Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Friðlýsing Skerjafjarðar.

Málsnúmer: 1011345

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 20. fundur

Lögð fram tillaga að staðsetningu og útliti vegvísa vegna friðlýsingar í Skerjafirði.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að fresta uppsetningu vegvísis þar til hægt verður að setja upp varanlegt upplýsingaskilti. Nefndin óskar jafnframt eftir því við Umhverfisstofnun að gert verði ráð fyrir tveimur varanlegum upplýsingaskiltum fyrir friðlýsta svæðið í Skerjafirði á næsta ári.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 18. fundur

Lagt fram bréf dags. 8. mars 2012 til byggingarfulltrúa þar sem óskað er eftir leyfi til uppsetningar á vegvísi við friðlýsta svæðið í Skerjafirði í Kópavogi.

Kynnt.

03

Bæjarráð - 2628. fundur

Frá skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkur, dags. 27/1, afrit af bréfum til Umhverfisstofnunar, ásamt minnisblaði skrifstofustjóra umhverfissviðs um sama; frá Umhverfisstofnun, dags. 27/1 og 30/1, svör við erindum Reykjavíkurborgar um sama. Einnig lagður fram samningur um búsvæðavernd í Skerjafirði innan marka Kópavogsbæjar undirritaður af fulltrúa Kópavogsbæjar, Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofu Kópavogs og staðfest af umhverfisráðherra þann 30. janúar sl.

Lagt fram.

04

Hafnarstjórn - 79. fundur

Samningur um umsjón og rekstur verndarsvæðis Skerjafjarðar innan marka Kópavogsbæjar, dags. 30.1. 2012 milli Umhverfisstofnunar annars vegar og Kópavogsbæjar og Náttúrufræðistofu Kópavogs hins vegar.

Lagt fram.

05

Skipulagsnefnd - 1201. fundur

Lögð fram fundargerð bæjarstjórnar frá 10. janúar 2012.

Bókun vegna samþykktar bæjarstjórnar um friðlýsingu Skerjafjarðar:"Á fundi bæjarstjórnar Kópavogs þann 10. janúar 2012 gerðist það að samþykkt var tillaga frá meirihluta Umhverfis- og samgöngunefndar um friðlýsingu Skerjafjarðar. Þetta gerðist þrátt fyrir að ekki var búið að afgreiða málið í skipulagsnefnd. Á sameiginlegum fundi með Umhverfis- og samgöngunefnd er haldinn var 12. desember 2011 var ákveðið að fresta málinu og afla frekari upplýsniga til þess að nefndarmenn gætu tekið afstöð til málsins, það er hvort raunveruleg þörf væri á friðlýsingu í stað bæjarverndarinnar sem nú er á umræddum svæðum.Það er með ólíkindum að formaður Umhverfis- og samgöngunefndar skuli hafa kosið að hunsa vilja nefndarmanna á umræddum fundi. Þess í stað heldur hún fund í eigin nefnd þann 6. janúar 2012 og fær þar samþykkta tillögu um friðlýsingu Skerjafjarðar, til bæjarstjórnar. Með þessum gjörningi gengur hún framhjá skipulagsnefnd.Fá, ef nokkur, fordæmi eru fyrir vinnubrögðum af þessu tagi innan stjórnsýslu Kópavogs og er nú þörft rannsóknar á málinu. Því er, hér með, þess farið á leit við bæjarstjóra að eftirfarandi atriði verði rannsökuð og svör veitt.1. Hvort friðlýsing Skerjafjarðar heyri undir starfssvið skipulagsnefndar eður ei.2. Af hverfju bæjarstjórn afgreiddi málið þátt fyrir að skipulagsnefnd væri ekki búin að afgreiða það vegna skorts á upplýsingum.3. Hefur bæjarstjórn áður samþykkt mál er varða friðlýsingar eða bæjarvernd án þess að viðkomandi mál hafi verið afgreitt frá skipulagsnefnd.4. Hvort stjórnarhættir þessir standist lög og reglugerðir." Kristinn Dagur GissurarsonJóhann ÍsbergMargrét BjörnsdóttirVilhjálmur Einarsson

