4. bekkur
Veljið viðeigandi matstæki og viðmið hér fyrir ofan, þá birtast hér að neðan leiðir sem hægt er að nýta í íhlutun.
Listinn yfir leiðir er ekki tæmandi en leitast var við að velja inn verkfæri sem flestir hafa aðgang að.
Kynna skal niðurstöður allra skimana, stöðu- og framvinduprófa fyrir foreldrum og veita þeim viðeigandi ráðleggingar um hvernig þeir geta stutt við læsisnám og málþroska barnsins.
Matstæki
Hvað er metið?
Færni í sjálfvirkum, nákvæmum og fyrirhafnarlausum lestri.
Fyrir hverja?
Alla nemendur
Tímabil
September, janúar og maí. Fyrirlögn í september er hugsuð sem grunnmæling hjá nemendum í 1. bekk.
Ábyrgðaraðili
Deildarstjóri stoðþjónustu ber ábyrgð á framkvæmd, þ.e. að prófið sé lagt fyrir og að niðurstöður séu nýttar til að skipuleggja íhlutun. Umsjónarkennari, sérkennari eða annar kennari skólans sér um fyrirlögn.
Hvað er metið?
Færni í sjálfvirkum, nákvæmum og fyrirhafnarlausum lestri orða.
Fyrir hverja?
Lagt fyrir alla nemendur sem fá mælitölur á bilinu 1-7 á lesfimiprófi.
Tímabil
September, janúar og maí.
Ábyrgðaraðili
Deildarstjóri stoðþjónustu ber ábyrgð á framkvæmd, þ.e. að prófið sé lagt fyrir og að niðurstöður séu nýttar til að skipuleggja íhlutun. Umsjónarkennari, sérkennari eða annar kennari skólans sér um fyrirlögn.
Hvað er metið?
Þekkingu á tengslum bókstafs og hljóðs. Prófið gefur vísbendingar um hvort nemandi geti beitt hljóðaaðferðinni og umskráð texta af öryggi.
Fyrir hverja?
Lagt fyrir alla nemendur sem fá mælitölur á bilinu 1-7 á lesfimiprófi.
Tímabil
September, janúar og maí.
Ábyrgðaraðili
Deildarstjóri stoðþjónustu ber ábyrgð á framkvæmd, þ.e. að prófið sé lagt fyrir og að niðurstöður séu nýttar til að skipuleggja íhlutun. Umsjónarkennari, sérkennari eða annar kennari skólans sér um fyrirlögn.
Hvað er metið?
Stöðu og þróun lesskilnings.
Fyrir hverja?
Alla nemendur.
Tímabil
Fyrirlagnatímabil er fjórar vikur, sem falla oftast innan marsmánaðar, og er gefið út af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Ábyrgðaraðili
Deildarstjóri stoðþjónustu ber ábyrgð á framkvæmd, þ.e. að prófið sé lagt fyrir og að niðurstöður séu nýttar til að skipuleggja íhlutun. Umsjónarkennari, sérkennari eða annar kennari skólans sér um fyrirlögn.
Hvað er metið?
Aldurstengdan námsorðaforða nemenda á íslensku.
Fyrir hverja?
Nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Tímabil
Október-janúar
Ábyrgðaraðili
Deildarstjóri stoðþjónustu og/eða ÍSAT kennari ber ábyrgð á framkvæmd, þ.e. að prófið sé lagt fyrir og að niðurstöður séu nýttar til að skipuleggja íhlutun. ÍSAT kennari og/eða umsjónarkennari um fyrirlögn.