Námið í Urðarhóli
Hér má kynna sér áherslur leikskólans í námi og uppeldisstarfi, hugmyndafræði hans og hvernig daglegt starf styður við nám, þroska og vellíðan barna.
Skólanámskrá og þróunarverkefni
Leikskólar í Kópavogi starfa samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla, sem gefin er út af Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Hún skilgreinir gildi og markmið leikskólastarfs og stuðlar að gæðum, fjölbreyttu námi og jöfnum tækifærum barna.
Á grunni hennar mótar hver leikskóli sína skólanámskrá, sem lýsir sérstöðu, stefnu, skipulagi og áherslum skólans. Hún útfærir markmið aðalnámskrár í daglegu starfi og þróast með þörfum barna og faglegum áherslum starfsfólks. Þannig stuðlar hún að gagnsæi, fagmennsku og sameiginlegri sýn.
Urðarhóll er heilsuleikskóli sem starfar samkvæmt Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur. Hún leggur áherslu á vellíðan, heilbrigða lífshætti, hreyfingu, næringu, sköpun og jafnvægi og styður við líkamlegan, félagslegan og tilfinningalegan þroska barna.
Það er hægt að lesa sér til um heilsustefnuna hér : Heimasíða Heilsustefnunnar
Þróun og nýbreytni
Frá upphafi hefur Heilsuleikskólinn verið í samstarfi við Heilbrigðisráðuneytið, Landlæknisembættið, Menntamálaráðuneytið og Manneldisráð. Hafa kennarar skólans notið styrkja og ráðgjafar til þróunarstarfs frá þeim aðilum.
- Þróunarverkefnið Krakkakúnst sem Gunnhildur Magnúsdóttir og Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir unnu 2023. Krakkakúnst
- Þróunarverkefnið Stafagaldur sem Birte Harksen vann. Stafagaldur
- Þróurnarverkefnið Þrír starfir var unnið í Skólatröð veturinn 2019-2020 í samstarfi við Kópavogsskóla og Leikskólans Kópahvols. Þrír stafir - Skólanámskrá í læsi fyrir elstu börn leikskóla og yngstu börn grunnskóla
- Þróunarverkefnið Börn og tónlist sem Birte Harksen vann Börn og tónlist
- Þróunarverkefnið Leikur að bókum sem Birte Harsen og Ingibjörg Á Sveinsdóttir unnu Leikur að bókum
- Heilsubók barnsins 1996 – 1998
- Bæklingurinn Nónhressing í leikskólum 1997
- Þróunarverkefni í hreyfingu 1998 – 1999
- Evrópuverkefni heilsuskóla ásamt heilsugæslu og þremur öðrum skólum í Kópavogi 1999-2002
- Kynningarbæklingur fyrir Heilsubók barnsins 2000
- Þróunarstarf þegar þrjú hús voru sameinuð í eina stofnun; Heilsuleikskólann Urðarhól.
- Sjálfstæður fjárhagur, einsetinn leikskóli, breyttur opnunartími, breytt staða aðstoðarleikskólastjóra, fagstjórar o.fl. 2000-2002
- Þátttaka í rannsókn á útbreiðslu ónæmra baktería hjá börnum í leikskólum og aðgerðir til að hefta útbreiðslu þeirra, ásamt öðrum leikskólum í Kópavogi og Hafnarfirði 2000-2003
- Samvinna heilsugæslu og Heilsuleikskóla 2001-2002
- Samstarf leik- og grunnskóla í Vesturbæ Kópavogs, þar sem verið var að samþætta námsefni fyrir fjögra til sjö ára börn 2001-2003
- Stefnumótun fyrir heilsustefnuna 2004
- Skólaárin 2004-2005 og 2005-2006 Námskrá fyrir elstu börnin
Lubbi finnur málbein
Á Urðarhóli er unnið með bókina Lubbi finnur málbein.
Hugmyndasmiðirnir á bak við Lubba, Þóra Másdóttir og Eyrún Ísfold Gísladóttir, talmeinafræðingar sem hafa áralanga reynslu af talþjálfun barna. Námsefnið býður upp á nýja framsetningu á íslensku málhljóðunum og leggur góðan grunn að lestrarnámi auk þess sem það stuðlar að betri orðaforða og ýtir undir skýrari framburð.
Hugmyndafræðin á bak við Lubba er sú að hafa hljóðanám í þrívídd. Þar eru sex atriði í hávegum höfð. Þau eru í fyrsta lagi samþætting skynleiða. Það er sjón-,heyrnar- og hreyfi-/snertiskyns. Í öðru lagi er áhersla lögð á að draga upp hljóð- og hreyfimyndir sem auðveldar börnunum að festa í minni námsefnið. Í þriðja lagi er það að hvert málhljóð á sér táknræna hreyfingu sem undirstrikar sérstöðu þess. Í fjórða lagi er lögð áhersla á tengingar á upplifun og reynsluheim barnsins, athafnir, tilfinningar og líðan þess. Í fimmta lagi eiga börn auðvelt að læra í gegnum söng og á því hvert málhljóð sína vísu. Í sjötta og síðasta lagi er lögð áhersla á tengsl milli málhljóðs og bókstafs. En það er undirstaða lestrarnáms.
Hljóðaklettar Lubba gefa einnig góða vísbendingu um hvort barn fylgi dæmigerðri framvindu í tileinkun málhljóðanna.
Krakkakúnst
Krakkakúnst er þróunarverkefni sem leikskólakennararnir Gunnhildur Magnúsdóttir og Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir, sem starfa hér í Urðarhóli, unnu að skólaárið 2023 -2024. Hugmyndin var að búa til heimasíðu með verkfærakistu fyrir starfsfólk leikskóla og foreldra þar sem auðvelt er að nálgast þann efnivið sem kennari/foreldri vill vinna með. Síðan er lifandi þar sem reglulega kemur inn nýtt efni.
KrakkakúnstÍþróttir
Á Urðarhóli er starfandi íþróttakennari og öll börn fara í íþróttir einu sinni í viku.
Rakel Arna Guðlaugsdóttir er starfandi íþróttakennari á Urðarhóli. Hún er með langan bakgrunn í fimleikum og hefur um árabil þjálfað börn í fimleikum.
Í markvissri hreyfiþjálfun eflist alhliða þroski barnsins. Barnið öðlast betri líkamsvitund og góð líkamleg færni leiðir af sér ánægðara barn. Sjálfsöruggt og ánægt barna á auðveldara með að leika sér, og tileinka sér þekkingu. Markviss hreyfiþjálfun hefur einnig áhrif á málþroska og málskilning barna og þar með eykst félagsfærni og leikgleði sem eflir vináttubönd.
- auka vitneskju um líkamann
- styrkja sjálfsmynd
- stuðla að betri hreyfifærni
- auðvelda samskipti
- læra hugtök
Misjafnar eru áherslur eftir aldri barnanna en megináherslu er þá ávalt á að auka hreyfiþroska.
Í yngsta árgangnum er áhersla á að kynnast salnum og einfaldlega læra hvernig íþróttatímar ganga fyrir sig.
Þriggja og fjögra ára börnin læra létta leiki og fara eftir flóknari fyrirmælum.
Elsti árgangur lærir leiki með flóknari fyrirmælum og samvinnu.