Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Auðbrekka þróunarsvæði.

Málsnúmer: 1411143

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1136. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 12. apríl, með tilvísan í erindi Skipulagsstofnunar dags. 24. febrúar 2016 og í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er tillaga skipulags- og byggingardeildar Kópavogs að deiliskipulagi fyrir hluta þróunarsvæðis Auðbrekku, svæði 1, 2 og 3 lagt fram að nýju og hafa eftirfarandi leiðréttingar verið gerðar á framlögðum gögnum; Skipulagsuppdrætti, greindargerð skipulagsskilmálum, skýringarhefti og umsögn.$line$1. Afmörkun deiliskipulags hefur verið samræmt afmörkun deiliskipulags Hafnarfjarðarvegar - Skeljabrekku og Nýbýlavegar.$line$2. Á skipulagsuppdrætti hafa verið teknar út fyrirhugaðar breytingar sbr. skipulagslýsingu þróunarsvæðis Auðbrekku.$line$3. Þau hús sem fyrirhugað er að fjarlægja eru auðkennd á skýringarmyndum.$line$4. Leiðbeinandi lína hæðarskila er auðkennd í skýringum en tákn um manir tekið út.$line$5. Texti í greinargerð og skilmálum um viðmið, skilti og gerð húsagatna, vistgötur, torg og þróunarsvæði hefur verið lagfærður.$line$Með breyttri tillögu Auðbrekku var einnig lagt fram á fundi skipulagsnefndar breytt mörk deiliskipulags Hafnarfjarðarvegar - Skeljabrekku og Nýbýlavegar samþykkt í bæjarstjórn 14. september 2004. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2817. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 12. apríl, með tilvísan í erindi Skipulagsstofnunar dags. 24. febrúar 2016 og í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er tillaga skipulags- og byggingardeildar Kópavogs að deiliskipulagi fyrir hluta þróunarsvæðis Auðbrekku, svæði 1, 2 og 3 lagt fram að nýju og hafa eftirfarandi leiðréttingar verið gerðar á framlögðum gögnum; Skipulagsuppdrætti, greindargerð skipulagsskilmálum, skýringarhefti og umsögn.$line$1. Afmörkun deiliskipulags hefur verið samræmt afmörkun deiliskipulags Hafnarfjarðarvegar - Skeljabrekku og Nýbýlavegar.$line$2. Á skipulagsuppdrætti hafa verið teknar út fyrirhugaðar breytingar sbr. skipulagslýsingu þróunarsvæðis Auðbrekku.$line$3. Þau hús sem fyrirhugað er að fjarlægja eru auðkennd á skýringarmyndum.$line$4. Leiðbeinandi lína hæðarskila er auðkennd í skýringum en tákn um manir tekið út.$line$5. Texti í greinargerð og skilmálum um viðmið, skilti og gerð húsagatna, vistgötur, torg og þróunarsvæði hefur verið lagfærður.$line$Með breyttri tillögu Auðbrekku var einnig lagt fram á fundi skipulagsnefndar breytt mörk deiliskipulags Hafnarfjarðarvegar - Skeljabrekku og Nýbýlavegar samþykkt í bæjarstjórn 14. september 2004. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Skipulagsnefnd - 1275. fundur

Í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og með tilvísan í erindi Skipulagsstofnunar dags. 24. febrúar 2016 er tillaga skipulags- og byggingardeildar Kópavogs að deiliskipulagi fyrir hluta þróunarsvæðis Auðbrekku, svæði 1, 2 og 3 lagt fram að nýju og hafa eftirfarandi leiðréttingar verið gerðar á framlögðum gögnum; Skipulagsuppdrætti, greindargerð skipulagsskilmálum, skýringarhefti og umsögn.$line$1. Afmörkun deiliskipulags hefur verið samræmt afmörkun deiliskipulags Hafnarfjarðarvegar - Skeljabrekku og Nýbýlavegar.$line$2. Á skipulagsuppdrætti hafa verið teknar út fyrirhugaðar breytingar sbr. skipulagslýsingu þróunarsvæðis Auðbrekku.$line$3. Þau hús sem fyrirhugað er að fjarlægja eru auðkennd á skýringarmyndum.$line$4. Leiðbeinandi lína hæðarskila er auðkennd í skýringum en tákn um manir tekið út.$line$5. Texti í greinargerð og skilmálum um viðmið, skilti og gerð húsagatna, vistgötur, $line$torg og þróunarsvæði hefur verið lagfærður.$line$$line$Með breyttri tillögu Auðbrekku var einnig lagt fram á fundi skipulagsnefndar breytt mörk deiliskipulags Hafnarfjarðarvegar - Skeljabrekku og Nýbýlavegar samþykkt í bæjarstjórn 14. september 2004.

Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Bæjarstjórn - 1130. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 19. janúar, lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga skipulags- og byggingardeildar Kópavogs að deiliskipulagi fyrir hluta þróunarsvæðis Auðbrekku, svæði 1, 2 og 3. Tillaga er sett fram í skipulagsskilmálum og á deiliskipulagsuppdrætti ásamt greinargerð dags. 10. ágúst 2015 í mkv. 1:1000. Á fundi skipulagsnefndar 5.10.2015 var samþykkt með tilvísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu og málinu vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Tillagan var auglýst í Fréttablaðinu 22.10.2015 og í Lögbirtingarblaðinu 23.10.2015. Tillagan var send Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirlti Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis, Umhverffisstofnun, Isavia ohf. og Orkuveitu Reykjavíkur til umsagnar. Kynningu lauk 7.12.2015. Athugasemd barst frá Vegagerðinni, dags. 13.11.2015; frá félagasamtökum Sukyo Mahikari, Nýbýlavegi 6, dags. 7.12.2015; frá Teiti Má Sveinssyni, hdl., f.h. lóðarhafa Auðbrekku 7, dags. 7.12.2015. Ennfremur lögð fram umsögn Isavia, dags. 9.12.2015. Lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar um framkomnar athugasemdir og ábendingar. Er umsögnin dags. 18. janúar 2016. Eftir að athugasemdafresti lauk bárust athugasemdir og ábendingar frá íbúum við Löngubrekku 41, 43, 45, og 47, dags. 17.1.2016; frá Árna Davíðssyni, dags. 15.1.2016. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 framlagða tillögu með áorðnum breytingum ásamt umsögn um athugasemdir og ábendingar er bárust á kynningartíma og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Með tilvísan í lið 2.4 í skipulagsskilmálum svæðisins samþykkti skipulagsnefnd jafnframt að unnin yrði nánari útfærsla á hönnun bæjarlandsins á deiliskipulagssvæðinu. Lögð verði áhersla á vandaða hönnun og efnisval m.a hvað varðar torg, opin svæði, gróður, lýsingu, göngu- og hjólaleiðir svo og yfirborð gatna. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

05

Bæjarráð - 2805. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 19. janúar, lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga skipulags- og byggingardeildar Kópavogs að deiliskipulagi fyrir hluta þróunarsvæðis Auðbrekku, svæði 1, 2 og 3. Tillaga er sett fram í skipulagsskilmálum og á deiliskipulagsuppdrætti ásamt greinargerð dags. 10. ágúst 2015 í mkv. 1:1000. Á fundi skipulagsnefndar 5.10.2015 var samþykkt með tilvísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu og málinu vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Tillagan var auglýst í Fréttablaðinu 22.10.2015 og í Lögbirtingarblaðinu 23.10.2015. Tillagan var send Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirlti Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis, Umhverffisstofnun, Isavia ohf. og Orkuveitu Reykjavíkur til umsagnar. Kynningu lauk 7.12.2015. Athugasemd barst frá Vegagerðinni, dags. 13.11.2015; frá félagasamtökum Sukyo Mahikari, Nýbýlavegi 6, dags. 7.12.2015; frá Teiti Má Sveinssyni, hdl., f.h. lóðarhafa Auðbrekku 7, dags. 7.12.2015. Ennfremur lögð fram umsögn Isavia, dags. 9.12.2015. Lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar um framkomnar athugasemdir og ábendingar. Er umsögnin dags. 18. janúar 2016. Eftir að athugasemdafresti lauk bárust athugasemdir og ábendingar frá íbúum við Löngubrekku 41, 43, 45, og 47, dags. 17.1.2016; frá Árna Davíðssyni, dags. 15.1.2016. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 framlagða tillögu með áorðnum breytingum ásamt umsögn um athugasemdir og ábendingar er bárust á kynningartíma og vísar málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Með tilvísan í lið 2.4 í skipulagsskilmálum svæðisins samþykkir skipulagsnefnd jafnframt að unnin verði nánari útfærsla á hönnun bæjarlandsins á deiliskipulagssvæðinu. Lögð verði áhersla á vandaða hönnun og efnisval m.a hvað varðar torg, opin svæði, gróður, lýsingu, göngu- og hjólaleiðir svo og yfirborð gatna.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

