Félagsmiðstöðvar
Félagsmiðstöðvar Kópavogs bjóða upp á fjölbreytt, faglegt og skemmtilegt frístundastarf. Starfið er opið öllum börnum og unglingum í 5.–10. bekk.
Áhersla er lögð á lýðræði, virka þátttöku, uppbyggingu sjálfsmyndar, ánægju og gleði.
Starfið
Á frístundadeild menntasviðs eru starfandi níu félagmiðstöðvar og eru þær staðsettar í hverjum grunnskóla.
Í skipulögðu starfi er boðið upp á opið starf, sértækt hópastarf, námskeið og smiðjur í öruggu umhverfi. Starfið miðar að því að stuðla að auknum félagsþroska, samskiptahæfni, þátttöku og ábyrgð.
Opnunartími
Opið er í frímínútum, hádegishléi og eftir viðverutíma starfsfólks.
Miðvikudagar 17:00-18:30.
Föstudagar 17:00-18:30
Mánudagar 17:00-18:30 og 19:30 – 22:00
Miðvikudagar 17:00-18:30 og 19:3 – 22:00
Föstudagar 19:30-23:00
Hlutverk félagsmiðstöðva
Félagsmiðstöðvar eru hluti af frístundastarfi grunnskóla í Kópavogi og eru staðsettar í hverjum skóla.
Starfið hefur forvarnargildi og styður unglinga í að þróa heilbrigð viðhorf, jákvæð samskipti og virka þátttöku í samfélaginu.
Börnum og unglingum eru boðin fjölbreytt viðfangsefni í frítímanum sem stuðla að heilbrigðum lífsstíl og draga úr áhættuhegðun.
Í starfinu er skýr afstaða gegn vímuefnaneyslu og annarri óæskilegri hegðun.
Félagsmiðstöðvar í Kópavogi
Félagsmiðstöðvar standa oft fyrir sameiginlegum viðburðum, eins og:
- Böllum
- Rafíþróttamótum
- Íþróttaleikjum
- Söng- og danskeppnum
- Hönnunarsamkeppnum
- Stuttmyndahátíðum.
Fylgstu með starfinu
Dagskrá og nánari upplýsingar eru aðgengilegar á heimasíðum grunnskóla og samfélagsmiðlum félagsmiðstöðva.
Instagram: @dimmafelagsmidstod
Instagram: @ekko_felagsmidstod
Instagram: @felagsmidstodinfonix
Instagram: @iglokop
Instagram: @jemenkop
Instagram: @kjarninn_felo
Instagram: @felagsmidstodin_kulan
Instagram: @felagsmidstodinpegasus
Instagram: @thetheba