Nafnanefnd, strætóskýli og hringtorg
Málsnúmer: 1304430
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1091. fundur
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða tillögu að nöfnum hringtorga í Kópavogi og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.$line$Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að nöfnum hringtorga í Kópavogi með átta atkvæðum. Þrír bæjarfulltrúar sátu hjá við afgreiðslu málsins.
02
Bæjarráð - 2720. fundur
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða tillögu að nöfnum hringtorga í Kópavogi og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
03
Umhverfis- og samgöngunefnd - 45. fundur
Lögð fram að nýju tillaga að nöfnum hringtorga í Kópavogi frá nafnanefnd dags. 14.1.2014.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða tillögu og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
04
Umhverfis- og samgöngunefnd - 44. fundur
Nafnanefnd leggur fram hugmyndir af nöfnum hringtorga í Kópavogi.
Kynnt og unnið áfram í málinu.
05
Bæjarráð - 2709. fundur
Nafnanefnd tekur til starfa, skipuð Steingrími Haukssyni, Birgi Sigurðssyni, Sólveigu Jóhannsdóttur, Hreiðari Oddssyni og Helga Jóhannessyni. Formaður nefndarinnar er Steingrímur Hauksson.
Lagt fram.
06
Umhverfis- og samgöngunefnd - 42. fundur
Nafnanefnd tekur til starfa.
Í nafnanefnd sitja Steingrímur Hauksson, formaður, Birgir Sigurðsson, Sólveig H. Jóhannsdóttir, Hreiðar Oddsson og Helgi Jóhannesson.
07
Skipulagsnefnd - 1226. fundur
Lagt fram erindi umhverfis- og samgöngunefndar varðandi nafngiftir á strætóskýlum bæjarins. Í erindinu er lagt til endurvekja nafnanefnd á vegum bæjarins.
Lagt fram.
08
Umhverfis- og samgöngunefnd - 34. fundur
Áhugi er fyrir því að merkja strætóskýli í Kópavogi og gefa þeim nöfn.
Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til í samráði við skipulagsnefnd að bæjarstjórn endurveki nafnanefnd sem sér m.a. um nafngiftir á götum, hringtorgum, strætóskýlum o.fl.