06

Skipulagsnefnd - 1271. fundur

Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingardeildar Kópavogs að deiliskipulagi fyrir hluta þróunarsvæðis Auðbrekku, svæði 1, 2 og 3. Tillaga er sett fram í skipulagsskilmálum og á deiliskipulagsuppdrætti ásamt greinargerð dags. 10. ágúst 2015 í mkv. 1:1000. Á fundi skipulagsnefndar 5.10.2015 var samþykkt með tilvísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Tillagan var auglýst í Fréttablaðinu 22.10.2015 og í Lögbirtingarblaðinu 23.10.2015. Tillagan var send Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirlti Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis, Umhverffisstofnun, Isavia ohf. og Orkuveitu Reykjavíkur til umsagnar. Kynningu lauk 7.12.2015. Athugasemd barst frá Vegagerðinni, dags. 13.11.2015; frá félagasamtökum Sukyo Mahikari, Nýbýlavegi 6, dags. 7.12.2015; frá Teiti Má Sveinssyni, hdl., f.h. lóðarhafa Auðbrekku 7, dags. 7.12.2015. Ennfremur lögð fram umsögn Isavia, dags. 9.12.2015. $line$$line$Lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar um framkomnar athugasemdir og ábendingar. Er umsögnin dags. 18. janúar 2016.$line$ $line$Eftir að athugasemdafresti lauk bárust athugasemdir og ábendingar frá íbúum við Löngubrekku 41, 43, 45, og 47, dags. 17.1.2016; frá Árna Davíðssyni, dags. 15.1.2016.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 framlagða tillögu með áorðnum breytingum ásamt umsögn um athugasemdir og ábendingar er bárust á kynningartíma.$line$$line$Með tilvísan í lið 2.4 í skipulagsskilmálum svæðisins samþykkir skipulagsnefnd jafnframt að unnin verði nánari útfærsla á hönnun bæjarlandsins á deiliskipulagssvæðinu. Lögð verði áhersla á vandaða hönnun og efnisval m.a hvað varðar torg, opin svæði, gróður, lýsingu, göngu- og hjólaleiðir svo og yfirborð gatna. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

07

Bæjarstjórn - 1129. fundur

Frá bæjarlögmanni, lögð fram drög að rammasamkomulagi við Lund fasteignafélag ehf. um þróun og uppbyggingu deiliskipulags Auðbrekku. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum drög að rammasamkomulagi við Lund fasteignafélag ehf. um þróun og uppbyggingu deiliskipulags Auðbrekku.

08

Bæjarráð - 2803. fundur

Frá bæjarlögmanni, lögð fram drög að rammasamkomulagi við Lund fasteignafélag ehf. um þróun og uppbyggingu deiliskipulags Auðbrekku. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á síðasta fundi.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$$line$Bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.

09

Bæjarráð - 2802. fundur

Frá bæjarlögmanni, lögð fram drög að rammasamkomulagi við Lund fasteignafélag ehf. um þróun og uppbyggingu deiliskipulags Auðbrekku.

Lagt fram til kynningar og frestað til næsta fundar bæjarráðs.

