Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Velferðar- og mannréttindaráð - 3. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Björg Baldursdóttir - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Svava Halldóra Friðgeirsdóttir - aðalmaður
  • Matthías Björnsson - aðalmaður
  • Hólmfríður Hilmarsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
  • Erlendur H. Geirdal - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Sigrún Þórarinsdóttir - Sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir

Dagskrá fundar

01

Þjónustukönnun sveitarfélaga 2024 - Gallup

Lögð fram þjónustukönnun sveitarfélaga fyrir árið 2024 sem unnin var af Gallup.

Á fundi bæjarráðs dags. 6.2.2025 var bókað að bæjarráð feli velferðar- og mannréttindaráði að taka til skoðunar niðurstöður sveitarfélagakönnunar Gallup 2024 hvað varðar það sem snýr að þjónustu við fatlað fólk.

Velferðar- og mannréttindaráð felur sviðsstjóra velferðarsviðs að greina niðurstöður sveitarfélagakönnunar Gallup 2024 hvað varðar þjónustu við fatlað fólk og mögulegar skýringar og koma með tillögur að viðbrögðum.

02

Velferðar- og mannréttindaráð óskar eftir upplýsingum um biðlista

Velferðar- og mannréttindaráð óskar eftir að fá yfirlit yfir lengd biðtíma eftir félagslegri þjónustu: Hversu lengi hafa þeir beðið sem hafa verið lengst á biðlista eftir þjónustu velferðarsviðs?

Minnisblað velferðarsviðs dags. 3.3.2025 lagt fram.

Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir upplýsingarnar. Ráðið óskar eftir ítarlegri upplýsingum um biðtíma eftir skammtímadvölum.

03

Erindi frá BOFS vegna forsjárskráningar í þjóðskrá

Lagt fram til kynningar minnisblað skrifstofustjóra dags.3.3.2025 vegna erindis frá Barna- og fjölskyldustofu (BOFS) vegna forsjárskráningar í þjóðskrá.

Lagt fram.

04

Afmælisnefnd vegna 70 ára afmælis Kópavogsbæjar

Kópavogsbær fagnar 70 ára afmæli 11. maí næstkomandi og af því tilefni hefur tekið til starfa afmælisnefnd sem óskar eftir að nefndir og ráð taki málið upp og komi tillögum áfram til afmælisnefndar. Lagt fram minnisblað verkefnastjóra á skrifstofu stjórnsýslusviðs dags. 18.2.25.

Lagt fram.

05

Málstefna Kópavogsbæjar

Drög að málstefnu lögð fram umsagnar velferðar- og mannréttindaráðs.

Fulltrúar í velferðar- og mannréttindaráði komu fram með athugasemdir við drög að málstefnu. Það vantar að minnast á íslenskt táknmál, einnig var rætt um þær athugasemdir sem menntaráð gerði við málstefnuna s.s. varðandi orðanotkun hugtaksins inngilding o.fl.

06

Styrkir til félagasamtaka

Lögð fram til kynningar og afgreiðslu tillaga að nýju fyrirkomulagi styrkveitinga til félagasamtaka á árinu 2026 ásamt yfirliti yfir nýtingu styrkja undanfarin ár.

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir framkomna tillögu að nýju fyrirkomulagi styrkveitinga til félagasamtaka.

07

Kynning á starfsemi velferðarsviðs

Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs.