Beint í efni

Mál og læsi: Áætl­un um fyr­ir­lagn­ir skimana, stöðu- og fram­vindu­prófa

Markmið þessarar áætlunar er þríþætt: að finna nemendur í leik- og grunnskólum Kópavogs sem sýna vísbendingar um, eða eru líklegir til að eiga við mál- eða lestrarerfiðleika að etja, að kortleggja stöðuna hjá þeim sem eru við eða undir viðmiðum samkvæmt niðurstöðum mælinga og að veita kennurum og starfsfólki skólanna verkfæri til að skipuleggja íhlutun í þeim tilgangi að mæta einstaklingsþörfum.

Notkun vefsvæðisins

Skimanir, stöðu- og framvindupróf eru flokkuð eftir skólastigi og árgöngum. Undir hverri skimun, stöðu- eða framvinduprófi er hægt að velja viðeigandi niðurstöður. Þegar það er gert birtast tillögur um íhlutanir til að þjálfa þá færni sem þarf hverju sinni.

Allir kennarar eru læsiskennarar og sameiginlega bera þeir ábyrgð á eflingu málþroska, læsis og lestrarþjálfun nemenda.

Matstæki