10

Skipulagsnefnd - 1270. fundur

Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingardeildar Kópavogs að deiliskipulagi fyrir hluta þróunarsvæðis Auðbrekku, svæði 1, 2 og 3. Tillaga er sett fram í skipulagsskilmálum og á deiliskipulagsuppdrætti ásamt greinargerð dags. 10. ágúst 2015 í mkv. 1:1000. Á fundi skipulagsnefndar 5.10.2015 var samþykkt með tilvísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Tillagan var auglýst í Fréttablaðinu 22.10.2015 og í Lögbirtingarblaðinu 23.10.2015. Tillagan var send Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirlti Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis, Umhverffisstofnun, Isavia ohf. og Orkuveitu Reykjavíkur til umsagnar. Kynningu lauk 7.12.2015. Athugasemd barst frá Vegagerðinni, dags. 13.11.2015; frá félagasamtökum Sukyo Mahikari, Nýbýlavegi 6, dags. 7.12.2015; frá Teiti Má Sveinssyni, hdl., f.h. lóðarhafa Auðbrekku 7, dags. 7.12.2015.$line$$line$Þá lögð fram umsögn Isavia, dags. 9.12.2015.

Frestað. Vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.

11

Bæjarstjórn - 1124. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 6. október, lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingardeildar Kópavogs að deiliskipulagi fyrir hluta þróunarsvæðis Auðbrekku, svæði 1, 2 og 3. Tillagan er í samræmi við Aðalskipulags Kópavogs 2012-2024 og nær til Nýbýlavegar 2-12, Auðbrekku 1-13, Auðbrekku 29, Skeljabrekku 4 og Dalbrekku 2-10. Í tillögunni er gert ráð fyrir að heimila aukið byggingarmagn á ofangreindum svæðum með því markmiði að koma fyrir blandaðri byggð þar sem horft verður til fyrstu íbúða kaupenda og að koma til móts við óskir þeirra sem koma til með að búa og starfa á Auðbrekkusvæðinu um að nota "grænar lausnir" þegar kemur að bílaeign, ferðamáta og sorpflokkun. Tillögunni fylgir húsakönnun dags. í desember 2014 og umhverfisskýrsla frá verkfræðistofunni Mannvit dags. 23. ágúst 2015 þar sem fram koma áhrif breytingarinnar á umhverfisþættina andrúmsloft, ásýnd, útsýni, samfélag og eignir. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

12

Bæjarráð - 2791. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 6. október, lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingardeildar Kópavogs að deiliskipulagi fyrir hluta þróunarsvæðis Auðbrekku, svæði 1, 2 og 3. Tillagan er í samræmi við Aðalskipulags Kópavogs 2012-2024 og nær til Nýbýlavegar 2-12, Auðbrekku 1-13, Auðbrekku 29, Skeljabrekku 4 og Dalbrekku 2-10. Í tillögunni er gert ráð fyrir að heimila aukið byggingarmagn á ofangreindum svæðum með því markmiði að koma fyrir blandaðri byggð þar sem horft verður til fyrstu íbúða kaupenda og að koma til móts við óskir þeirra sem koma til með að búa og starfa á Auðbrekkusvæðinu um að nota "grænar lausnir" þegar kemur að bílaeign, ferðamáta og sorpflokkun. Tillögunni fylgir húsakönnun dags. í desember 2014 og umhverfisskýrsla frá verkfræðistofunni Mannvit dags. 23. ágúst 2015 þar sem fram koma áhrif breytingarinnar á umhverfisþættina andrúmsloft, ásýnd, útsýni, samfélag og eignir. Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

