Beint í efni

Frístund

Frístund er starf eftir skóla fyrir börn í 1.–4. bekk og er í boði í öllum grunnskólum Kópavogs.

Öll börn geta tekið þátt í frístundastarfinu á sínum forsendum, óháð getu, þroska eða fötlun.

Starfið styður við þroska, félagsfærni og vinatengsl barna, með áherslu á hópefli og fjölbreyttan leik. Frístundastarfið fer fram í húsnæði skólans og á útisvæðum hans.

Aðstaðan er skipulögð með þarfir og öryggi barna í huga.

Um­sókn­ar­ferli

Sótt er um í gegnum Völu frístund.

Í Völu geta foreldrar valið daga og dvalartíma sem henta fjölskyldunni best.

Einnig er hægt að:

  • Breyta vistun barns.
  • Segja upp vistun.
  • Sækja um afslátt ef við á.

Frestur til að segja upp vistun eða sækja um afslátt er til 20. dags hvers mánaðar. Breytingar taka þá gildi frá næstu mánaðamótum.

Opn­un­ar­tími

Frístund er opin frá því að skóladegi lýkur til kl. 16:30 á virkum dögum.

Gjöld og af­slætt­ir

Foreldrar og forsjáraðilar gætu átt rétt á afslætti.

  • Dvalar- og matargjöld eru innheimt eftir á í upphafi hvers mánaðar samkvæmt gildandi gjaldskrá.
  • Afsláttur er ekki greiddur afturvirkt.

Allar gjaldskrár Kópavogsbæjar eru birtar með fyrirvara um villur.

Frístund í grunnskólum

Gjaldskrá tekur gildi 1. október 2026

Sækja þarf um vistun í frístund í gegnum Minn Kópavog.
Breytingar á vistun eru einnig gerðar í gegnum sömu umsókn. Frestur til þess að segja upp áskrift og sækja um afslátt er til 20. hvers mánaðar. Breytingar taka gildi frá og með næstu mánaðarmótum á eftir. Afsláttur er ekki veittur afturvirkt.

Frístund

Dvalarstundir

Almennt gjald

Annað barn með systkinaafsl.

Þriðja barn með systkinaafsl.

Fjórða barn með systkinaafsl.

Allt að 20 klst á mán

10.581 kr.

7.407 kr.

2.645 kr.

-

21-40 klst á mán

18.527 kr.

12.969 kr.

4.632 kr.

-

41-60 klst á mán

24.707 kr.

17.295 kr.

6.177 kr.

-

61-80 klst á mán

29.118 kr.

20.383 kr.

7.280 kr.

-

Matargjald á dag

191 kr.

191 kr.

191 kr.

191 kr.

Lægra gjald greiða einstæðir foreldrar, öryrkjar (75% örorka eða meira) og námsmenn (báðir foreldrar í námi)

Dvalarstundir

Almennt gjald

Annað barn með systkinaafsl.

Þriðja barn með systkinaafsl.

Fjórða barn með systkinaafsl.

Allt að 20 klst á mán

7.407 kr.

5.185 kr.

1.852 kr.

-

21-40 klst á mán

12.969 kr.

9.078 kr.

3.242 kr.

-

41-60 klst á mán

17.295 kr.

12.107 kr.

4.324 kr.

-

61-80 klst á mán

20.383 kr.

14.268 kr.

5.096 kr.

-

Matargjald á dag

191 kr.

191 kr.

191 kr.

191 kr.

Afsláttur í frístund

Lægra gjald greiða einstæðir foreldrar, námsmenn þar sem báðir foreldrar eru í fullu námi og öryrkjar með metna örorku (75% eða meira). Námsmenn þurfa að framvísa vottorði til staðfestingar um námsárangur eftir hverja önn og er afsláttur leiðréttur eftirá fyrir hverja önn. Afsláttur til námsmanna gildir ekki 1. júní til 31. ágúst, nema foreldrar séu í fullu sumarnámi. Öryrkjar þurfa að setja mynd af örorkuskírteini sem viðhengi með umsókn.

Sótt er um framangreindan afslátt með því að fara inn í „Umsókn um frístund“ í þjónustugátt. Þegar komið er inn í Völu kerfið er hægt að sækja um afslátt.

Sækja þarf um afslætti á hverju skólaári.


Systkinaafsláttur
Systkinaafsláttur er 30% af dvalargjaldi fyrir annað barn, en 75% af dvalargjaldi fyrir þriðja barn og 100% fyrir fjórða barn eða fleiri. Systkinaafsláttur er einnig veittur ef yngra systkini er í leikskóla eða ef Kópavogsbær greiðir framlag vegna dvalar systkinis hjá dagforeldri. Systkinaafsláttur reiknast af dvalargjaldi eldri systkina. Systkinaafsláttur reiknast einnig af lægra gjaldi. Ekki er veittur afsláttur af matargjaldi.

Ekki þarf að sækja sérstaklega um systkinaafslátt þar sem hann reiknast sjálfkrafa í skráningarkerfinu Völu sem heldur utan um skráningar barna hjá dagforeldrum sem og í leikskóla og frístund.

Frí­stunda­bíll

Íþróttafélögin Breiðablik, Gerpla og HK bjóða akstur frá frístund á íþróttaæfingar.

Skráning og tímatöflur eru aðgengilegar á vefsíðum félaganna.

Frístund - Kópavogsbær