Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Skólanefnd - 69. fundur

í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Bragi Þór Thoroddsen - aðalfulltrúi
  • Helgi Magnússon - aðalfulltrúi
  • Ragnheiður S Dagsdóttir - aðalfulltrúi
  • Erla Karlsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sigríður Gísladóttir - aðalfulltrúi
  • Marta Kristín Sigurjónsdóttir - foreldrafulltrúi
  • Friðþjófur Helgi Karlsson - fulltrúi skólastjóra
  • Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi
  • Jens Sigurðsson - varafulltrúi
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Ragnheiður Hermannsdóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Ragnheiður Hermannsdóttir

Dagskrá fundar

01

Samskiptareglur leik- og grunnskóla Kópavogs við aðila utan skólanna

Leik- og grunnskóladeild vann samskiptareglurnar að beiðni jafnréttis- og mannréttindaráðs og voru þær samþykktar í nefndum á vormisseri 2013. Bæjarstjórn óskaði eftir því á fundi sínum 14. maí 2013 að þær færu í ýtarlegra umsagnarferli eða til allra foreldra í Kópavogi. Nokkrar athugasemdir komu fram og hafa reglurnar verið endurskoðaðar í ljósi þeirra.

Skólanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til jafnréttis- og mannréttindaráðs.

02

Innritun nemenda á starfsbrautir framhaldskólanna

Bréf frá Snælandsskóla lagt fram.

Vísað til grunnskóladeildar sem vinnur að málinu.

03

Rannsókn til að kanna réttmæti og áreiðanleika spurningalista um traust í skólastarfi.

Ósk um leyfi til að framkvæma rannsókn í grunnskólum Kópavogs.

Skólanefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti að fengnu leyfi skólastjóra.

04

Rannsókn á hugmyndum og viðhorfum íslenskukennara á unglingastigi

Ósk um leyfi til að framkvæma rannsókn í grunnskólum Kópavogs.

Skólanefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti að fengnu leyfi skólastjóra og óskar eftir upplýsingum um niðurstöður verkefnisins.

05

Umsókn um styrk til endurnýjunar á hluta af búningum Skólahljómsveitar Kópavogs

Lista- og menningarráð vísar erindu til skólanefndar Kópvogsbæjar.

Skólanefnd getur því miður ekki orðið við erindinu og vísar því aftur til Lista- og menningarráðs.

06

Kópurinn 2014 - viðurkenningar skólanefndar

Viðurkenninga skólnefndar hafa þegar verið auglýstar fyrir árið 2014.

Skólanefnd tilnefnir eftirtalda fulltrúa í vinnuhóp sem velur úr tilnefningum: Bragi Þór Thoroddsen og Gísli Baldvinsson.

07

Skóladagatal - Samræming skipulagsdaga leik- og grunnskóla

Bréf frá félagi skólastjórnenda í Kópavogi lagt fram.

Skólanefnd vekur athygli bæjarráðs á erindi félags skólastjórnenda í grunnskólum Kópavogs.

08

Aðalnámskrá grunnskóla - innleiðing í Kópavogi 2012 -2014

Lagt fram bréf frá mennta- og menningarmálaráðuneyti varðandi framkvæmd námsmats í grunnskólum samkvæmt nýrri aðalnámskrá.

Lagt fram til kynningar.