06

Bæjarstjórn - 1050. fundur

Bæjarstjórn hafnaði tillögu um frestun á afgreiðslu málsins með sex atkvæðum en fimm greiddu atkvæði með henni.Bæjarstjórn samþykkti tillögu Ólafs Þórs Gunnarssonar um að tillaga að friðlýsingu væri borin upp í tvennu lagi. Var tillagan samþykkt einróma.Forseti bar fram tillögu um friðlýsingu á Kársnesinu sunnanverðu í Kópavogi. Óskað var eftir nafnakalli.Ármann Kr. Ólafsson sagði já,Margrét Björnsdóttir sagði já, Ólafur Þór Gunnarsson sagði já,Ómar Stefánsson gerði grein fyrir afstöðu sinni og greiddi ekki atkvæði,Margrét Júlía Rafnsdóttir sagði já,Rannveig Ásgeirsdóttir sagði já,Guðríður Arnardóttir sagði já,Gunnar Ingi Birgisson sagði já,Aðalsteinn Jónsson sagði já,Hafsteinn Karlsson sagði já og Hjálmar Hjálmarsson sagði já.Tillaga um friðslýsingu í Kópavogi samþykkt með 10 samhljóða atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.Forseti bar fram tillögu um friðlýsingu á Kársnesinu norðanverðu í Fossvogi. Óskað var eftir nafnakalli.Aðalsteinn Jónsson sagði nei,Gunnar Ingi Birgisson sagði nei,Guðríður Arnardóttir sagði já,Rannveig Ásgeirsdóttir sagði já, Margrét Júlía Rafnsdóttir sagði já,Ómar Stefánsson gerði grein fyrir afstöðu sinni og greiddi ekki atkvæði,Ólafur Þór Gunnarsson sagði já,Margrét Björnsdóttir greiddi ekki atkvæði,Ármann Kr. Ólafsson gerði grein fyrir afstöðu sinni með eftirfarandi bókun:<EM>"Ég tek undir bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks í skipulagsnefnd um að þarna skuli koma á bæjarvernd og segi því nei."</EM>Hafsteinn Karlsson sagði já og Hjálmar Hjálmarsson sagði já.Tillaga um friðlýsingu í Fossvogi samþykkt með 6 atkvæðum. Þrír bæjarfulltrúar greiddu atkvæði gegn tillögunni og tveir bæjarfulltrúar sátu hjá.

07

Umhverfis- og samgöngunefnd - 14. fundur

Mál er varðar friðlýsingu Álftaness - Skerjafjarðar í samræmi við náttúruverndaráætlun 2004-2008 hefur verið til umfjöllunar í umhverfisráði. $line$Á fundi umhverfisráðs 29. nóvember 2010 var málið lagt fram á ný.$line$Guðríður Þorvarðardóttir frá Umhverfisstofnun og Sigurður Ármann Þráinsson kynntu verkefnið um friðlýsingu Skerjafjarðar, tillögu að skilmálum og næstu skref við friðlýsingu svæðisins og Hilmar Malmquist forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs kynnti svæðið út frá náttúru og hvaða áhrif friðlýsing hefur á það. Umhverfisráð þakkar þeim komuna og felur skipulags- og umhverfissviði áframhaldandi vinnu við friðlýsingu svæðisins og að fundað verði með þeim sveitarfélögum sem hlut eiga að máli.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 21. mars 2011 var lögð fram fundargerð frá fundi aðila nærliggjandi sveitarfélaga dags. 13. janúar 2011 og greint var frá fundi með nefndarmönnum umhverfis- og skipulagsnefnda á höfuðborgarsvæðinu 11. mars 2011.$line$Staða málsins kynnt og nefndin látin vita af kynningarfundi um svæðið sem haldinn verður í kjölfarið.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 7. nóvember 2011 voru tillögur að friðlýsingu Skerjafjarðar lagðar fram.$line$Ákveðið að vinna áfram að málinu.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 12. desember 2011 var málið lagt fram á ný.$line$Frestað.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 6. janúar 2012 var málið lagt fram á ný ásamt kostnaðaráætlun vegna skiltagerða og áningastaða.