13

Skipulagsnefnd - 1266. fundur

Lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingardeildar Kópavogs að deiliskipulagi fyrir hluta þróunarsvæðis Auðbrekku, svæði 1, 2 og 3.$line$Nánar til tekið nær tillagan til Nýbýlavegar 2-12, Auðbrekku 1-13, Auðbrekku 29, Skeljabrekku 4 og Dalbrekku 2-10.$line$$line$Tillagan er í samræmi við Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024 og skipulagslýsingu dags. 4. maí 2015 samþykkta í bæjarstjórn 12. maí 2015 og tillögu ASK arkitekta frá desember 2014 um heildaryfirbragð þróunarsvæðisins.$line$$line$Í tillögunni er gert ráð fyrir að heimila aukið byggingarmagn á ofangreindum svæðum með því markmiði að koma fyrir blandaðri byggð þar sem horft verður til fyrstu íbúða kaupenda og að koma til móts við óskir þeirra sem koma til með að búa og starfa á Auðbrekkusvæðinu um að nota "grænar lausnir" þegar kemur að bílaeign, ferðamáta og sorpflokkun.$line$$line$Í tillögu að deiliskipulagi fyrir svæði 1 (Nýbýlavegur 2-12 og Auðbrekka 29) er gert ráð fyrir byggt verði við núverandi húsnæði að Nýbýlavegi 2, 4, 6, 8 og 12, 47 íbúðir auk verslunar og þjónusturými en í stað tvíbýlishúss að Auðbrekku 29 og atvinnuhúsnæðis að Nýbýlavegi 10 komi 42 íbúðir auk verslunar og þjónustu. Gert er ráð fyrir að heildarbyggingarmagn íbúða og atvinnuhúsnæðis (verslun og þjónustu) verði um 26.000 m2 þarf af um 16.700 í atvinnuhúsnæði auk niðurgrafinna bílageymslna sem áætlaðar eru um 5.700 m2 að stærð. Heildarbyggingarmagn er því áætlað um 31.600 m2. Gert er ráð fyrir bílakjallara undir fyrirhuguðum byggingum og miðað er við 1,3 stæði á íbúð og 1,0 stæði á hverja 50 m2 í atvinnuhúsnæði. Núverandi byggingarmagn á svæði 1 er um 12.000 m2 að stærð. Stofnuð verður ný sameiginleg lóð Nýbýlavegur 2-12 fyrir bílastæði og kjallara með kvöð um aðkomu og samnýtingu. Í tillögu að deiliskipulagi svæðisins er miðað við að meðalstærð íbúða sé um 100 m2 brúttó þ.e. með sameign (stigagangar og geymslur) en birt meðalstærð íbúða er áætluð um 80-85 m2. Í skipulagi svæðis 1 er því lögð áhersla á blandaða byggð þar sem horft verður til fyrstu íbúða kaupenda. Ennfremur felst í því möguleiki á að skoðaðar verði nýjar "kaupleiguleiðir" á húsnæðismarkaðinum, í samræmi við áherslur Kópavogsbæjar.$line$$line$Í tillögu að deiliskipulagi fyrir svæði 2 (Auðbrekka 1, 3 og 5 og Skeljabrekka 4 (Krókslóðin)) er gert ráð fyrir um 16.500 m2 í atvinnuhúsnæði auk bílgeymslu neðanjarðar sem er áætluð um 5.500 m2 að flatarmáli. Heildarbyggingarmagn á svæði 2 er því áætlað að hámarki 22.000 m2. Núverandi byggingarmagn á svæði 2 (Auðbrekka 1, 3 og 5) er samanlagt um 3.500 m2.$line$$line$Samkvæmt fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi á svæði 3 (Dalbrekka 2, 4 og 6 og Auðbrekka 7, 9-11 og 13-15) er miðað við að byggðar verði 76 íbúðir auk verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Heildarbyggingarmagn á svæði 3 er áætlað um 15.500 m2 þar af um 7.000 m2 í verslun og þjónustu. Gert er ráð fyrir bílakjallara undir fyrirhuguðum byggingum og miðað er við 1,3 stæði á íbúð og 1,0 stæði á hverja 50 m2 í atvinnuhúsnæði. Á svæði 3 eru nú um 2.300 m2 í atvinnuhúsnæði. Í tillögu að deiliskipulagi svæðisins er miðað við að meðalstærð íbúða sé um 110 m2 brúttó þ.e. með sameign (stigagangar og geymslur) en birt meðalstærð íbúða er áætluð um 90-95 m2. $line$$line$Tillögunni fylgir húsakönnun dags. í desember 2014 og umhverfisskýrsla frá verkfræðistofunni Mannvit dags. 23. ágúst 2015 þar sem fram koma áhrif breytingarinnar á umhverfisþættina andrúmsloft, ásýnd, útsýni, samfélag og eignir.$line$$line$Tillaga er sett fram í skipulagsskilmálum og á deiliskipulagsuppdrætti ásamt greindargerð dags. 10. ágúst 2015 í mkv 1:1000.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

14

Umhverfis- og samgöngunefnd - 68. fundur

Greint frá stöðu mála.

