Umhverfis- og samgöngunefnd - 42. fundur
í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Margrét Björnsdóttir - aðalfulltrúi
- Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
- Helgi Jóhannesson - aðalmaður
- Steingrímur Hauksson
- Kristján Matthíasson - aðalfulltrúi
- Hreiðar Oddsson - aðalmaður
- Gylfi Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - starfsmaður nefndar
- Birgir Hlynur Sigurðsson
Ritari
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir
Dagskrá fundar
Áshildur Bragadóttir framkvæmdastjóri kynnir Markaðsstofu Kópavogs, ásamt Theadóru Þorsteinsdóttur formanni.
Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar Áshildi Bragadóttur og Theadóru Þorsteinsdóttur fyrir áhugaverða kynningu.
Innkaupafulltrúi á umhverfissviði kynnir innkaup og áherslu á vistvæn innkaup.
Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar Lilju Ástudóttur fyrir góða kynningu.
Á fundi bæjarstjórnar, dags. 22.10.2013, lagði Ómar Stefánsson til að málinu yrði vísað til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu. $line$Deildarstjóri framkvæmdadeildar, Stefán L. Stefánsson, fer yfir flokkun og grenndargáma í bænum.
Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar Stefáni L. Stefánssyni fyrir yfirferðina og felur umhverfissviði að vinna áfram í málinu.
Gísli Norðdahl byggingafulltrúi fer yfir stöðu gáma í bænum.
Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar Gísla Norðdahl fyrir kynninguna. Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að vinna verklagsreglur um meðferð gáma.
Lagt er fram erindi frá versluninni Iceland þar sem óskað er eftir að setja upp auglýsingaskilti.
Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að kanna áhuga fyrirtækja fyrir uppsetningu á skilti fyrir fyrirtæki við Engihjalla 8.
Lögð er fram niðurstaða úr umferðarátaki Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB), Gangbraut já takk, dags. haust 2013. Einnig eru lagðar fram tvær leiðbeiningar um gönguþveranir.
Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að farið verði í lagfæringar á tilteknum hraðahindrunum í Kópavogi næsta vor, þegar fyrir liggja samræmdar leiðbeiningar um gönguþveranir á höfuðborgarsvæðinu.
Lagðar fram niðurstöður ferðamátakönnunar sex og tólf ára barna í grunnskólum Kópavogs.
Kynnt.
Kynnt er vinna við Minjaskrá Kópavogs 2014.
Umhverfisfulltrúi vinnur áfram við minjaskrá.
Lagt er fram erindi frá leikskólanum Arnarsmára, dags. 18.10.2013.
Kópavogsbær er ekki eigandi að umræddu landi og getur því ekki orðið við erindinu.
Lagt fram til kynningar drög að stöðuskýrslu um vatnasvæði Íslands.
Lagt fram og kynnt.
Nafnanefnd tekur til starfa.
Í nafnanefnd sitja Steingrímur Hauksson, formaður, Birgir Sigurðsson, Sólveig H. Jóhannsdóttir, Hreiðar Oddsson og Helgi Jóhannesson.
Erindi kynnt fyrir umhverfis- og samgöngunefnd.
Lagt fram og kynnt.
Lögð er fram umferðartalning á Kársnesi og Vatnsenda, dags. nóvember 2013.
Kynnt.
Lagðar eru fram fundargerðir stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 3. og 30. október 2013.
Lagt fram.
Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024 var auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá og með 9. ágúst til 20. september 2013. Alls barst 31 athugasemd og ábendingar. $line$Lögð fram til kynningar greinargerð, umhverfisskýrsla og uppdrættir Aðalskipulags Kópavogs 2012 - 2024, eftir auglýsingu, dags. 11. nóvember 2013.$line$$line$Enn fremur lögð fram fundargerð skipulagsnefndar frá 11. nóvember 2013. Með tilvísan í framlögð gögn samþykkti skipulagsnefnd aðalskipulagið með áorðnum breytingum ásamt umsögnum um athugasemdir og ábendingar er bárust á kynningartíma og vísaði nýju aðalskipulagi Kópavogs, Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024 til bæjarstjórnar til samþykktar og afgreiðslu Skipulagsstofnunar skv. 2. mgr. 32. gr skipulagslaga nr. 123/2010. Aðalskipulagið byggir á tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024 sem auglýst var samtímis tillögu að Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 og er nú í lokaferli.$line$$line$Þá lögð fram til kynningar tillaga að afgreiðslu Aðalskipulags Kópavogs 2012-2024 skv. lögum nr. 105/2006. Greinargerð skv. 9. gr. um afgreiðslu áætlunar, tl. b og c.
Kynnt.