Fulltrúar meirihlutans í umhverfis- og samgöngunefnd (Samfylkingin, Vinstri hreyfingin grænt framboð og Næst besti flokkurinn) leggja til við bæjarstjórn að hún samþykki tillögu að friðlýsingu Skerjafjarðar innan marka Kópavogs samkvæmt <EM>auglýsingu um búsvæðavernd í Skerjafirði innan bæjarmarka Kópavogs </EM>og geri samning við Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofu Kópavogsbæjar um umsjón og rekstur svæðisins, þar sem gert er ráð fyrir að umsjón og eftirlit með svæðinu verði áfram í höndum Kópavogsbæjar og Náttúrufræðistofu Kópavogs. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks eru andvígir hugmyndum um friðlýsingu í ljósi þess að í dag er bæjarvernd á leirum í Kópavogi og Fossvogi. Ekki hefur verið sýnt fram á að ávinningur sé af friðlýsingu umfram bæjarvernd. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja því eðlilegt að kjörnir fulltrúar Kópavogs fari með ákvörðunarvald i málefnum Kópavogs en ekki kjörnir fulltrúar ríkisins þ.e. ráðherra. Fulltrúar meirihlutans telja friðlýsinguna hafa mikið gildi fyrir Kópavog og að kjörnir fulltrúar í Kópavogi muni hafa áfram ákvörðunarvald yfir hinu friðlýsta svæði.

08

Umhverfis- og samgöngunefnd - 13. fundur

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 7. nóvember 2011 voru tillögur að friðlýsingu Skerjafjarðar lagðar fram.$line$Ákveðið að vinna áfram að málinu.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 12. desember 2011 var málið lagt fram á ný.

Frestað.

09

Skipulagsnefnd - 1198. fundur

Á fundi skipulagsnefndar 12. desember 2011 var málið lagt fram á ný.

Frestað.

10

Umhverfis- og samgöngunefnd - 11. fundur

Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 7. nóvember 2011 voru tillögur að friðlýsingu Skerjafjarðar lagðar fram.

<STRONG>Ákveðið að vinna áfram að málinu.</STRONG>

11

Hafnarstjórn - 77. fundur

Formaður skipulagsnefndar, Guðný Dóra Gestsdóttir og formaður umhverfis- og samgöngunefndar, Margrét Júlía Rafnsdóttir, sátu fundinn undir þessum lið. $line$

