Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Skólanefnd - 108. fundur

í Álfhólsskóla

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
  • Ólafur Örn Karlsson - aðalfulltrúi
  • Helgi Magnússon - aðalfulltrúi
  • Sverrir Óskarsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Auður Cela Sigrúnardóttir - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Ragnhildur Reynisdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Ragnhildur Björg Konráðsdóttir EKKI NOTA - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Helga María Hallgrímsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Sóley Ragnarsdóttir - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Gísli Baldvinsson - áheyrnarfulltrúi
  • Arnar Björnsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Þorvar Hafsteinsson - vara foreldrafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Kristgerður Garðarsdóttir - kennarafulltrúi
  • Sigrún Bjarnadóttir - fulltrúi skólastjóra

Starfsmenn

  • Ragnheiður Hermannsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs

Ritari

  • Ragnheiður Hermannsdóttir

Skólanefnd þakkar Sigrúnu Bjarnadóttur, skólastjóra Álfhólsskóla fyrir einstakar mótttökur. Jafnframt þakkar nefndin Sigrúnu Erlu Ólafsdóttur, kennara við Álfhólsskóla áhugaverða kynningu.

Dagskrá fundar

Almenn erindi

01

Kostnaður foreldra við grunnskólagöngu barna sinna

Greining á kostnaði og minnisblað grunnskóladeildar vegna innkaupalista í grunnskólum lagt fram.

Skólanefnd leggur til að farið verði í markvissar aðgerðir til að draga verulega úr kostnaði nemenda við ritfangakaup við skólabyrjun og stefnt að því að allir skólar nái svipuðum árangri og Álfhóls- og Salaskóli og einnig á unglingastigi. Til þess að þetta megi gerast þarf að vinna málið í samvinnu við skólastjórnendur.

Samþykkt með sjö greiddum atkvæðum.

Gísli Baldvinsson, áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna og félagshyggju lagði fram eftirfarandi bókun;

"Undirritaður fagnar því að í Álfhólsskóla og Salaskóla hafi verið reynt að halda kostnaði foreldra við námsgagnakaup barna sinna í lágmarki. Undirritaður leggur til að við gerð fjárhagsáætlunar 2017 verði gert ráð fyrir fjármagni til námsganga fyrir nemendur og þar með verði grunnskólinn öllum nemendum að kostnaðarlausu eins og gert er ráð fyrir í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem lögfestur hefur verið á Íslandi. Undirritaður fagnar tillögu grunnskóladeildar bæjarins og hvetur bæjarstjórn til að merkja áætlaðan kostnað í fjárhagsáætlun bæjarins."


Almenn erindi

02

Mat og eftirlit sveitastjórna með skólastarfi

Skýrsla um könnun á viðhorfi nemenda og skýrsla um samræmd próf lagðar fram.

Skýrslur lagðar fram til kynningar.

Almenn erindi

03

Ytra mat á grunnskólum - þróunarverkefni. Álfhólsskóli valinn

Umbótaáætlun Álfhólsskóla vegna ytra mats lögð fram.

Skólanefnd þakkar fyrirmyndar vinnubrögð Álfhólsskóla á umbótaráætlun í kjölfar ytra mats.

Almenn erindi

04

Leyfisbeiðni vegna doktorsrannsóknar á nýjum matskvarða um hegðun, líðan og þroska barna á grunnskólaaldri

Beiðni lögð fram.

Skólanefnd samþykkir beiðni um rannsókn.

Almenn erindi

05

Leyfisbeiðni vegna rannsóknar á störfum stuðningsfulltrúa í grunnskólum

Beiðni lögð fram.

Skólanefnd samþykkir beiðni um rannsókn fyrir sitt leyti og óskar eftir kynningu á niðurstöðum.

Almenn erindi

06

Starfsáætlun og skóladagatal grunnskóla

Lögð fram tillaga frá skólastjórum um dagsetningar vetrarfría fyrir skólaárið 2017 -2018.

Skólanefnd samþykkir tillögu skólastjóra um vetrarfrí fyrir skólaárið 2017 -2018.