Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð

Málsnúmer: 26011311

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1338. fundur

Breytingar á reglum lagðar fram til afgreiðslu.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagðar breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð.

02

Bæjarráð - 3253. fundur

Breytingar á reglum lagðar fram til afgreiðslu.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum framlagðar breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

03

Velferðar- og mannréttindaráð - 16. fundur

Breytingar á reglum lagðar fram til afgreiðslu.

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.

04

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 23. fundur

Máli vísað til umsagnar frá fundi velferðar- og mannréttindaráðs dags. 9.3.2026.

Lagðar fram til kynningar og umsagnar breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð í Kópavogi.

Notendaráð um málefni fatlaðs fólks gerir ekki athugasemdir við drög að breytingum á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð í Kópavogi.

05

Velferðar- og mannréttindaráð - 15. fundur

Lagðar fram til kynningar og umræðu breytingar á reglum Kópavogsbæjar um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk.

Velferðar- og mannréttindaráð vísar málinu til umsagnar í notendaráði í málefnum fatlaðs fólks.