Miklar umræður urðu undir þessum lið. Að þeim loknum las formaður hafnarstjórnar upp eftirfarandi tillögu:"Hafnarstjórn þykir miður að friðlýsing Skerjafjarðar hafi ekki komist fyrr á dagskrá hafnarstjórnar, en málið kom fyrst upp árið 2007, en þá á vettvangi SSH.Málið barst á borð hafnarstjórnar í september á þessu ári og þá með þeim formerkjum að flýta ætti umfjöllun þess þannig að afstaða Kópavogsbæjar væri ljós.Hafnarstjórn hefur lagt sig fram um að kynna sér málið í þaula og m.a. haldið fundi með skipulagsstjóra og forstöðumanni Náttúrufræðistofu, þá hafa formenn skipulagsnefndar og umhverfis- og samgöngunefndar mætt á fundi hafnarstjórnar. Það er skoðun hafnarstjórnar að í tillögu eitt sé of skammt gengið í friðlýsingu, en heldur langt gengið í tillögu þrjú, þar sem ekki væri hægt að fara í frekari uppbyggingu varðandi hafnsækna starfsemi á svæðinu.Hafnarstjórn leggur því til að tillaga tvö verði samþykkt, en áhrif þess yrðu jákvæð á náttúru og líffræðilega fjölbreytni á friðaða svæðinu.Ingibjörg Hinriksdóttir, Brynjar Örn Gunnarsson Gísli Skarphéðinsson" Tillagan samþykkt með 3 atkvæðum gegn 2 atkvæðum Jóns Daða Ólafssonar og Everts K. Evertssonar, sem lögðu fram eftirfarandi bókun: "Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja að mjög margt í framkominni tillögu skapi áhættu fyrir Kópavog nú þegar. Einnig skapi það áhættu langt inn í framtíðina sem erfitt sé að sjá fyrir núna. Tillagan útiloki þannig aðgerðir og tækifæri framtíðarinnar. Þar sem aðgerðin friðlýsing er bæði inngripsmikil og óafturkræf, þá margfaldar það áhrif þessara áhættuþátta. Eftirfarandi eru nokkrir þegar þekktir áhættuþættir:- Hvaða áhrif hefur tillagan á byggingu göngubrúar yfir Fossvoginn? Verður hægt að hnika til staðsetningu? Verður hægt að útfæra fyllingu með brú á milli? Annað ófyrirséð?- Hvaða áhrif hefur tillagan á skipaumferð í höfnina almennt? Áhrif á stærri skip? Áhrif á umferð minni skipa og sportbáta? Verður hægt að takmarka umferð með seinnitíma túlkun á friðlýsingarlögum? Annað ófyrirséð?- Hvaða áhrif hefur tillagan á nýtingu lóða á hafnarsvæðinu? Verða takmarkanir á starfsemi lóðarhafa? Hvað með OK Hull? Eða aðra? Annað ófyrirséð?- Hvaða áhrif hefur tillagan á tekjumöguleika Kópavogshafna? Fram hafa komið hugmyndir um aukna nýtingu hafnarinnnar til sport- og tómstundaiðkana, t.d. einmitt vestan megin við höfnina Kópavogsmegin. Myndi tillagan slá það allt út af borðinu?- Hvaða áhrif hefur tillagan á framtíðarvegtengingu Kársnessins við Vatnsmýrina? Hvað með tengingu Vatnsmýrarinnar við Álftanes og áfram alla leið til Straumsvíkur? Væri það umhugsunarvert, til framtíðar litið, að leysa þannig úr framtíðarverkefni umferðarmála á höfuðborgarsvæðinu, frekar en að ryðja nýjum brautum leið í gegnum þétta byggð? Útilokar tillagan tækifæri framtíðarinnar sem enginn veit hver eru núna?Því leggja fulltrúar Sjálfstæðisflokksins það til að markmiðum þeirrar friðunar sem tillagan felur í sér verði náð með því að fara leið óbreytts ástands í Friðlýsingu Skerjafjarðar og Bæjarvernd verði nýtt til að skapa friðun og athafnasvæði fyrir lífríki.Jón Daði Ólafsson, Evert Kr. Evertsson"

12

Hafnarstjórn - 76. fundur

Umræður um friðlýsingu Skerjafjarðar. Skipulagsstjóri og forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs sátu fundinn undir þessum lið.

13

Hafnarstjórn - 75. fundur

<DIV&gt;Formaður fór yfir málið með stjórninni.&nbsp; Formanni falið að boða til næsta fundar með skipulagsstjóra og forstöðumanni Náttúrufræðistofu Kópavogs, þann 19. september nk. kl. 16:00 á bæjarskrifstofunum.</DIV&gt;

14

Umhverfis- og samgöngunefnd - 3. fundur

Mál er varðar friðlýsingu Álftaness - Skerjafjarðar í samræmi við náttúruverndaráætlun 2004-2008 hefur verið til umfjöllunar í umhverfisráði. $line$Á fundi umhverfisráðs 29. nóvember 2010 var málið lagt fram á ný.$line$Guðríður Þorvarðardóttir frá Umhverfisstofnun og Sigurður Ármann Þráinsson kynntu verkefnið um friðlýsingu Skerjafjarðar, reglur og næstu skref við friðlýsingu svæðisins og Hilmar Malmquist forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs kynnti svæðið út frá náttúru og hvaða áhrif friðlýsing hefur á það. Umhverfisráð þakkar þeim komuna og felur skipulags- og umhverfissviði áframhaldandi vinnu við friðlýsingu svæðisins og að fundað verði með þeim sveitarfélögum sem hlut eiga að máli.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 21. mars 2011 er lögð fram fundargerð frá fundi aðila nærliggjandi sveitarfélaga dags. 13. janúar 2011 og greint er frá fundi með nefndarmönnum umhverfis- og skipulagsnefnda á höfuðborgarsvæðinu 11. mars 2011.$line$Staða málsins kynnt og nefndin látin vita af kynningarfundi um svæðið sem haldinn verður fljótlega.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 9. maí 2011 var gerð grein fyrir fundi sem haldinn var á Umhverfisstofnun 29. apríl 2011 vegna þar sem nefndarmönnum í umhverfis- og skipulagsnefndum á höfuðborgarsvæðinu gafst kostur á að kynna sér málið. Margrét Júlía Rafnsdóttir, formaður umhverfis- og samgöngunefndar og umhverfisfulltrúi kynntu stöðu friðlýsingar í Kópavogi.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<STRONG&gt;Málið kynnt og næstu skref ákveðin.</STRONG&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

