Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Skólanefnd - 57. fundur

í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Bragi Þór Thoroddsen - aðalfulltrúi
  • Helgi Magnússon - aðalfulltrúi
  • Ragnheiður S Dagsdóttir - aðalfulltrúi
  • Þór Heiðar Ásgeirsson - aðalfulltrúi
  • Erla Karlsdóttir - aðalfulltrúi
  • Guðmundur O Ásmundsson - fulltrúi skólastjóra
  • Sigurður Haukur Gíslason - kennarafulltrúi
  • Marta Kristín Sigurjónsdóttir - foreldrafulltrúi
  • Ásta Skæringsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sigríður Gísladóttir - aðalfulltrúi
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Ragnheiður Hermannsdóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Ragnheiður Hermannsdóttir

Dagskrá fundar

01

Skóladagatal - Samræming starfsdaga (skipulagsdaga) leik- og grunnskóla

Niðurstöður könnunar meðal foreldra kynntar og svar frá mennta- og menningarmálaráðuneyti við fyrirspurn skólastjóra lagt fram.

Skólanefnd staðfestir fyrri bókun sína frá 26. 03. 2012 samanber fundargerð skólanefndar frá 4. febrúar 2013. Jafnframt áréttar skólanefnd að samkvæmt svari menntamálaráðuneytis getur bæjarstjórn í krafti yfirstjórnunarheimildar gefið skólastjórnendum fyrirmæli um samræmingu skipulagsdaga.

02

Samskiptareglur leik- og grunnskóla Kópavogs við aðila utan skólanna

Skil vinnuhóps um viðmiðunarreglur.

Skólanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti með breytingum og vísar þeim til jafnréttis- og mannréttindanefndar til umsagnar.

03

Viðurkenningar Skólanefndar Kópavogs

Vinnuhópur skilar af sér.

Skólanefnd samþykkir tillögur vinnuhóps.

04

Ráðning skólastjóra við Lindaskóla 2013

Sviðstjóri menntasviðs gerði grein fyrir umsækjendum og ráðningarferlinu.

05

Rannsókn á því hvað einkennir kennsluhætti

Beiðni um rannsókn í grunnskólum Kópavogs lögð fram.

Erla Karlsdóttir vék af fundi kl. 19:06. Skólanefnd samþykkir rannsóknina.

06

Úthlutun styrkja til tónlistarnáms í tónlistarskólum utan sveitarfélags

Endurskoðaðar reglur lagðar fram til afgreiðslu.

Skólanefnd samþykkir endurskoðaðar reglur án athugasemda.

07

Húsnæðismál Hörðuvallaskóla. Tillaga að úrbótum

Bréf frá foreldrum lagt fram.

Fyrirspurn frá Helga Magnússyni um hvort farin er af stað vinna til að greina forföll kennara í grunnskólum.