Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Skólanefnd - 53. fundur

í Salaskóla

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Bragi Þór Thoroddsen - aðalfulltrúi
  • Ragnheiður S Dagsdóttir - aðalfulltrúi
  • Ásta Skæringsdóttir - aðalfulltrúi
  • Erla Karlsdóttir - aðalfulltrúi
  • Þór Heiðar Ásgeirsson - aðalfulltrúi
  • Sigurður Haukur Gíslason - kennarafulltrúi
  • Marta Kristín Sigurjónsdóttir - foreldrafulltrúi
  • Guðmundur O Ásmundsson - fulltrúi skólastjóra
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Ragnheiður Hermannsdóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Ragnheiður Hermannsdóttir

Skólanefnd þakkar skólastjóra Salaskóla fyrir góða kynningu og veitingar.

Dagskrá fundar

01

SSH - endurmenntun kennara

Lagt fram til kynningar.

Deildarstjóri grunnskóladeildar gerði grein fyrir samstarfi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um endurmenntun.

02

Húsnæðismál Hörðuvallaskóla - Kórinn

Húsnæðisvandi skólans ræddur.

Hugmyndir að lausn rædd.

03

Viðmiðunarreglur Hf. um samskipti leik-grunnskóla við trúar og lífsskoðunarfélög. Drög

Lagt fram.

Ásta Skæringsdóttir vék af fundi kl 18:50.Skólanefnd telur mikilvægt að sett séu víðtæk viðmið um aðkomu utanaðkomandi samtaka, félaga og fyrirtækja að skólastarfi. Skólanefnd felur grunnskóladeild menntasviðs að móta þessi viðmið í samráði við stjórnendur leik- og grunnskóla.

04

Tillaga um gerð heildstæðra viðmiðunarreglna fyrir leik- og grunnskóla vegna samskipta útávið

Lagt fram.

Skólanefnd telur mikilvægt að sett séu víðtæk viðmið um aðkomu utanaðkomandi samtaka, félaga og fyrirtækja að skólastarfi. Skólanefnd felur grunnskóladeild menntasviðs að móta þessi viðmið í samráði við stjórnendur leik- og grunnskóla.

05

Viðurkenningar Skólanefndar Kópavogs

Framkvæmd og tilhögun lögð fram til umræðu.

Máli frestað til næsta fundar.

06

Skólastefna Kópavogs

Drög lögð fram til umræðu.

Skólanefnd samþykkir skólastefnu Kópavogs með fjórum greiddum atkvæðum. Skólanefnd felur grunnskóladeild menntasviðs að gera tillögu að framkvæmdaráætlun fyrir næsta fund.

07

Skóladagatal - Samræming starfsdaga leik- og grunnskóla

Fulltrúi kennara spurðist fyrir um viðhorfskönnun meðal foreldra um málefnið.

Máli frestað til næsta fundar.