæjar um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir.
Máli vísað til umsagnar frá fundi velferðar- og mannréttindaráðs dags. 9.3.2026.
Lagðar fram til kynningar og umsagnar breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð í Kópavogi.
Notendaráð um málefni fatlaðs fólks gerir ekki athugasemdir við drög að breytingum á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð í Kópavogi.
Erindi frá Kolbeini Reginssyni, ráðsmanni notendaráðs um málefni fatlaðs fólks vegna framkvæmda og aðgengismála að Fannborg 8.
Notendaráð um málefni fatlaðs fólks vísar erindinu til umsagnar hjá umhverfissviði Kópavogs.