Frístundaklúbburinn Hrafninn
Frístundaklúbbur fyrir fötluð börn í 5.–10. bekk í grunnskólum Kópavogs. Starfið tekur mið af áhuga, getu og þörfum hvers og eins.
Frístundaklúbburinn Hrafninn er við Skálaheiði 2.
Í Hrafninum fá börn tækifæri til að njóta sín í leik og skapandi starfi eftir skóla í öruggu og skipulögðu umhverfi. Í starfinu er lögð áhersla á fagleg vinnubrögð, foreldrasamstarf og virðingu fyrir einstaklingum, aðstandendum þeirra og öðru starfsfólki.
Á sumrin býður Hrafninn upp á námskeið og fjölbreytt sumarstörf fyrir börn og unglinga.
Umsóknarferli
Sótt er um í gegnum Völu frístund.
Í Völu geta foreldrar valið daga og dvalartíma sem henta fjölskyldunni best.
Einnig er hægt að:
- Breyta vistun barns.
- Segja upp vistun.
- Sækja um afslátt ef við á.
Frestur til að segja upp vistun eða sækja um afslátt er til 20. dags hvers mánaðar. Breytingar taka þá gildi frá næstu mánaðamótum.
Opnunartími
Frístundaklúbburinn er opinn frá því að skóladegi lýkur til kl. 16:30 á virkum dögum.
Hrafninn er opinn frá kl. 08:00–16:30.
- Í vetrarfríum grunnskóla.
- Á starfsdögum grunnskóla.
- Í jóla- og páskaleyfi.
Lokað er á rauðum dögum.
Gjöld og afslættir
Foreldrar og forsjáraðilar gætu átt rétt á afslætti.
Hægt er að sækja um afslátt í frístund ef:
- Foreldri er einstætt.
- Báðir foreldrar eru í fullu námi.
- Foreldri er með 75% örorku eða meira.
Sótt er um afslátt á Minn Kópavogur.
Námsmenn þurfa að skila staðfestingu á námsárangri eftir hverja önn. Afsláttur til námsmanna gildir ekki frá 1. júní til 31. ágúst, nema um fullt sumarnám sé að ræða.
Systkinaafsláttur reiknast sjálfkrafa í skráningarkerfinu.
Afsláttur er:
- 30% fyrir annað barn.
- 75% fyrir þriðja barn.
- 100% fyrir fjórða barn eða fleiri.
Systkinaafsláttur er einnig veittur ef yngra systkini:
- Er í leikskóla.
- Er hjá dagforeldri með framlagi frá Kópavogsbæ.
Afslátturinn reiknast af dvalargjaldi, ekki matargjaldi.
- Dvalar- og matargjöld eru innheimt eftir á í upphafi hvers mánaðar samkvæmt gildandi gjaldskrá.
- Afsláttur er ekki greiddur afturvirkt.
Allar gjaldskrár Kópavogsbæjar eru birtar með fyrirvara um villur.
Frístundaklúbburinn Hrafninn
Gjaldskrá tekur gildi 1.október 2026
Sækja þarf um vistun í frístund í gegnum Völu. Breytingar á vistun eru einnig gerðar í gegnum sömu umsókn. Frestur til þess að segja upp áskrift og sækja um afslátt er til 20. hvers mánaðar. Breytingar taka gildi frá og með næstu mánaðarmótum á eftir. Afsláttur er ekki veittur afturvirkt.
Dvalarstundir | Almennt gjald | Annað barn m/systkinafsl. | Þriðja barn m/systkinaafsl. | Fjórða barn m/systkinaafsl. |
|---|---|---|---|---|
Allt að 20 klst á mán | 10.581 kr. | 7.407kr. | 2.645 kr. | 0 kr. |
21 - 40 klst á mán | 18.527 kr. | 12.969 kr. | 4.632 kr. | 0 kr. |
41 - 60 klst á mán | 24.707 kr. | 17.295 kr. | 6.177 kr. | 0 kr. |
61 - 80 klst á mán | 29.118 kr. | 20.383 kr. | 7.280 kr. | 0 kr. |
Matargjald | 190 kr. | 190 kr. | 190 kr. | 190 kr. |
Lægra gjald
Lægra gjald greiða einstæðir foreldrar, öryrkjar (75% örorka eða meira) og námsmenn (báðir foreldrar í námi)
Dvalarstundir | Almennt gjald | Annað barn m/systkinafsl. | Þriðja barn m/systkinaafsl. | Fjórða barn m/systkinaafsl. |
|---|---|---|---|---|
Allt að 20 klst á mán | 7.407 kr. | 5.185 kr. | 1.852 kr. | 0 kr. |
21 - 40 klst á mán | 12.969 kr. | 9.078 kr. | 3.242 kr. | 0 kr. |
41 - 60 klst á mán | 17.295 kr. | 12.107 kr. | 4.324 kr. | 0 kr. |
61 - 80 klst á mán | 20.383 kr. | 14.268 kr. | 5.096 kr. | 0 kr. |
Matargjald | 190 kr. | 190 kr. | 190 kr. | 190 kr. |
Afslættir
Afsláttur í frístund
Lægra gjald greiða einstæðir foreldrar, námsmenn þar sem báðir foreldrar eru í fullu námi og öryrkjar með metna örorku (75% eða meira). Námsmenn þurfa að framvísa vottorði til staðfestingar um námsárangur eftir hverja önn og er afsláttur leiðréttur eftirá fyrir hverja önn. Afsláttur til námsmanna gildir ekki 1. júní til 31. ágúst, nema foreldrar séu í fullu sumarnámi. Öryrkjar þurfa að setja mynd af örorkuskírteini sem viðhengi með umsókn. Sótt er um framangreindan afslátt með því að fara inn í „Umsókn um frístund“ í þjónustugátt. Þegar komið er inn í Völu kerfið er hægt að sækja um afslátt.
Systkinaafsláttur
Systkinaafsláttur er 30% af dvalargjaldi fyrir annað barn, en 75% af dvalargjaldi fyrir þriðja barn og 100% fyrir fjórða barn eða fleiri. Systkinaafsláttur er einnig veittur ef yngra systkini er í leikskóla eða ef Kópavogsbær greiðir framlag vegna dvalar systkinis hjá dagforeldri. Systkinaafsláttur reiknast af dvalargjaldi eldri systkina. Systkinaafsláttur reiknast einnig af lægra gjaldi. Ekki er veittur afsláttur af matargjaldi.
Ekki þarf að sækja sérstaklega um systkinaafslátt þar sem hann reiknast sjálfkrafa í skráningarkerfinu Völu sem heldur utan um skráningar barna hjá dagforeldrum sem og í leikskóla og frístund.