Stuðningslestur og ráð til foreldra
Ýmsar ráðleggingar frá talmeinafræðingum leikskóladeildar Kópavogsbæjar.
Ráð til foreldra
Þegar kemur að því að efla málþroska skiptir nærumhverfi barnsins mestu máli (heimili og leikskóli).
Byrjum strax að örva málþroska. Umönnunaraðilar geta haft eftirfarandi atriði til hliðsjónar:
Eitt af því besta sem þú getur gert fyrir barnið þitt til þess að efla málþroska er að lesa og skoða bækur daglega. Rannsóknir sýna að börn sem lesið er fyrir reglulega frá unga aldri hafa betri orðaforða og eigi síður í erfiðleikum með lestur.
- Veljið bækur sem hæfa aldri og áhuga.
- Gefið ykkur tíma til að útskýra ný orð sem koma fyrir.
- Ræðið efni sögunnar m.a. með því að spyrja spurninga (af hverju, hvers vegna).
- Leyfið barninu að segja frá því sem gerðist í sögunni, það eflir frásögn
Lýsandi tal í daglegu amstri:
- Lýstu því sem þú ert að gera, dæmi: „Nú ætla ég að hjálpa þér úr peysunni, fyrst tek ég í hendurnar og svo fer peysan yfir höfuðið. Vá hvað peysan er mjúk“.
- Lýstu því sem barnið er að gera, dæmi: „Nú ert þú að róla hátt upp í loft“.
- Lýstu því sem gerist í umhverfi barnsins, dæmi: „Sjáðu, þarna er vörubíll, stór blár vörubíll“.
Hafið í huga að lágmarka skjátíma og auka frekar gæðastundir til þess að efla málþroska.
- Þegar barn horfir eitt á sjónvarp lærir það ekki þessi boðskipti sem eru svo mikilvæg fyrir málþroskann.
- Mikilvægt að allt skjáefni sé á íslensku (og/eða heimamáli barnsins).
- Hafið í huga að þið sem foreldrar ákveðið hvaða skjáefni er í boði fyrir barnið.
- Verið góðar fyrirmyndir, skjátæki geta dregið úr virkri hlustun og beinum samskiptum við barnið, hugið því að eigin skjánotkun
Endurtökum, leiðréttum og bætum við það sem barnið segir
Þannig heyrir barnið alltaf rétta setningamyndun, án þess að vera krafið um að leiðrétta sig:
- Dæmi: ,,Þarna tveir hundur“ þá endurtekur foreldri: „Já þarna eru tveir hundar.
- Dæmi: „Bíll“ þá getið þið sagt: „Já þarna er bíll! Vá hvað hann er stór og hann er rauður á litinn. Stóri rauði bíllinn keyrir hratt“
Stuðningslestur
Vinnulag
Stuðningslestur eða Guided Reading er formlegur lestrarstuðningur sem gefur kennaranum kost á að vinna með litla nemendahópa í bekk, þar sem unnið er með lestur. Tilgangur stuðningslesturs er að koma til móts við misjafna lestrargetu nemenda og efla hana. Hafa þarf í hugað að stuðningslestur er bara ein af mörgum aðferðum í lestrarkennslunni.
Í stuðningslestri lesa nemendur námsefni við hæfi, lesefnið er ekki of þungt en þarf þó að vera áskorun. Nemendur með svipaða getu og þarfir eru valdir saman í hóp. Þörf hvers nemanda í hópnum er þó höfð í huga.
- Aðaltilgangur lestrarstundar er lestur og þjálfun. Notið 2/3 tímans í lestrarþjálfun.
- Látið þarfir nemenda ráða ferðinni. Þegar stuðningshópurinn hittist er mikilvægt að þarfir hvers og eins séu hafðar í huga.
- Greindu þrjú meginatriði, þarfir bekkjarins og hafðu þau atriði í huga í allri kennslu yfir daginn.
