Leikskóli
Veljið viðeigandi matstæki og viðmið hér fyrir ofan, þá birtast hér að neðan leiðir sem hægt er að nýta í íhlutun.
Listinn yfir leiðir er ekki tæmandi en leitast var við að velja inn verkfæri sem flestir hafa aðgang að.
Kynna skal niðurstöður allra skimana, stöðu- og framvinduprófa fyrir foreldrum og veita þeim viðeigandi ráðleggingar um hvernig þeir geta stutt við læsisnám og málþroska barnsins.
Matstæki
Hvað er metið?
Tjáningafærni, hlustunarskilningur, hljóðkerfisvitund og læsi.
Fyrir hverja?
Alla 1-6 ára nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Tímabil
Dreifist yfir árið.
Ábyrgðaraðili
Deildarstjóri ber ábyrgð á framkvæmd, þ.e. að rammarnir séu notaðir og lagðir fyrir og að niðurstöður séu nýttar til að skipuleggja íhlutun. Deildarstjóri sér einnig um fyrirlögn og skil til foreldra.
Hvað er metið?
Skimað er fyrir frávikum í tali og málþroska.
Fyrir hverja?
Alla nemendur á aldursbilinu 2;9-3;9 ára.
Tímabil
Dreifist yfir árið.
Ábyrgðaraðili
Deildarstjóri ber ábyrgð á framkvæmd, þ.e. að skimun sé lögð fyrir og að niðurstöður séu nýttar til að skipuleggja íhlutun. Deildarstjóri sér einnig um fyrirlögn og skil til foreldra.
Hvað er metið?
Málskilningur og máltjáning.
Fyrir hverja?
Alla nemendur þegar þeir eru á aldursbilinu 3;1-3;10 ára.
Tímabil
Dreifist yfir árið.
Ábyrgðaraðili
Sérkennslustjóri og deildarstjóri bera ábyrgð á framkvæmd, þ.e. að skimun sé lögð fyrir og að niðurstöður séu nýttar til að skipuleggja íhlutun. Sérkennslustjóri og/eða deildarstjóri sjá um fyrirlögn og skil til foreldra.
Hvað er metið?
Hljóðkerfis- og málvitund.
Fyrir hverja?
Alla nemendur í elsta árgangi leikskólans. Endurmat fyrir þá sem eru undir meðalfærni.
Tímabil
September - október, endurmat fer fram á tímabilinu í febrúar - mars. Fylgja skal aldursviðmiðum samkvæmt handbók með HLJÓM-2.
Ábyrgðaraðili
Sérkennslustjóri og deildarstjóri bera ábyrgð á framkvæmd, þ.e. að skimun sé lögð fyrir og að niðurstöður séu nýttar til að skipuleggja íhlutun. Sérkennslustjóri og/eða deildarstjóri sjá um fyrirlögn og skil til foreldra.