15

Skipulagsnefnd - 1189. fundur

Gerð grein fyrir tillögugerð Skipulags- og byggingardeildar í samvinnu við Umhverfisstofnun að friðlýsingu Skerjafjarðar. Lögð fram fundargerð samráðsfundar fulltrúa sveitarfélags umhverfis Skerjafjörð sem haldinn var á Umhverfisstofnun 11. mars 2011. Í niðurstöðu fundarins kemur m.a. fram að fundarmenn voru sammála um mikilvægi þess að sveitarfélögin stilli sig saman og að tenging verði milli samráðshóps um friðlýsingu og fulltrúa sveitarfélaga í starfshópi SSH um svæðisskipulag.

<DIV&gt;<DIV&gt;<STRONG&gt;Staða málins kynnt.</STRONG&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

16

Umhverfis- og samgöngunefnd - 1. fundur

Mál er varðar friðlýsingu Álftaness - Skerjafjarðar í samræmi við náttúruverndaráætlun 2004-2008 hefur verið til umfjöllunar í umhverfisráði. $line$Á fundi umhverfisráðs 29. nóvember 2010 var málið lagt fram á ný.$line$Guðríður Þorvarðardóttir frá Umhverfisstofnun og Sigurður Ármann Þráinsson kynntu verkefnið um friðlýsingu Skerjafjarðar, reglur og næstu skref við friðlýsingu svæðisins og Hilmar Malmquist forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs kynnti svæðið út frá náttúru og hvaða áhrif friðlýsing hefur á það. Umhverfisráð þakkar þeim komuna og felur skipulags- og umhverfissviði áframhaldandi vinnu við friðlýsingu svæðisins og að fundað verði með þeim sveitarfélögum sem hlut eiga að máli.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 21. mars 2011 er lögð fram fundargerð frá fundi aðila nærliggjandi sveitarfélaga dags. 13. janúar 2011 og greint er frá fundi með nefndarmönnum umhverfis- og skipulagsnefnda á höfuðborgarsvæðinu 11. mars 2011.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<STRONG&gt;Staða málsins kynnt og nefndin látin vita af kynningarfundi um svæðið sem haldinn verður fljótlega.</STRONG&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

17

Umhverfisráð - 497. fundur

Mál er varðar friðlýsingu Álftaness - Skerjafjarðar í samræmi við náttúruverndaráætlun 2004-2008 hefur verið til umfjöllunar í umhverfisráði. $line$Á fundi umhverfisráðs 29. nóvember 2010 var málið lagt fram á ný.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<STRONG&gt;Guðríður Þorvarðardóttir frá Umhverfisstofnun og Sigurður Ármann Þráinsson kynntu verkefnið um friðlýsingu Skerjafjarðar, reglur og næstu skref&nbsp;við friðlýsingu svæðisins og Hilmar Malmquist forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs kynnti svæðið út frá náttúru og hvaða áhrif friðlýsing hefur á það. Umhverfisráð þakkar þeim komuna og felur skipulags- og umhverfissviði áframhaldandi vinnu við friðlýsingu svæðisins og að fundað verði með þeim sveitarfélögum sem hlut eiga að máli.<BR&gt;</DIV&gt;</STRONG&gt;<DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;