- Þegar formleg kennsla sem þessi er notuð er gott að hafa í huga eftirfarandi:
- Skipulegðu kennsluna vel
- Þegar bekkurinn les saman, spurður spurningar úr textanum og kenndu þeim leiðir sem þjálfa lesskilning
- Mynnið nemendur á að nýta sér þessar leiðir þegar þeir lesa sjálfstætt
- Búðu til nýja hópa eða breyttu þeim eftir því sem lestrargeta nemenda eflist
- Lestrarþátturinn, lesa, endurlesa
- Orðaforði
- Hljóð- og orðgreining
- Forspá
- Lesfimi
- Umskráning
- Draga saman úr texta
- Rýna í texta
- Spyrja spurninga
- Tenging texta (persónulega, við annan texta, við lífið)
- Leggja mat á texta, rökstyðja
- Skima og hraðlesa
- Endursegja
Hugmyndir af verkefnum fyrir bekkinn að vinna á meðan unnið er með stuðningslestur:
- Tölvuverkefni
- Ritunarverkefni
- Lestur tímarita fyrir börn
- Leskrókur
- Yndislestur
- Orðaverkefni
- Orðaforðaverkefni
- Stafsetning, sóknarskrift
- Paralestur
- Verkefnabækur
- Skrift
- Orðaspil eða önnur kennsluspil
Hópavinna í stuðningslestri 3.- 6. bekkur
Markmið: þessi aðferð hjálpar lesendum að greina og skilja upplýsingar og dýpka skilning sinn með spurningum.
Aðferð:
- Lesa upplýsingaríkan texta.
- Skrifa hjá sér staðreyndir, spurningar ef einhverjar eru og svör við þeim á minnismiða.
- Búðu til blað, spjald (má gera á töflu) með þrem dálkum fyrir staðreyndir, spurningar og svör og setjið minnismiðana í þann dálk sem á við.
- Veltu vöngum yfir spurningunum. Var þeim svarað í textanum? Gast þú svarað þeim eða þarf að leita svara annarstaðar?
Aðföng: spjald og minnismiðar helst með límrönd.
Markmið: styðja nemendur við að rýna í texta, vitna í hann, draga saman megindrætti hans og sýna skilning á textanum.
Aðferð:
- Láta hvern nemanda fá minnismiða með lími á sem búið er að klippa í renninga.
- Meðan nemendur lesa eiga þeir að merkja í textanum það sem skipti r máli.
- Þegar þeir hafa lesið para þeir sig saman og ræða það sem þeir merktu í textanum og þeim þótti skipta máli.
- Til að taka verkefnið en lengra geta pörin komist að niðurstöðum um það sem skiptir máli og segja frá því yfir hópinn.
Aðföng: minnismiðar með lími á sem klipptir eru í strimla.
Markmið: er að kenna nemendum að stoppa reglulega til að hugsa um það sem þau lesa og ígrunda innihaldið.
Aðferð:
- Lestu aðeins það mikinn texta að þú getir hulið hann með hendinni.
- Hyldu orðin með hendinni.
- Reyndu að muna það sem þú last, það má kíkja aftur.
Markmiðið er að kenna nemendum að finna upplýsingar úr texta.
Aðferð:
- Nemendur lesa ögrandi texta.
- Eftir lesturinn eiga nemendur að skrifa tvö orð sem endurspegla hugmyndir þeirra um textann.
- Þegar þeir hafa valið sér orð snúa nemendur sér til samnemanda og lesa orðin fyrir þá. Segja þeim frá því af hverju þeir völdu þessi orð og hvernig þau tengjast því sem þeir lásu eða þeirra eigin lífi.
- Útbúinn er bekkjarlisti yfir öll orðin sem nemendurnir völdu og af hverju þau voru valin með tilliti til textans.
Aðföng: bók, texti, pappír og flettitafla.
Markmiðið er að útbúa gagnvirka dagbók þar sem nemendur endurspegla á lesturinn, byggja upp skilning og skiptast á hugmyndum og skoðunum við aðra nemendur.
Aðferð:
- Nemendur vinna saman í pörum.
- Hver nemandi fær blað sem búið er að brjóta í tvennt.
- Hver nemandi skrifar eða teiknar mynd á annan helming blaðsins.
- Samnemandinn ræðir um söguna eða myndina og hvaða hugmyndir þeir hafa um efnið.
- Nemendurnir skiptast á blöðum.
- Nota síðari helminginn frá blaði samnemandans til að skrifa eða teikna vangaveltur eða svar við því sem sá fyrri skrifaði eða teiknaði.
- Hópurinn sest saman og ræðir um sameiginleg skrif sín.
Aðföng: blöð sem búið er að brjóta í tvennt.
Markmiðið: er að auka lestrarfærni nemenda.
Aðferð:
Þegar þú lest reyndu að lesa eins og þú ert að tala venjulega.Para nemendur eftir getu. Báðir hafa sama textann. Nemendur lesa í hljóði eina blaðsíðu í einu. Í lok hverrar blaðsíðu eiga nemendur að skrifa, neðst á blaðsíðuna, spurningu úr frá því sem þeir hafa lært af textanum.
Aðföng: textar sem hæfa getu nemenda að lengd og þyngd. Textanum þarf að skipta á nokkrar blaðsíður.