Lagt fram og kynnt.

15

Skipulagsnefnd - 1264. fundur

Greint frá stöðu mála.

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu mála.

16

Umhverfis- og samgöngunefnd - 66. fundur

Lögð fram til afgreiðslu drög að deiliskipulagstillögu Nýbýlavegar 2-12 og Auðbrekku 1-15 oddatölur. Reitur 1 og 2 dags. 16. mars 2015.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma fyrir sitt leiti framlögð drög að deiliskipulagstillögu.

17

Skipulagsnefnd - 1262. fundur

Lögð fram drög að deiliskipulagi Auðbrekku: Reitur 1, 2 og 3, dags. 22.6.2015. Drög að tillögu eru sett fram á uppdrætti í mkv. 1:2000 ásamt greinargerð, skýringarmyndum og skipulagsskilmálum.

Greint frá stöðu mála. Lagt fram og kynnt.

18

Bæjarstjórn - 1116. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 5. maí, lögð fram skipulagslýsing fyrir þróunarsvæði Auðbrekku og drög að nýju deiliskipulagi. Skipulagnefnd samþykkir framlagða skipulagslýsingu fyrir þróunarsvæði Auðbrekku. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

19

Bæjarráð - 2774. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 5. maí, lögð fram skipulagslýsing fyrir þróunarsvæði Auðbrekku og drög að nýju deiliskipulagi. Skipulagnefnd samþykkir framlagða skipulagslýsingu fyrir þróunarsvæði Auðbrekku. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

20

Skipulagsnefnd - 1258. fundur

Lögð fram skipulagslýsing fyrir þróunarsvæði Auðbrekku dags. 4.5.2015.$line$$line$Lögð fram drög að nýju deiliskipulagi fyrir reit 1, 2 og 3 dags. 4.5.2015.

Greint frá stöðu mála.$line$$line$Skipulagsnefnd samþykkti í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 framlagða skipulagslýsingu fyrir þróunarsvæði Auðbrekku dags. 4.5.2015. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

21

Umhverfis- og samgöngunefnd - 61. fundur

Kynntar niðurstöður samráðsfundar í Auðbrekku sem haldinn var 29.1.2015.

Lögð fram samantekt samráðsfundar dags. 29.1.2015.

22

Skipulagsnefnd - 1253. fundur

Lögð fram samantekt frá íbúafundi sem haldinn var 29. janúar 2015.

Kynnt.

23

Skipulagsnefnd - 1252. fundur

Greint frá stöðu mála. $line$$line$Haldinn verður samráðsfundur fimmtudaginn 29. janúar næstkomandi þar sem kynntar verða hugmyndir um fyrirhugaða deiliskipulagsvinnu og stofnun hagsmunasamtaka Auðbrekkusvæðisins.

Kynnt.

24

Umhverfis- og samgöngunefnd - 59. fundur

Greint frá stöðu mála.

Lagt fram og kynnt.

25

Bæjarráð - 2755. fundur

Kynning á þróunarsvæðinu við Auðbrekku.

Birgir Sigurðsson skipulagsstjóri kynnti niðurstöður hugmyndasamkeppni um skipulag þróunarsvæðis Auðbrekku.

26

Skipulagsnefnd - 1250. fundur

Greint frá stöðu mála.

Kynnt. Vísað til kynningar í bæjarráði og bæjarstjórn.

27

Skipulagsnefnd - 1249. fundur

Kynningar á hugmyndavinnu fyrir Auðbrekkusvæðið frá H3 arkitektum, KRark, Apparat ehf, T.ark, Yrki arkitektum og ASK arkitektum.

Kynnt.