Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 34. fundur

í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
  • Helgi Jóhannesson - aðalmaður
  • Steingrímur Hauksson - sviðsstjóri skipulags- umhverfissviðs
  • Kristján Matthíasson - aðalfulltrúi
  • Hreiðar Oddsson - aðalmaður
  • Margrét Björnsdóttir - aðalfulltrúi
  • Tryggvi Magnús Þórðarson - áheyrnarfulltrúi
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Birgir Hlynur Sigurðsson - skipulagsstjóri

Ritari

  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir

Dagskrá fundar

Almenn erindi

01

Ársskýrsla Náttúrufræðistofnunar Íslands

Lögð fram ársskýrsla Náttúrufræðistofnunar Íslands 2012.

Lagt fram og kynnt.

Almenn erindi

02

Hjólað í vinnuna 2013

Átakið Hjólað í vinnuna hefst 8. maí og stendur til 28. maí.

Umhverfisfulltrúi kynnir átakið.

Almenn erindi

03

Bæjarfjall Kópavogs

Í Morgunblaðinu, dags. 13.04.2013, var grein um fyrirhugaða bók um bæjarfjöll á Íslandi. Þar er tekið fram að bæjarfjall Kópavogs sé Vífilfell.

Umhverfisfulltrúi kynnir upplýsingar frá höfundi bókarinnar, Þorsteini Jakobssyni.

Almenn erindi

04

Farartæki á göngustígum

Umhverfisfulltrúi kynnir umferðarreglur á göngustígum.

Lagt fram og kynnt.Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að koma með tillögu að merkingum stíga.

Almenn erindi

05

Grænt bókhald 2011

Á 32. fundi umhverfis- og samgöngunefndar, dags. 08.04.2013, var lögð fram skýrsla um Grænt bókhald fyrir árið 2011. Nefndarmönnum var gefið tækifæri til að koma með athugasemdir til umhverfisfulltrúa. $line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar dags. 6.05.2013 er Grænt bókhald 2011 lagt fram í annað sinn án athugasemda frá nefndarmönnum umhverfis- og samgöngunefndar.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir skýrsluna og vísar henni til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Almenn erindi

06

Hávaðakort og kort yfir stóra vegi.

Sviðsstjóri kynnir drög að aðgerðaráætlun dags. apríl 2013.

Lagt fram og kynnt. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að tillagan verði kynnt, jafnframt óskar nefndin eftir umsögn skipulagsnefndar.

Almenn erindi

07

Strætóskýli - merkingar á skýlum

Áhugi er fyrir því að merkja strætóskýli í Kópavogi og gefa þeim nöfn.

Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til í samráði við skipulagsnefnd að bæjarstjórn endurveki nafnanefnd sem sér m.a. um nafngiftir á götum, hringtorgum, strætóskýlum o.fl.

Almenn erindi

08

Hringtorg - merkingar á hringtorgum

Áhugi er fyrir því að gefa hringtorgum í Kópavogi nöfn og merkja þau.

Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til í samráði við skipulagsnefnd að bæjarstjórn endurveki nafnanefnd sem sér m.a. um nafngiftir á götum, hringtorgum, strætóskýlum o.fl.

Almenn erindi

09

Fífuhvammsvegur - gangbrautarljós

Borist hefur erindi, dags. 12.04.2013, þar sem vakin er athygli á gangbrautarljósum yfir Fífuhvammsveg og óskað eftir breytingum með hag gangandi vegfarenda að leiðarljósi. Einnig eru lögð fram erindi frá Gunnari Inga Ragnarssyni dags. 16. 04.2013 og 03.05.2013.

Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til úrvinnslu hjá umhverfissviði.

Almenn erindi

10

Desjakór - umferðaröryggi

Erindi barst frá íbúa, dags. 17. 04.2013, þar sem lýst var yfir áhyggjum af hraða á Kóravegi og óskað eftir hraðahindrun, milli Dofra- og Desjakórs, ásamt öryggisaðgerðum við lóðarmörk. Einnig er lagt fram minnisblað umhverfisfulltrúa.

Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til úrvinnslu hjá umhverfissviði.

Almenn erindi

11

Fossahvarf - umferðaröryggi

Borist hefur erindi, dags. 10.04.2013, þar sem óskað er eftir hraðahindrun við Fossahvarf. Mikill hraði er í götunni og skjólveggur á hornlóð blindar sýn inn í götuna. Einnig er lagt fram minnisblað umhverfisfulltrúa.

Umhverfis- og samgöngunefnd hafnar að gerð verði hraðahindrun í götunni, enda er það í samræmi við umferðaröryggisáætlun bæjarins.

Almenn erindi

12

Efstihjalli - öryggi gangandi vegfarenda

Erindi barst frá íbúa, dags. 16.05.2013, þar sem bent er á göngustíg beint austur af Álfhólsvegi yfir í Efstahjalla, norðan við leikskólann Efstahjalla. Bílaumferð um Efstahjalla sér ekki gangandi- og hjólandi umferð sem kemur út af göngustígnum. Lagt er fram minnisblað umhverfisfulltrúa.

Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til umhverfissviðs til afgreiðslu.

Almenn erindi

13

Lindasmári 26, hávaðamengun

Erindi barst frá íbúa, dags. 05.02.2013, þar sem bent er á hljóðmengun frá Dalsmára sem hefur áhrif á íbúa við Lindasmára. Einnig er lagt fram minnisblað frá umhverfisfulltrúa.

Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til umhverfissviðs til afgreiðslu.

Almenn erindi

14

Ástún 2

Borist hefur erindi frá húsfélaginu við Ástún 2, dags. 24.04.2013, vegna rafmagnsspennustöðvar frá Orkuveitu Reykjavíkur.

Erindinu er frestað. Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til Orkuveitu Reykjavíkur til umsagnar.

Almenn erindi

15

Fyrirspurn um Elliðavatn

Borist hefur erindi, dags. 16.04.2013, vegna Elliðavatns.

Lagt fram og kynnt og vísað til afgreiðslu umhverfissviðs.

Almenn erindi

16

Felling á öspum

Lagt fram erindi frá Garðyrkjustjóra um aspir sem þarf að fella við Kópavogsbraut og í Hamraborg.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða tillögu garðyrkjustjóra að aspirnar verði felldar vegna öryggisaðstæðna gangandi vegfarenda.